Aðeins þau sem hafa milljón á mánuði í laun telja almennt Ísland vera á réttri leið

Meiri­hluti þeirra sem eru með milljón krónur eða meira í mán­að­ar­laun telja að Ísland sé á réttri leið. Meiri­hluti lands­manna telur að „hlut­irnir séu á rangri braut“ á Íslandi. 68 pró­sent fólks með með­al­laun trúir því að Ísland sé á rangri leið.

Aðeins þau sem hafa milljón á mánuði í laun telja almennt Ísland vera á réttri leið
Reykja­vík Íbúar höf­uð­boprg­ar­svæð­is­ins eru lík­legri til að telja Ísland á réttri leið en þeir sem búa á lands­byggð­inni, eða 49 pró­sent á móti 39 pró­sent lands­byggð­ar­fólks. Mynd: Shutterstock

Ísland er á rangri braut vegna spill­ingar í fjár­málum og stjórn­málum, félags­legs ójöfn­uðar og hnign­unar vel­ferð­ar­kerf­is­ins, sið­ferð­is­ins og mennt­unar, sam­kvæmt áliti meiri­hluta þjóð­ar­innar.

Nið­ur­stöður nýbirtrar könn­unar MMR eru að 54,3 pró­sent lands­manna álíta að almennt séð, séu hlut­irnir „á rangri braut“ á Íslandi. 45,7 pró­sent telja að „hlut­irnir séu að þró­ast í rétta átt á Íslandi“.

Þeir tekjuhæstu jákvæðir á þróunina

Afger­andi munur er á afstöðu fólks eftir því hversu miklar tekjur það hefur. Þannig eru Íslend­ingar með meira en milljón krónur í mán­að­ar­laun lang­sam­lega jákvæð­astir á þróun mála. 56 pró­sent þeirra telja Ísland á réttri leið. Á móti eru 68 pró­sent þeirra sem hafa 400 til 600 þús­und í mán­að­ar­laun, eða með með­al­laun, á þeirri skoðun að Ísland sé á rangri braut. 

Mest afger­andi er mun­ur­inn eftir stuðn­ingi við stjórn­mála­flokka. Þannig telja 80 pró­sent stuðn­ings­fólks Við­reisnar Ísland vera á réttri leið og 82 pró­sent stuðn­ings­fólks Sjálf­stæð­is­flokks, en 79 pró­sent Pírata telja Ísland á rangri braut. Slagorð Sjálf­stæð­is­flokks­ins fyrir síð­ustu kosn­ingar var „Á réttri leið“. Slagorð Pírata var hins vegar „End­ur­ræsum Ísland“.

Stuðn­ingur eftir ýmsum breytumHáar tekjur og stuðn­ingur við Sjálf­stæð­is­flokk eða Viðreisn eru með mesta fylgni við trú á að Ísland sé á réttri leið.

Áhyggjur af spillingu lita sýn á samfélagið allt

Þátt­tak­endur í könn­un­inni voru spurðir hvaða atriðum þeir hefðu mestar áhyggjur af á Íslandi eða í íslensku sam­fé­lagi. Þeir gátu valið þrjú atriði. Meðal þeirra sem höfðu áhyggjur af spill­ingu í fjár­málum og/eða við­skiptum töldu 68 pró­sent Ísland vera á rangri braut. Af þeim sem nefndu fátækt og/eða ójöfnuð töldu 66 pró­sent Ísland á rangri leið, 65 pró­sent við­hald vel­ferð­ar­kerf­is­ins og 63 pró­sent menntun.

Þau sem hafa áhyggjur af glæpum og ofbeldi telja hins vegar Ísland á réttri leið, eða í 80 pró­sent til­vika. Fólk sem hefur áhyggjur af ofþyngd barna taldi Ísland almennt á réttri leið í 73 pró­sent til­vika. 

Þannig má sjá að fólk sem hefur áhyggjur af spill­ingu, sið­ferð­is­hnignun, vel­ferð­ar­kerf­inu og ójöfn­uði, yfir­færir áhyggjur sínar á þróun sam­fé­lags­ins almennt, fremur en þeir sem hafa áhyggjur af glæpum, ofbeldi og ofþyngd barna.

Áhyggjur af spill­ingu og hnignun sið­ferðisMeiri­hluti Íslend­inga telur spill­ingu, sið­ferði og jöfnuð vera á rangri braut á Íslandi.

 

 

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

Ástleysið er sárt
4
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

„Margt sem ég hef séð situr í mér“
4
Viðtal

„Margt sem ég hef séð situr í mér“

Þegar Halla Bergþóra Björns­dóttir varð fyrst kvenna til þess að sinna lög­gæslu á Húsavík fékk hún að heyra að konur ættu ekk­ert erindi í lög­regl­una. Hún lét það ekki á sig fá, varð lög­reglu­stjóri og loks rík­is­lög­reglu­stjóri. Starfið hefur breytt henni, enda hefur hún komið að erf­iðum málum og fengið hót­anir. Á sama tíma hefur hún öðl­ast skarp­ari sýn á lífið, sterk­ari löngun til að gera gagn og fundið fyrir þakk­læti fyrir allt það góða.

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
5
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár