Sjö stjórnarþingmenn og einn ráðherra tóku þátt í umræðum um „langstærsta málið“

Umræðu um fjármála­stefnu ríkis­stjórnarinnar er lokið en fáir stjórnar­liðar lögðu orð í belg.

Umræðu um fjármála­stefnu ríkis­stjórnarinnar lauk í kvöld en Benedikt Jóhannesson, fjármála- og efnahags­ráðherra, hefur lýst stefnunni sem „lang­stærsta málinu“ sem ríkis­stjórnin leggur fram á yfir­standandi þingi.

Benedikt er hins vegar eini ráðherra ríkis­stjórnarinnar sem hefur séð ástæðu til að tjá sig um fjármála­stefnuna á Alþingi. 

Þingmenn stjórnar­andstöðunnar hafa bent á að fjármála­stefnan varði málefna­svið allra ráðuneyta. Því sé eðlilegt að ráðherrar taki þátt í umræðum um hana eða séu að minnsta kosti viðstaddir meðan umræðan fer fram. 

Í hinni lögbundnu fjármála­stefnu er fjármálum hins opinbera markaður rammi til næstu fimm ára. „Ég hef talað um að líklega sé fjármála­stefnan lang­stærsta málið sem ríkis­stjórnin leggur fram núna í vor, en hún vekur litla athygli því að hún er frekar ,,leiðinlegt“ mál. Hún er ramminn utan um ríkis­útgjöld og í henni boðaði ég mikla niður­greiðslu skulda og aukinn afgang á fjárlögum næstu árin,“ sagði Benedikt Jóhannesson í Facebook-færslu þegar hann kynnti fjármála­stefnuna í febrúar. 

Stjórnar­andstaðan hefur gagnrýnt fjármála­stefnu Benedikts harðlega og hvatt til þess að brugðist sé við athuga­semdum fjármála­ráðs áður en stefnan er samþykkt.

Auk Benedikts hafa aðeins sjö þingmenn stjórnar­meirihlutans blandað sér í umræðuna um fjármála­stefnuna. Þetta eru þau Pawel Bartoszek, Áslaug Arna Sigurbjörns­dóttir, Haraldur Benediktsson, Njáll Trausti Friðbertsson, Hanna Katrín Friðriksson, Theodóra S. Þorsteins­dóttir og Hildur Sverris­dóttir.

Jafnframt lagði Bryndís Haralds­dóttir, þingkona Sjálfstæðis­flokksins, orð í belg þegar rætt var um fundar­stjórn forseta til að benda þing­mönnum á að eflaust væru sumir stjórnar­liðar að horfa á umræðurnar í sjón­varpinu. 

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.
Tengdar greinar

ACD-ríkisstjórnin

Fréttir

Unnu náið með hæsta­réttar­dómurunum meðan þeir dæmdu Arn­fríðar­mál

Arnfríður Einars­dóttir landsréttar­dómari starfaði sjálf sem vara­dómari með tveimur þeirra hæstaréttar­dómara sem tóku afstöðu um hæfi hennar og bærni til að kveða upp dóma á sama tíma og málið var til meðferðar. Hinir þrír sem valdir voru í Landsrétt í trássi við stjórn­sýslulög störfuðu einnig náið með hæstaréttar­dómurunum meðan Hæstiréttur tók fyrir mál sem hefði getað sett dómara­störf fjór­menninganna í uppnám.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár