Fjármagnstekjur Íslendinga rúmur fjórðungur þess sem þær voru í aðdraganda hrunsins

Árið 2007 voru þær tekjur sem landsmenn höfðu af fjármagni 444 milljarðar króna. Árið 2020 voru þær 125 milljarðar króna. Breyting á frítekju­marki gerði það að verkum að nokkur þúsund fjármagns­eigendur fengu myndar­legan skatt­afslátt.

Íslendingar þénuðu 124,6 milljarða króna í fjármagns­tekjur á árinu 2020. Það var 9,4 milljörðum krónum minna en árið áður og tekjurnar drógust saman um sjö prósent. Þar spiluðu áhrif kórónu­veiru­faraldursins stóra rullu en arðgreiðslur, leigu­greiðslur og vaxta­tekjur drógust allar saman vegna beinna áhrifa hans. Búast má við því að þær hafi hækkað á ný á árinu 2021 þar sem arðgreiðslur tók aftur við sér af krafti, eftir­spurn eftir leigu­húsnæði, sérstak­lega íbúðar­húsnæði, jókst að nýju og vextir tóku að hækka úr sögulegri lægð.

Þetta kemur fram í umfjöllun um álagn­ingu ein­stak­linga á árinu 2021 í Tíund, frétta­blaði Skatts­ins, sem Páll Kol­beins rekstr­ar­hag­fræð­ingur skrif­ar.

Þar fjallar hann um að fjármagns­tekjur hafi aukist mjög hratt í aðdrag­anda hrunsins og að á árinu 2007 hafi þær verið 444 milljarðar króna. Eftir banka­hrunið drógust þær skarpt saman og voru til að mynda 80,6 milljarðar króna árið 2011. Frá þeim tíma jukust þær ár frá ári fram til ársins 2018, þegar þær minnkuðu um 21,2 prósent.

Í umfjöllun Páls segir að að miklar sveiflur í fjármagns­tekjum megi rekja til sölu­hagnaðar og arðgreiðslna sem aukast í góðæri en minnki skarpt um leið og harðnar á dalnum. Vert er að taka fram að í þessum tölum er ekki talin með hlutdeild hvers og eins í lífeyris­sjóðum landsins, en þeir eiga um 6.600 milljarða króna í eignum og stærstan hluta allra íslenskra verðbréfa.

Fjármagnstekjur drógust saman

Þeir sem græða á því að nota peninganna sína í fjár­festingar borga fjármagns­tekjuskatt. Sá skattur er 22 prósent, sem er mun lægra hlutfall en greitt er af t.d. launa­tekjum, þar sem skatt­hlutfallið er frá 31,45 til 46,25 prósent eftir því hversu háar tekjurnar eru.

Nokkrar breytingar voru gerðar í álagningu fjármagns­tekjuskatts milli ára. Nú þarf til að mynda ekki að greiða skatt af vöxtum, arði og sölu­hagnaði hluta­bréfa á skipulegum verðbréfa­markaði sem var undir 300 þúsund krónum og frítekju­mark hjóna var 600 þúsund krónur.

Auk þess er einungis helmingur af útleigu íbúðar­húsnæðis til búsetu leigjanda og sem fellur undir húsa­leigulög skatt­skyldur ef ein íbúð er leigð út.

Alls greiddu 25.389 fram­teljendur 22,5 milljarða króna í fjármagns­tekjuskatt vegna ársins 2020. Það var 11,2 prósent minna en árið áður, og tekjur ríkis­sjóðs vegna hans drógust saman um 2,9 milljarða króna. Áður­nefndur skatt­afsláttur, spilaði þar rullu en Páll bendir á að skatturinn hafi minnkað meira en skatt­stofninn. Það megi „ætla að skatta­breytingarnar hafi létt fjármagns­tekjuskatti af um 14.361 fjöl­skyldum.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár