Boris biðst afsökunar – Enn á ný

Boris Johnson bað þingmenn enn á ný afsökunar í dag á því að hafa brotið sóttvarna­reglur á tímum heims­faraldurs COVID-19. Á fimmtudag verður sérstök umræða um Partygate þar sem þingmenn ákveða hvort aðkoma forsætis­ráðherra verði rannsökuð.

Boris Johnson, forsætisráðherra Bretlands, bað þingmenn enn einu sinni afsökunar á að hafa verið viðstaddur samkvæmi, þar á meðal eigin afmælisveislu, í Downingstræti á tímum strangra sóttvarnareglna vegna COVIID-19.
Boris Johnson, for­sæt­is­ráð­herra Bret­lands, bað þing­menn enn einu sinni afsök­unar á að hafa verið við­staddur sam­kvæmi, þar á meðal eigin afmæl­is­veislu, í Downingstræti á tímum strangra sótt­varna­reglna vegna COVIID-19. Mynd: EPA

Boris Johnson, forsætis­ráðherra Bretlands, ávarpaði þingmenn í fyrsta sinn í dag eftir að lögregla sektaði Johnson, Carrie Johnson eiginkonu hans og Rishi Sunak, fjármála­ráðherra Bretlands, fyrir að vera viðstödd afmælis­veislu forsætis­ráðherra sem fram fór í Downingstræti 10 19. júní 2020.

Eins og búist var við lagði Johnson áherslu á önnur mál, líkt og stríðið í Úkraínu, en Partygate-hneykslið svokallaða, enda var honum frjálst að gera það í þessu fyrsta ávarpi sínu til þingmanna eftir páskafrí. Keir Starmer, leiðtogi Verkamanna­flokksins, sá þó til þess að Partygate var rætt og sat hann á fremsta bekk í þing­salnum.

Líkt og Johnson hefur margsagt hvarflaði ekki að honum í eigin afmælis­veislu að hann væri að brjóta lög. „Það voru mín mistök og ég biðst innilegrar afsökunar á þeim,“ sagði Johnson í þingsal síðdegis. Hann sagði skilja reiðina og særindi sem hann olli og að almenningur eigi rétt á því að búast við meiru af eigin forsætis­ráðherra. Verklagi innan forsætis­ráðuneytisins hefur verið breytt vegna þessa að sögn forsætis­ráðherra.

Því næst sneri hann sér að stríðinu í Úkraínu og talaði um misheppnaðar ákvarðanir Rúss­lands­forseta en lofsamaði framgöngu Úkraínu­forseta sem hann segir einkennast af hugrekki. Langtíma­markmiðið að mati Johnson hlýtur að vera að styrkja Úkraínu svo Rússar dirfist ekki til að gera árás í líkingu við þessa á ný.

Johnson lauk ávarpi sínu á þeim orðum að starf hans felst í að tryggja öryggi þjóðarinnar og velmegun. „Og það mun ég halda áfram að gera,“ sagði Johnson.

„Þvílíkur brandari,“ voru viðbrögð Starmer, sem sagði afsökunar­beiðni forsætis­ráðherra loðna, almenningur væri nú þegar búinn að gera upp hug sinn og „tryði ekki orði sem hann segði“. „Hann er óheiðarlegur, ófær um breytingar og dregur alla niður í svaðið með sér,“ sagði Starmer.

Johnson ítrekaði afsökunar­beiðni sína en sagði hann og ríkis­stjórnina þurfa að halda áfram og sinna störfum sínum.

Líkti sekt Johnson við stöðumælasekt

Breska lög­­reglan hefur rann­sakað tólf sam­­kvæmi á vegum breskra yfir­­­valda á þeim tíma sem strangar sótt­­varna­­reglur voru í gildi vegna heims­far­ald­­urs kór­ón­u­veirunn­­ar. Fyrstu 20 sekt­irnar voru gefnar út í byrjun mán­að­ar­ins en þær telja nú 50 tals­ins og von er á fleir­um. John­son var búinn að gefa það út að hann hyggð­ist upp­lýsa um það yrði hann sektað­ur. Sem hann og gerði.

Johnson var viðstaddur að minnsta kosti tvö önnur samkvæmi af þeim tólf sem lögregla hefur til rann­sóknar. Hann gæti því átt von á fleiri sektum.

John­son er fyrsti sitj­andi for­sæt­is­ráð­herra Bret­lands sem er sektaður fyrir að brjóta gegn lög­um. Johnson, eiginkona hans og Sunak hafa öll beðist afsök­unar og greitt sekt­ina en þing­menn stjórn­ar­and­stöð­unnar krefj­ast þess að John­son og Sunak segi af sér.

Yfir 70 þingmenn Íhladsflokksins hafa lýst yfir stuðningi við Johnson, þar á meðal þingmenn sem áður höfðu krafist afsagnar hans vegna málsins. Nokkrir ráðherrar ríkis­stjórnarinnar hafa einnig lýst yfir stuðningi við Johnson, þar á meðal Brandon Lewis, ráðherra málefna Norður-Írlands, sem hefur líkt sekt Johnson við stöðumæla­sekt. Talsmaður forsætis­ráðherra er þó ekki tilbúinn til að taka undir þá viðlíkingu.

Sérstök umræða um Partygate og stöðu forsætisráðherra á fimmtudag

Stjórnar­andstöðu­flokkarnir halda því statt og stöðugt fram að Johnson hafi afvegaleitt þingmenn af ásettu ráði þegar hann sagði að gildandi sóttvarna­reglum hafi ávallt verið fylgt í forsætis­ráðuneytinu og í viðburðum á vegum þess.

Sérstök umræða um Partygate fer fram á breska þinginu á fimmtudag. Þetta staðfesti forseti þingsins, Lindsay Hoyle, í dag. Máls­hefjandi verður Keir Starmer, leiðtogi Verkamanna­flokksins, sem hefur farið hvað harðast fram í gagnrýni á Johnson.

Í umræðunni munu þingmenn ræða hvort vísa eigi máli forsætis­ráðherra vegna Partygate til fríðinda­nefndar þingsins (e. Privileges Committee) og hefja þannig rannsókn á hvort Johnson hafi vísvitandi afvegaleitt þingmenn. Verði það niður­staðan mun nefndin, sem skipuð er sjö þing­mönnum, fjórum þing­mönnum Íhalds­flokksins og þremur þing­mönnum stjórnar­andstöðunnar, meta hvort Johnson hafi af ásettu ráði afvegaleitt þingmenn í umræðum um samkvæmi á vegum stjórn­valda á tímum strangra sóttvarna­reglna.

Þingmenn munu í kjölfarið greiða atkvæði um tillögur nefndarinnar, sem gætu meðal annars falist í einhvers konar refsiaðgerðum gegn forsætis­ráðherra. Litlar líkur eru þó taldar á því að málinu verði vísað til nefndarinnar í ljósi tryggs meirihluta Íhalds­manna á þinginu. Heimildar­maður úr Verkamanna­flokknum segir í samtali við BBC að þingmenn Íhalds­flokksins sem svo mikið sem íhugi að greiða atkvæði gegn rannsókn á máli forsætis­ráðherra sé að greiða atkvæði með yfir­hylmingu.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár