Kína opnar dyrnar upp á gátt

Heimildir til erlendrar fjár­festingar í Kína voru rýmkaðar mikið í gær. Donald Trump Bandaríkja­forseti er nú á ferð um Asíu.

Stjórn­völd í Kína hafa ákveðið að rýmka heimildir fyrir erlend fjármála­fyrirtæki og eigna­stýringar­fyrirtæki til að starfa í Kína og munu þau geta átt allt að 51 prósent hlut í kínverskum fyrir­tækjum sem sinna þessari þjónustu.

Um stórt og mikið skref er að ræða í þá átt að markaðs­væða kínverskt fjármála­kerfi og markaðinn í heild, en kínverska ríkið heldur um flesta þræða í kínverska hagkerfinu og hefur takmarkað mikið umsvif erlendra fyrir­tækja í landinu.

Tilkynningin um þessa rýmkun virðist vera að koma mörgum á markaði á óvart, en samkvæmt umfjöllun Bloomberg er þetta álitið vera stórt skref í að styrkja viðskipta­samband Banda­ríkjanna og Kína, þar sem bandarísk stór­fyrirtæki, ekki síst bankar á Wall Street, hafa kvartað sáran undan því að geta ekki þjónustað viðskipti nema með takmörkuðu hætti, innan Kína.

Óhætt er að segja að fjármála­kerfið í Kína sé stórt og fyrir­ferðamikið, en það er metið á um 40 þúsund milljarða Bandaríkja­dala.

Nákvæmar útfærslur á því hvernig staðið verður að rýmkun heimild­anna hefur ekki komið fram ennþá, en viðskipta­ráðuneyti Kína hefur þegar gefið út að leið­beiningar um þessi mál verði birtar innan skamms.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár