Krugman: Bitcoin verðið augljós bóla

Paul Krugman, Nóbels­verðlauna­hafi í hagfræði, segir að markaður með Bitcoin sé drifin áfram af dulúð og vanskilningi á tækninni.

Paul Krugman, Nóbels­verðlauna­hafi í hagfræði, segir í viðtali við Business Insider að markaður með rafmyntina Bitcoin sé „augljós bóla“. Hann segir að það sem hafi ýtt undir verðið á rafmyntinni sé vanþekking á tækninni á bak við hana og dulúðin sem einkenni markaðinn. Enginn viti í reynd hvernig markaðurinn gangi nákvæmlega fyrir sig.

Nó­bels­verðlauna­haf­inn Paul Krugman seg­ir að verðhækk­an­ir raf­mynt­ar­inn­ar Bitco­in að undan­förnu stafi af því að eng­inn skilji í raun hvað hún sé og að fólk týn­ist í dulúð tækn­inn­ar.

„Það hef­ur ekki verið sýnt fram á að Bitco­in þjóni ein­hverj­um til­gangi í efna­hags­líf­inu,“ seg­ir Krugman.

Krugman segir enn fremur að væntanlega reikni flestar fjár­festar með því að græða mikið á þeirri miklu verð­hækkun sem verið hefur á markaði að undan­förnu, en það sé alveg öruggt að einhverjir muni sitja eftir með sárt ennið.

Verðið á Bitcoin hefur rokið upp á þessu ári, en sveiflurnar hafa þó einnig verið hraðar. Stundum hefur verðið lækkað mikið innan dags, og aðra daga hefur það rokið upp. Í lok dags í gær stóð verðið á Bitcoin einingu í 16.400 Bandaríkja­dölum, eða sem nemur 1,7 milljónum.

Það hefur fallið hratt í verði síðustu tvo daga, eða um 15 prósent, eftir að hafa verið í hæstu hæðum.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár