Áreiðanlegir fjölmiðlar munu fá aukið vægi

Mark Zuckerberg heldur áfram að boða miklar breytingar á frétta­straumi notenda Facebook.

Mark Zuckerberg, forstjóri og stofnandi Facebook, segir í stöðu­uppfærslu á Facebook síðu sinni að stefnt sé að því að minnka vægi frétta- og efnis­veita í frétta­straumi notenda, en á sama tíma að auka vægi þeirra fjölmiðla sem teljast áreiðanlegir.

Stefnt er að því að útfæra það nánar, hvernig notendur munu geta metið áreiðanleika fjölmiðla, og gefið þeim vægi eftir trúverðug­leika frétta. Þetta verður meðal annars gert í gegnum kannana­kerfi Facebook, að því er segir í stöðu­uppfærslu Facebook.

Markaðs­virði Facebook nemur nú 527 milljörðum Bandaríkja­dala, eða sem nemur 53 þúsund milljörðum króna.

Með þessu móti á að draga úr vægi myndbanda og ýmissa skilaboða frá Facebook-síðum, en þó á breytingin ekki að vera meiri en svo í fyrstu að hlutfall frétta­tengds efnis fari niður í fjögur prósent af heildar­umferð en núna er það rúmlega 5 prósent.

Innri breytingin, það er samsetning þess efnis sem notendur munu deila, er þó talin geta falið í sér mikla breytingu fyrir umferð á frétta­síður.

Zuckerberg hefur áður gefið það út, að hann vilji að frétta­straumurinn verði meira fyrir efni frá vinum og fjölskyldu­meðlimum notenda, heldur en nú er, og vill með því reyna að stuðla að meiri gæðaumræðu á Facebook heldur en raunin hefur verið. „Samskipta­miðlar gera fólki mögulegt að dreifa upplýsingum hraðar og ef við tökumst ekki á við þessi vandamál munum við óhjá­kvæmilega magna þau upp. Þess vegna er það mikilvægt að frétta­veitan lyfti gæða­fréttum sem stuðla að sameiginlegum grunni,“ segir Zuckerberg.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár