Afskráði mætingu á landsfund Sjálfstæðisflokksins

Hörður Þór­halls­son, fram­kvæmda­stjóri Stjórn­stöðvar ferða­mála, er ekki lengur skráður til þátt­töku á lands­fund Sjálf­stæð­is­flokks­ins. Hann neitar að svara spurn­ingum Stund­ar­innar.

Afskráði mætingu á landsfund Sjálfstæðisflokksins

Hörður Þór­halls­son, nýráð­inn fram­kvæmda­stjóri Stjórn­stöðvar ferða­mála, er ekki lengur skráður til þátt­töku á lands­fundi Sjálf­stæð­is­flokks­ins. Í frétt á Kjarn­anum er haft eftir Herði að hann sé ekki lands­fund­ar­full­trúi né hafi hann sóst eftir að verða slíkur. Þórður Snær Júl­í­us­son, rit­stjóri Kjarnans, skrif­aði leið­ara í gær þar sem hann vís­aði meðal ann­ars í frétt Stund­ar­innar um málið. Hörður kom því á fram­færi við Kjarnann í dag að frétt Stund­ar­innar væri ekki rétt og var leið­ar­anum breytt í sam­ræmi við þá ábend­ingu. 

Stundin sagði frá því í síð­ustu viku að Hörður væri skráður til þátt­töku á lands­fund en hann hafði skráð sig til þátt­töku á Facebook-við­burði á vegum Sjálf­stæð­is­flokks­ins. Áður hafði hann full­yrt í sam­tali við Stundina að hann hefði engin tengsl við Sjálf­stæð­is­flokk­inn. 

Hann hefur nú afskráð sig af mæt­ing­ar­lista á lands­fund­inn. Í texta með við­burð­inum segir að aðild­ar­fé­lög og full­trúa­ráð flokks­ins skipi lands­fund­ar­full­trúa og að allir sjálf­stæð­is­menn geti sóst eftir setu­rétti. Þeim sem hafa skráð sig til þátt­töku á við­burð­inum ætti því að vera ljóst að til þess að mæta á lands­fund þurfi þeir að vera skráðir í Sjálf­stæð­is­flokk­inn og skip­aðir lands­fund­ar­full­trúar. 

Var skráður til þátttöku
Var skráður til þátt­töku Hörður Þór­halls­son, nýráð­inn fram­kvæmda­stjóri Stjórn­stöðvar ferða­mála, var í síð­ustu viku skráður til þátt­töku á lands­fundi Sjálf­stæð­is­flokks­ins. Hann er það ekki lengur.

Stundin hafði sam­band við Hörð og bað um nán­ari útskýr­ingar. Hann sagð­ist ekki vilja svara blaða­manni sím­leiðis og bað um að fá sendar spurn­ingar með smá­skila­boðum á far­síma.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífshættulegan meðgöngusjúkdóm
1
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
Ástleysið er sárt
2
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
3
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.
Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífshættulegan meðgöngusjúkdóm
4
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár