Mynd: EPA

Brexit áhættan magnast

Allra augu eru nú á Bret­landi. Hvernig mun útgangan úr Evr­ópu­sam­band­inu teikn­ast upp? Eða verður hætt við hana? Óvissan ein og sér er álitin mikil efna­hags­leg áhætta þessi miss­erin.

Í fyrstu setti Theresa May, frá­far­andi for­sæt­is­ráð­herra Bret­lands og leið­togi Íhalds­flokks­ins, það sem skil­yrði fyrir samn­inga­við­ræður við Evr­ópu­sam­bandið (ESB) að útgangan úr ESB yrði 29. mars. Eftir nær for­dæma­laus átök, þar sem ekki tókst að ná sam­komu­lagi um for­sendur útgöngu, var dag­setn­ing­unni seinkað til 12. apríl. Aftur fóru í gang mikil átök sem leiddu til þess að frest­ur­inn til að ná nið­ur­stöðu um for­sendur útgöngu var fram­lengdur fram í októ­ber.

Póli­tískir dagar May verða brátt taldir, en hún til­kynnti um að hún myndi hætta sem for­sæt­is­ráð­herra, tár­vot, fyrir framan Downingstræti 10, og lætur svo form­lega af emb­ætti í dag. Síðustu dagar hennar hafa ein­kennst af því að Donald Trump Banda­ríkja­for­seti hefur verið að hvetja til þess að Bretland haldi sig við það, að yfir­gefa ESB og á þeim grunni geti Bretland og Banda­ríkin eflt sam­starf sitt á sviði utan­rík­is­mála og við­skipta. “Það getur orðið stór­kost­legt sam­band” sagði Trump á blaða­manna­fundi.

Glundroði

Ef það er eitt­hvað orð sem lýsir því sem gerst hefur í breskum stjórn­málum eftir þjóð­ar­at­kvæða­greiðsl­una um Brexit, í júní 2016, þá er það glund­roði. Mjótt var á munum í kosn­ing­unum, 52 pró­sent með útgöngu, en 48 pró­sent á móti. Áberandi meiri stuðn­ingur var við útgöngu meðal eldra fólks á meðan ungt fólk studdi mun frekar áfram­hald­andi veru í ESB.

Nið­ur­staðan leiddi til sundr­ungar og glund­roða, sem ekki sér fyrir end­ann á ennþá. Hvaða við­horf sem fólk hefur til Brexit - þessa stóra hug­taks sem hefur snúið breskum stjórn­málum á hvolf - þá er ekki hægt að neita því að efna­hags­leg óvissa hefur auk­ist umtals­vert eftir kosn­ing­arnar 2016. Og sú áhætta nær til Íslands.

Í nýju Pen­inga­málum Seðla­banka Íslands er fjallað um stöðu Íslands í alþjóð­legu sam­hengi og er þar ekki síst vikið að Brexit. Mikil kúvend­ing hefur orðið í íslensku efna­hags­lífi til hins verra und­an­farin miss­eri, en spá Seðla­bank­ans gerir ráð fyrir að 0,4 pró­sent sam­dráttur verði í lands­fram­leiðslu á þessu ári. Til sam­an­burðar benda bráða­birgða­tölur Hagstofu Íslands til þess að hag­vöxtur í fyrra hafi verið 4,6 pró­sent og að 6.500 ný störf hafi orðið til frá upp­hafi árs til loka árs­ins. Sveifl­una á þennan mæli­kvarða má því mæla í um 7 þús­und störfum.

Óvissan um Brexit er umtals­verð, jafn­vel þó íslensk stjórn­völd hafi nú þegar samið um að við­skipta­kjör Íslands gagn­vart Bret­landi haldi sér. Áhættan er fólgin í því, hvað muni taka við þegar Bretland yfir­gefur ESB og hvaða for­sendur verði þá fyrir hendi, þegar kemur að við­skipta­sam­bandi við EES-svæðið.

Óvissan í kringum ferlið sem hófst með þjóð­ar­at­kvæða­greiðsl­unni hefur þegar dregið úr bjart­sýni og fjár­fest­ing­ar­vilja breskra fyr­ir­tækja og valdið því að bresk heim­ili halda í vax­andi mæli að sér höndum varð­andi hús­næð­is­kaup, að því er segir í Pen­inga­málum Seðla­banka Íslands, þar sem fjallað er ítar­lega um stöðu efna­hags­mála í heim­inum.

„Fjöldi fyr­ir­tækja hefur fært starf­semi sína til meg­in­lands­ins eða íhuga að gera það og farið er að bera á því að fyr­ir­tæki, sér­stak­lega í þjón­ustu­iðn­aði, séu farin að halda að sér höndum varð­andi ráðn­ingar. Nokkuð hefur því hægt á hag­vexti í Bret­landi og hag­vaxt­ar­horfur eru lak­ari en þær voru áður,” segir meðal ann­ars í Pen­inga­málum. Á fyrstu þremur mán­uðum árs­ins var hag­vöxt­ur­inn í Bret­landi 1,8 pró­sent, en síðan þá hafa mæl­ingar á gangi efna­hags­mála sýnt að hallað hefur hratt undan fæti - svipað og gerst hefur á Íslandi.

Í Pen­inga­málum Seðla­bank­ans segir að nær allar grein­ingar sem unnar hafi verið á Brexit, bendi til þess að útganga án samn­ings geti haft veru­lega miklar afleið­ingar, ekki aðeins fyrir Bretland heldur efna­hag heims­ins.

Framleiðslukeðjur slitna

Þó flestir spái því, að það verði ekki látið ger­ast, að Bret­landi gangi úr ESB án samn­ings eða ítar­legrar áætl­unar um hvernig eigi að takast á við það, þá er heldur ekk­ert sem segir að það geti ekki gerst. Sé litið yfir atburði síð­ustu mán­aða, þá liggur fyrir að engin áætlun, sem hefur nægi­lega mik­inn stuðn­ing stjórn­mála­manna, getur orðið leið­ar­vísir út úr stöð­unni.

Afleið­ingar útgöngu án samn­ings eru taldar veru­lega alvar­legar.

„Líklegt er að við­skipti milli Bret­lands og ESB yrðu erf­ið­ari og dýr­ari og fram­leiðslu­keðjur þvert á landa­mæri yrðu í upp­námi. Þetta, ásamt hindr­unum á för vinn­andi fólks yfir landa­mæri, er lík­legt til að hafa nei­kvæð áhrif á fram­leiðni­vöxt og hag­vaxt­ar­getu þjóð­ar­bús­ins. Við bæt­ist aukin óvissa og hækk­andi áhættu­á­lag á fjár­skuld­bind­ingar sem lík­lega hægir enn frekar á inn­lendri eft­ir­spurn. Gengi punds­ins myndi að öllum lík­indum lækka sem myndi leiða til hækk­unar inn­flutn­ings­verðs og haldi kjöl­festa verð­bólgu­vænt­inga ekki gæti Eng­lands­banki þurft að hækka vexti til að halda verð­bólgu í skefjum sem myndi dýpka efna­hags­sam­drátt­inn enn frekar. Breska þjóð­hags­stofn­unin, NIESR, hefur birt mat á þjóð­hags­legum áhrifum útgöngu Breta án samn­ings á breskan efna­hag. Samkvæmt nið­ur­stöðum þeirra gæti breska pundið lækkað um u.þ.b. 10% og lands­fram­leiðslan í Bret­landi minnkað um lið­lega 3% fram til árs­ins 2022 í sam­an­burði við útgöngu sem fæli í sér að meg­in­hluta núver­andi sam­bands Bret­lands og ESB yrði við­haldið næstu ár,” segir í Pen­inga­málum.

Eins og hér sést, þá hefur heildarverðmæti dregist nokkuð saman, á undanförnum árum, samhliða styrkingu krónunnar og mikill sókn ferðamanna til landsins. Sveiflan frá 2013 til 2017 er 75 milljarðar niður á við. Nú hefur gengið krónunnar hins vegar veikst nokkuð, gagnvart Bandaríkjadal og evru, en aðstæður á mörkuðum hafa hins vegar sjaldan verið meira krefjandi en nú.
Eins og hér sést, þá hefur heild­ar­verð­mæti dreg­ist nokkuð saman, á und­an­förnum árum, sam­hliða styrk­ingu krón­unnar og mik­ill sókn ferða­manna til lands­ins. Sveiflan frá 2013 til 2017 er 75 millj­arðar niður á við. Nú hefur gengið krón­unnar hins vegar veikst nokkuð, gagn­vart Banda­ríkja­dal og evru, en aðstæður á mörk­uðum hafa hins vegar sjaldan verið meira krefj­andi en nú.

Bretland hefur í gegnum tíð­ina verið eitt stærsta við­skipta­land Íslands. Sé miðað við töl­urnar í fyrra var Bret­lands­mark­aður með um 10 pró­sent hlut­deild í útflutn­ingi, en þar vega við­skipti með sjáv­ar­af­urðir þungt. Evru­svæðið allt er með 45 pró­sent hlut­deild í útflutn­ingi. Samkvæmt því sem fram kemur í Pen­inga­málum er áhættan vegna Brexit því veru­lega mikil, þar sem við­skipta­sam­band Bret­lands við Evrópu er mik­il­vægt okkar hags­munum.

Verið að hræra í stoðum ESB?

Í Bret­landi búa 66 millj­ónir en evru­svæðið er með 340 millj­ónir íbúa.

Áhrifin af útgöngu Breta úr ESB án samn­ings á útflutn­ing héðan gætu orðið nokkur og versta sviðs­myndin veru­lega dökk.

Þar fara saman minnk­andi umsvif - þar sem veru­lega myndi draga úr eft­ir­spurn með til­heyr­andi áhrifum á verð­lag, t.d. sjáv­ar­af­urða - og síðan upp­brot á við­skipta­sam­böndum milli ríkja. Seinna atriðið er talið sér­stak­lega mik­il­vægt mál fyrir ESB, enda byggir efna­hags­legt sam­starf á víð­tæku við­skipta­sam­bandi allra ríkja ESB og síðan sam­bandi svæð­is­ins við önnur mark­aðs­svæði.

Í umfjöllun í Pen­inga­málum Seðla­bank­ans segir að lækkun á gengi punds­ins, geti enn fremur dregið úr sam­keppn­is­hæfni útflutn­ings­fyr­ir­tækja á Íslandi, þegar kemur að breska mark­aðnum, en flestar spár gera ráð fyrir að tölu­verð lækkun verði á gengi punds­ins komi til þess að Bretland fari úr ESB án samn­ings. Samkvæmt mati NIESR, þjóð­hags­stofnun Bret­lands, gæti sam­dráttur í lands­fram­leiðslu orðið á evru­svæð­inu um 0,8 pró­sent, bara vegna Brexit. Þessi áhrif eru mæld í tug­þús­undum starfa og fara ein­staka geirar verr út úr þessum áhrifum en aðrir.

Guðlaugur Þór Þórðarson er utanríkisráðherra Íslands.
Guð­laugur Þór Þórð­ar­son er utan­rík­is­ráð­herra Íslands.

Útganga Breta án samn­ings myndi einnig hafa áhrif á önnur lönd, þ.á m. Ísland. Í Pen­inga­málum segir: „Miðað við mat NIESR á hag­vaxt­ar­á­hrifum útgöngu Breta án samn­ings á efna­hags­um­svif í Bret­landi og á evru­svæð­inu má áætla að lands­fram­leiðsla á evru­svæð­inu gæti minnkað um 0,6% fram til árs­ins 2022 og um 0,8% meðal helstu við­skipta­landa Íslands. Áhrifin af útgöngu Breta úr ESB án samn­ings á útflutn­ing héðan gætu því orðið nokkur. Við bæt­ist tæp­lega 1% hækkun raun­gengis vegna geng­is­lækk­unar punds­ins, aukin alþjóð­leg óvissa og mögu­leg smitá­hrif hækk­andi vaxta­á­lags á fjár­mála­leg skil­yrði hér á landi,” segir í Pen­inga­málum.

Ekkert vanmat

Þrátt fyrir að ýmsar áhyggju­raddir hafi lengi heyrst, vegna þró­unar mála þegar kemur að Brexit og hvernig málið hefur þró­ast í breskum stjórn­málum, þá eru mörg íslensk fyr­ir­tæki búin að greina vel hver áhrifin gætu orðið á rekstur á Íslandi. Þetta á meðal ann­ars við um íslenskan sjáv­ar­út­veg, sem á mikið undir því að halda áfram góðu við­skipta­sam­bandi við Bret­lands­markað, hvað sem Brexit líður.

Við­mæl­endur Kjarnans í íslenskum sjáv­ar­út­vegi sögðu einnig að tollar, við­skipta­bönn og óvissa vegna stjórn­mála­legrar áhættu, væru núna ein mesta óvissan þegar kæmi að rekstri íslenskra fyr­ir­tækja.

T.d. hefur lokun Rúss­lands­mark­aðar, með við­skipta­banni sem nær til Íslands, haft mikil nei­kvæð áhrif á sölu mak­ríls, tolla­stríð Banda­ríkj­anna og Kína hefur valdið því að margir fjár­festar og fyr­ir­tæki halda að sér höndum, og Brexit-málið í Bret­landi hefur verið eins og olía á eld þegar kemur að stjórn­mála­legri áhættu. Í slíkum aðstæðum er erfitt að gera lang­tíma­á­ætl­anir og við­halda fjár­fest­ingu í nýjum tæki­færum og við­skipta­þróun.

Veruleg þörf er á því að náið sé fylgst með því, hvernig fram­vinda Brexit verður, á næstu mán­uðum. Ekki er nóg að hafa gert jákvætt sam­komu­lag við stjórn­völd í Bret­landi, því það eitt og sér er algjört auka­at­riði við hlið­ina á mögu­legum miklum nei­kvæðum afleið­ingum af upp­broti á gang­verki alþjóða­við­skipta í Evrópu, eins og margir telja að geti gerst ef Bretland gengur úr ESB án þess að for­send­urnar verði traustar og gagn­sæjar.

Það sem helst getur unnið með íslenskum sjáv­ar­út­vegi er að hann er tækni­vædd­ari en víða ann­ars staðar í heim­inum, og mikil reynsla er innan grein­ar­innar hér á landi að takast við sveiflur og erf­ið­leika. Þörf gæti hins vegar verið á mun meiri og sam­stillt­ari mark­aðs­sókn, heldur en til þessa hefur verið stunduð. Ef dyrnar lok­ast að hluta að einum mark­aði verður að reyna að opna nýjar.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið undanfarið ár