Tíu sækjast eftir embætti May

Tvær kon­ur og átta karl­ar munu etja kappi um hver verður næsti leið­togi Íhalds­flokks­ins og for­sæt­is­ráð­herra Bret­lands. Theresa May steig til hliðar í síð­ustu viku en hún mun áfram gegna emb­ætt­inu þar til að nýr for­maður hefur verið skip­aður.

Theresa May, fráfarandi forsætisráðherra Bretlands.
Theresa May, frá­far­andi for­sæt­is­ráð­herra Bret­lands. Mynd: EPA

Þeir tíu fram­bjóð­endur sem freista þess að taka við sem for­maður breska Íhalds­flokks­ins og þar með for­sæt­is­ráð­herra Bret­lands hafa nú verið til­kynntir. Í hópnum eru alls átta karlar og tvær konur. Á meðal þeirra er Andrea Leadsom, sem laut í lægra haldi fyrir May í síð­asta for­manns­kjöri, og Boris Johnson fyrr­ver­andi utan­rík­is­ráð­herra. Frá þessu er greint á vef BBC.

Th­eresa May hætt­i form­lega sem leið­togi Íhalds­flokks­ins á föstu­dag­inn en hún mun hins veg­ar sitja áfram sem for­sæt­is­ráð­herra þar til eft­ir­maður henn­ar hef­ur verið skip­aður. Fyrsta atkvæða­greiðslan fer fram á meðal þing­manna flokks­ins næst­kom­andi fimmtu­dag, þann 13. júní. Raðir atkvæða­greiðslna fara síðan fram á meðal þing­manna Íhalds­flokks­ins þar til fram­bjóð­end­unum hefur verið fækkað niður í tvo. Þá fá flokks­með­limir Íhalds­flokks­ins, um 160 þús­und manns, að kjósa á milli þeirra tveggja fram­bjóð­enda sem eftir standa og hefst sú at­kvæða­greiðsla 22. júní. Mánuði síðar tek­ur nýr leið­togi við emb­ætti for­manns flokks­ins.

Þeir tíu íhalds­menn sem etja kappi um hver verður næsti leið­togi Íhalds­flokks­ins og for­sæt­is­ráð­herra Bret­lands eru eft­ir­far­andi.

  • Michael Gove, umhverf­is­ráð­herra í stjórn Theresu May
  • Matt Hancock, heil­brigð­is­ráð­herra
  • Mark Harper, fyrr­ver­andi þing­flokks­for­maður og ráð­herra
  • Jeremy Hunt, utan­rík­is­ráð­herra í stjórn Theresu May
  • Sajid Javid, inn­an­rík­is­ráð­herra í stjórn Theresu May
  • Boris Johnson, fyrr­ver­andi utan­rík­is­ráð­herra
  • Andrea Leadsom, fyrr­ver­andi leið­togi neðri deildar breska þings­ins
  • Esther McVey, fyrr­ver­andi atvinnu- og eft­ir­launa­ráð­herra
  • Dominic Raab, fyrr­ver­andi ráð­herra Brexit-mála
  • Rory Stewart, þró­un­ar­ráð­herra

Nýr for­maður Íhalds­flokks­ins tekur við kefl­inu í Brexit við­ræð­unum en frest­ur­inn til að ná sam­komu­lagi um for­sendur útgöng­unnar var fram­lengdur fram í októ­ber á þessu ári. Skiptar skoð­anir eru meðal fram­bjóð­end­anna tíu um hvernig best sé að haga útgöng­unni.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

2
Viðtal

Ef við kveðjum tungu­málið, þá týnum við vídd draumanna

Í sögu íslenskra bók­mennta í þús­und ár er lögð áhersla á raddir inn­flytj­enda, þá sem nú. Höf­und­ur­inn, Halldór Guð­munds­son, öðl­að­ist tveggja heima sýn ungur í Þýska­landi. Að læra lat­ínu frá 10 ára aldri lam­inn af kenn­ara sem skildi hann ekki, í sárum eftir heims­styrj­öld. Seinna spurði hann sig: „Hver má tala?" Í dag segir hann: „Íslend­inga­sögur dags­ins í dag eru að hluta til sagðar af fólki sem hingað hefur flutt."

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

5
Innlent

Hætta á að lánin hækki þó íbúða­verð lækki

Már Wolfgang Mixa hag­fræði­pró­fessor segir að stór hluti eigin fjár íbúða­eig­enda gæti þurrkast út á kom­andi mán­uðum. Verð­tryggðar fast­eigna­skuldir hækki í verð­bólgu­tíð sam­hliða því að íbúða­verð gæti lækkað. Hann leggur til að verð­tryggð hús­næð­is­lán fylgi íbúða­verði en ekki vísi­tölu neyslu­verðs. Þá myndu bank­arnir bera hluta áhætt­unnar.

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár