Pútín berst við verðbólgu og hækkar skatta

Enginn hagvöxtur og há verðbólga hrjá Rússland.

Vladimir Pútín
Vladimir Pútín Hér á fjar­fundi í gær hjá For­seta­ráði um þróun borg­ara­legs sam­fé­lags og mann­rétt­inda, sem helgar sig bar­áttu fyrir rétt­indum og frelsi í Rúss­landi. Mynd: AFP

Rússland tilkynnti um mesta samdrátt í árlegri verðbólgu það sem af er ári, samkvæmt gögnum frá hagstofu ríkisins í dag, þar sem háir vextir kæla niður stríðs­hagkerfið.

Aukin hernaðar­útgjöld höfðu valdið þenslu í rússneska hagkerfinu í tvö ár eftir að Rúss­landsher réðst inn í Úkraínu.

En þau ýttu einnig undir verðbólgu, sem nú hefur áhrif á hagvöxt, þar sem fyrirtæki kvarta undan háum lántöku­kostnaði sem þau segja að haldi aftur af hagkerfinu.

Samkvæmt tölum sem hagstofan Rosstat birti lækkaði árleg verðbólga í nóvember í 6,6 prósent saman­borið við 7,7 prósent mánuðinn á undan.

Í síðasta mánuði sagði Rosstat að hagvöxtur landsins hefði verið nálægt núlli á þriðja ársfjórðungi, á meðan seðla­bankinn bjóst við að halda vöxtum hærri lengur vegna þrálátrar verðbólgu.

Seðla­bankinn gerir ráð fyrir að árleg verðbólga muni ekki ná fjögurra prósenta markmiði sínu fyrr en árið 2027.

Til að fylla upp í göt í þvinguðum ríkis­fjármálum Rússlands eru stjórn­völd í Kreml að leita leiða til að seilast í vasa borgara og fyrir­tækja til að brúa fjárlagagat sem nemur um 50 milljörðum dala, sem jafn­gildir um 6,4 billjónum króna, eða um 6.400 milljörðum króna, það sem af er ári.

Vladimír Pútín forseti samþykkti nýlega að hækka virðis­aukaskatt (VSK) í 22 prósent úr 20 prósentum á næsta ári, en sami skattur er 24% á Íslandi.

Lægra olíuverð var einnig áskorun fyrir fjárlögin, en jarðefna­eldsneyti skilar tæplega fimmtungi af tekjum ríkisins.

Kjósa
17
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Úkraínustríðið

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár