Bandaríkin opna á einkafjárfestingar í Norður-Kóreu

Utan­ríkis­ráðherra Banda­ríkjanna segir að Norður-Kórea þurfi á hjálp að halda við að byggja upp innviði í orkumálum.

Mike Pompeo, nýr utan­ríkis­ráðherra Banda­ríkjanna, hefur gefið út að opnað verði á fjár­festingar einka­fyrirtækja í Norður-Kóreu, einkum á sviði orkumála.

Þetta er meiriháttar stefnu­breyting á viðskipta­sambandi þessara óvina­ríkja, en svo virðist sem tekist hafi að draga úr spennunni á Kóreguskaga, stuðla að sterkara vina­sambandi Norður- og Suður-Kóreu, og sannfæra yfirvöld í Norður-Kóreu um mikilvægi alþjóðlegrar fjár­festingar.

Innviðir Norður-Kóreu á sviði orku­mannvirkja eru veikir. „Þetta mun snúast um að bandarískir fjár­festar komi inn - ekki hið opinbera, heldur einka­fjárfestar - og hjálpi til við uppbyggingu í orku­geiranum,“ segir Pompeo í viðtali við breska ríkis­útvarpið BBC.

Hann segir að Kim Jong Un, leiðtogi Norður-Kóreu, fylgist vel með vestrænum fjöl­miðlum, en eins og kunnugt er, þá er framundan fundur Donald Trump og Kim Jong Un í Singapúr, þar sem vonast er til þess að stigin verði skref í átt að enn ríkara vina­sambandi Banda­ríkjanna við Norður-Kóreu, og minnkandi spennu í Asíu.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár