Aðalvarðstjóri: „Allar heimildir verði nýttar til að leita á dópistalýð í Laugardalnum“

Lög­reglan kemur starfs­mann­inum til varnar og segir hann mega hafa „per­sónu­legar skoð­anir“ – Varð­stjór­inn segir færsl­una snú­ast um „per­sónu­legan harm­leik“ ætt­ingja

Lögreglan
Lög­reglan Mynd teng­ist frétt ekki beint Mynd: Facebook

 

„Mikið vona ég að allar heim­ildir verði nýttar til að leita á dópista­lýð í Laug­ar­dalnum,“ skrif­aði Guð­mundur Fylk­is­son, aðal­varð­stjóri hjá lög­regl­unni á höf­uð­borg­ar­svæð­inu á Facebook í gær meðan Secret Solstice-hátíðin stóð yfir í Laug­ar­dal. 

Ummæli lög­reglu­þjóns­ins hafa vakið nokkra athygli og er lög­reglan látin svara fyrir þau á Facebook. „Ég hef ekki séð né skoðað ummæli Guð­mundar né sam­hengið sem það stendur í en hann má líkt og aðrir hafa per­sónu­legar skoð­anir og er þá sjálfur ábyrgur fyrir þeim,“ skrifar þar tals­maður lög­regl­unnar.

Mikið vona ég að allar heim­ildir verði nýttar til að leita á dópista­lýð í Laug­ar­dalnum.

Posted by Guð­mundur Fylk­is­son on Saturday, June 20, 2015

Stundin náði tali af Guðmundi Fylk­is­syni sem vildi ein­ungis taka það fram að umrædd Facebook-færsla hefði „snú­ist um per­sónu­legan harm­leik“. Hann seg­ist hafa verið staddur inni á slysa­deild með nákomnum ætt­ingja þegar hann skrif­aði færsl­una, „ung­menni sem lét glepjast af gylli­boði ein­hvers sem var með neyslu­skammt­inn sinn í vas­anum, gylli­boði sem var næstum búið að kosta við­kom­andi barn lífið.“

 

 

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár