Google sektað um 278 milljarða króna

Evrópu­sambandið hefur sektað leitarvélar­risann um metfjárhæð fyrir að hafa misnotað markaðs­yfirburði sína.

Google hefur verið sektað um 2,4 milljarðar evra, um 278 milljarða króna, af Evrópu­sambandinu fyrir að misnota markaðs­ráðandi stöðu sína á leitarvélar­markaði til að byggja upp netsölustarfsemi fyrir­tækisins. Frá þessu er greint á vef The Guardian.

Rannsókn málsins hefur staðið yfir í sjö ár. Samkeppnis­yfirvöld Evrópu­sambandsins hafa gefið Google 90 daga til að hætta hinni ólögmætu starfsemi. Geri fyrir­tækið það ekki muni dagsektir upp á fimm prósent af daglegri veltu Alphabet, móður­félags Google, leggjast á til viðbótar.

The Guardian hefur eftir Margrethe Vestager, framkvæmda­stjóra samkeppnis­mála innan Evrópu­sambandsins, að við uppbyggingu á netsölustarfsemi sinni hafi Google ekki einungis reynt að ná í viðskipta­vini með því að bjóða bestu vöruna. Google hafi einnig notað yfirburði sína á leitarvélar­markaðnum til að gera sínum netsölu­lausnum hátt undir höfði og gera minna úr lausnum samkeppnis­aðila.

Google neitar sök í málinu.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár