Ítalska bankakerfið á barmi hruns

Forsætis­ráðherra Ítalíu segir að umfangs­miklar aðgerðir ítalska ríkisins, til að styrkja banka­kerfið, hafi verið nauðsynlegar.

Mario Draghi, bankastjóri seðlabanka Evrópu
Mario Draghi, banka­stjóri seðla­banka Evrópu Mynd: EPA

Ítalska banka­kerfið stendur á brauð­fótum og hefur ítalska ríkið gripið til umfangs­mikilla aðgerða til að koma í veg fyrir bankahrun í landinu. Seðla­banki Evrópu, með Ítalann Mario Draghi sem æðsta stjórn­anda, varaði við því að tveir bankar, Banca Popolare di Vicenza og Veneto Banca, stæðu illa og væru við það að falla.

Samkvæmt breska ríkis­útvarpinu BBC hefur ítalska ríkið þurft að reiða fram 5,2 milljarða evra, eða sem nemur um 608 milljörðum króna, miðað við núverandi gengi.

Paolo Gentiloni, forsætis­ráðherra Ítalíu, sagði aðgerðirnar nauðsynlegar til að tryggja öryggi innstæðu­eigenda og einnig senda rétt skilaboð um að ítalska ríkið myndi styðja við banka­kerfi landsins, ef þess þyrfti. 

Talið er að ítalska banka­kerfið sé ennþá með mikil vandamál óleyst, en slæm lán innan þess, það er lán sem líklegt er að tapist, séu upp á um 350 milljarða evra, eða sem nemur um 41 þúsund milljörðum krónum. Það er upphæð sem nemur um þriðjungi af öllum slæmum lánum í Evrópu, samkvæmt mati Seðla­banka Evrópu.

Ítalía er stærsta hagkerfi Suður-Evrópu með 59,8 milljónir íbúa.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár