Trump hótar frekari tollum á Kína

Bandaríkja­forseti er ekki hættur í tolla­stríði gagnvart efnahags­veldum heimsins, og beinir nú sérstak­lega spjótum sínum að Kína.

Donald Trump Bandaríkja­forseti hefur hótað Kínverjum því að leggja frekari tolla á vörur sem fluttar eru til Banda­ríkjanna.

Eftir að samninga­viðræðum milli Kínverja og Bandaríkja­manna sigldu í strand, án þess að nokkuð hafi verið ákveðið með tolla, þá hefur Trump ákveðið að setja tolla alveg einhliða á Kínverja og því hafa Kínverjar nú svarað.

Samtals voru upphaf­legu tollarnir upp á 50 milljarða Bandaríkja­dala, eða sem nemur um 550 milljarða króna, en Kínverjar hafa þegar hótað að svara með sambærilegum tollum, meðal annars á mörg hundruð vöru­tegundir á sviði land­búnaðar og efna­framleiðslu ýmis konar.

Í umfjöllun breska ríkis­útvarpsins BBC segir að tollarnir sem Kínverjar ætla að svara Banda­ríkjunum með nái til 659 vöru­tegunda.

Í yfir­lýsingu frá Trump segir að Kínverjar verði að leggja meira af mörkum, við að bæta viðskipta­samband Kína og Banda­ríkjanna, svo að bandarískir hagsmunir verndist betur. Trump hefur ítrekað sagt að það halli of mikið á Banda­ríkin þegar kemur að viðskiptum við Kína.

Kínverjar segja að viðskipta­stríð með tollum og sértækum aðgerðum, til að vernda tiltekin fyrirtæki eða tiltekna geira í Banda­ríkjunum, muni ekki skila árangri.

Tollarnir sem Trump er að hóta nú eru upp á 10 prósent á innflutning vara upp á um 200 milljarða Bandaríkja­dala, og að sögn BBC gæti það valdið því að átökin við Kínverja muni stig­magnast enn meira.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár