Veit ekkert um mál múslimans og hefur ekkert aðhafst: „Ekki endilega víst að þetta mál heyri undir íslensk stjórnvöld“

Sigríður Á. Andersen, ráðherra vegabréfa­eftirlits- og lögreglu­mála, hefur ekki óskað skýringa, aflað sér upplýsinga né gripið til neinna ráðstafana vegna frétta af breskum ríkis­borgara sem var vísað frá borði í Keflavík.

Sigríður Á. Andersen dómsmála­ráðherra hefur ekki óskað skýringa né aðhafst með neinum hætti vegna frétta af breskum ríkis­borgara sem var vísað frá borði í Keflavík þegar hann milli­lenti á Íslandi þann 16. febrúar á leið til Banda­ríkjanna.

Maðurinn, sem er múslimi, var með lögmætt vegabréf og vegabréfa­áritun en málið hefur vakið talsverða athygli bæði í Bretlandi og á Íslandi enda er enn í gildi lögbann á umdeilda forseta­tilskipun Donalds Trump um að meina borgurum sjö múslima­ríkja um ferðir til Banda­ríkjanna. Maðurinn er velskur kennari og var á leið vestur um haf ásamt nemendum sínum.

Rósa Björk Brynjólfs­dóttir, þingkona Vinstri grænna, óskaði eftir skýringum frá ráðherra í óundirbúnum fyrir­spurnar­tíma á Alþingi í dag. Í svari sínu viðurkenndi Sigríður Andersen, dómsmála­ráðherra sem fer með málefni vegabréfs­eftirlits og lögreglunnar, að hún vissi ekkert um málið. 

„Ég hjó eftir þessum fréttum. Mér er hins vegar ekki kunnugt um hverju þetta sætir, þessi afgreiðsla, og hefði ég nú vitað af þessari fyrir­spurn þá hefði ég nú kannski mögulega verið búin að grafast fyrir um það,“ sagði hún. „En dómsmála­ráðuneytinu hefur ekki borist nein skýring á þessu og reyndar ekki verið óskað eftir því… mér sýnist nú að það sé ekki endilega víst að þetta mál heyri undir íslensk stjórn­völd eins og þau eru en það er væntanlega verið að kanna þetta í einhverju mögulegu samstarfi við utan­ríkis­ráðuneytið en í öllu falli heyrir þetta undir bresk stjórn­völd og samskipti þeirra við bandaríska utan­ríkis­ráðuneytið í Bretlandi.“

Rósa Björk harmaði að helsti yfirmaður dómsmála á Íslandi vissi ekkert um málið og benti á að lögregla og vegabréfaeftirilitið á Íslandi hefðu komið að málinu og heyrðu undir ráðherra.

Sigríður sagði: „Eins og fram kemur er þetta nýskeð og ég verð bara að viðurkenna það að þetta mál hefur ekkert komið inn á borð dómsmála­ráðuneytisins. Ég hef engar upplýsingar um þetta og íslensk stjórn­völd hafa engar upplýsingar um þessa ákörðun Bandaríkja­manna gagnvart þessum breska ríkis­borgara. Ég vona að hátt­virtur þingmaður virði mér það til vorkunnar að þetta er ekki beint eins og málið liggur á sviði ráðuneytisins, a.m.k. enn sem komið er.“ Þá bætti hún því við að sér þætti eðlilegt að ráðuneytið skoðaði þessi mál og það myndi ekki standa á sér að upplýsa um „tilvik sem þessi ef þau gerast tíðari á íslenskri grundu“. 

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.
Tengdar greinar

ACD-ríkisstjórnin

Fréttir

Unnu náið með hæsta­réttar­dómurunum meðan þeir dæmdu Arn­fríðar­mál

Arnfríður Einars­dóttir landsréttar­dómari starfaði sjálf sem vara­dómari með tveimur þeirra hæstaréttar­dómara sem tóku afstöðu um hæfi hennar og bærni til að kveða upp dóma á sama tíma og málið var til meðferðar. Hinir þrír sem valdir voru í Landsrétt í trássi við stjórn­sýslulög störfuðu einnig náið með hæstaréttar­dómurunum meðan Hæstiréttur tók fyrir mál sem hefði getað sett dómara­störf fjór­menninganna í uppnám.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár