Eigið fé landsmanna í húsnæði dróst saman í fyrsta sinn frá árinu 2010

Húsnæði á Íslandi var metið á 5.941 millj­arða króna í árs­lok 2020. Á tíunda ára­tugnum dugðu tvö­faldar heild­ar­tekjur lands­manna til að kaupa upp allar fast­eignir og lóðir í land­inu. Í lok árs 2020 hefði þurft þre­faldar tekjur þeirra til að gera slíkt.

Verð á húsnæði á höfuðborgarsvæðinu hefur hækkað gríðarlega á síðustu árum.
Verð á hús­næði á höf­uð­borg­ar­svæð­inu hefur hækkað gríð­ar­lega á síð­ustu árum. Mynd: Pexels

Virði hús­næðis á Íslandi, sam­kvæmt fast­eigna­mati, var metið á 5.941 millj­arð króna í lok árs 2020 og hækk­aði um 120 millj­arða króna milli ára. Þeim fjöl­skyldum sem áttu hús­næði fjölg­aði um 3.803 og voru 113.167 í lok áður­nefnds árs.

Eigið fé lands­manna í íbúð­ar­hús­næði rýrn­aði hins vegar um 17,1 millj­arð króna, eða 0,4 pró­sent, milli ára. Það er í fyrsta sinn í ára­tug sem það ger­ist, en árið 2010 voru Íslend­ingar enn að takast á við marg­hátt­aðar afleið­ingar banka­hruns og mikið upp­gjör stóð yfir. Þannig hátt­aði málum ekki á árinu 2020.

Ástæða þessa er að skuldir vegna íbúð­ar­kaupa juk­ust mikið, eða alls um 136,8 millj­arða króna. Það er vöxtur um 8,2 pró­sent frá árinu 2019. Skuld­irnar juk­ust fjór­falt hraðar en eignir lands­manna í íbúð­ar­hús­næði á árinu 2020.

Þetta kemur fram í umfjöllun um álagn­ingu ein­stak­linga á árinu 2021 í Tíund, frétta­blaði Skatts­ins, sem Páll Kol­beins rekstr­ar­hag­fræð­ingur skrif­ar.

Erfiðara að kaupa íbúðir

Þar skrifar hann að fast­eignir hafi orðið dýr­ari með árunum og að erf­ið­ara hafi orðið fyrir fólk að kaupa íbúðir. „Á tíunda ára­tugnum dugðu tæpar tvö­faldar heild­ar­tekjur lands­manna til að kaupa upp allar fast­eignir og lóðir sem voru taldar fram á skatt­fram­tölum. Á upp­gangs­ár­unum fyrir hrun hækk­aði íbúð­ar­verð nokkuð miðað við tekj­urnar en árið 2005 þurfti 2,4 árs­tekjur til að kaupa upp allar fast­eignir í eigu ein­stak­linga. Þetta hlut­fall lækk­aði nokkuð í hrun­inu en hækk­aði síðan aftur þegar landið fór að rísa og hélst síðan stöðugt fram til árs­ins 2017 en þá fór íbúð­ar­verð aftur að hækka miðað við tekj­urnar.“

Árið 2020 þurfti tæpar þre­faldar árs­tekjur lands­manna til að kaupa upp fram­taldar fast­eignir. Í umfjöllun Páls er þó bent á að sölu­verð fast­eigna og þar með sölu­hagn­aður, hafi áhrif á kaup­verðið. „Sölu­hagn­aður af íbúð­ar­hús­næði er ekki tekju­færður. Þótt að tekjur séu flæði­stærð og eignir stofn­stærð segir þessi sam­an­burður engu að síður nokkuð um þróun fast­eigna og tekna á skatt­fram­tölum.“

Aðgerðir stjórnvalda ýttu undir skuldsetningu

Ástæður þess að skuld­setn­ing lands­manna hafi auk­ist svona mikið á að stórum hluta rætur sínar að rekja til aðgerða stjórn­valda og Seðla­banka Íslands til að bregð­ast við efna­hags­legum afleið­ingum kór­ónu­veiru­far­ald­urs­ins. Seðla­bank­inn lækk­aði stýri­vexti niður í 0,75 pró­sent sam­hliða því að hann afnám sveiflu­jöfn­un­ar­auka á banka og ríkið lækk­aði banka­skatt um millj­arða króna. Hið nýja svig­rúm til útlána nýttu bank­arnir fyrst og síð­ast til að lána til íbúð­ar­kaupa. Sparn­aður lands­manna hrann­að­ist á sama tíma upp vegna þess að ómög­u­­legt var að eyða honum t.d. í ferða­lög vegna ferða­tak­mark­ana, og samn­ings­bundnar launa­hækk­­­anir tóku gild­i. Kaup­máttur lands­manna jókst því mikið sem þýddi að geta þeirra til að skuld­setja sig varð meiri.

Hlut­­deild banka í úti­stand­andi íbúða­lánum er nú um 70 pró­­sent en var 55 pró­­sent í byrjun árs 2020. Á sama tíma hefur vaxta­munur bank­anna þriggja: Lands­bank­ans, Arion banka og Íslands­banka hald­ist svip­aður en hagn­aður þeirra stór­auk­ist.

Þar sem fram­boð var langtum minna en eft­ir­spurn var afleið­ingin sú að hús­næð­is­verð hækk­aði gríð­ar­lega og skuld­setn­ingin sem margir þurftu að gang­ast undir til að eign­ast þak yfir höf­uðið auk­ist sam­hliða. Frá byrjun árs í fyrra hefur verð á hús­næði á höf­uð­borg­ar­svæð­inu til að mynda hækkað um 24 pró­sent.

Rúmlega 30 prósent fjölskyldna eiga skuldlaust húsnæði

Það eru þó ekki allir að skuld­setja sig í botn til að eign­ast hús­næði. Alls 34.737 fjöl­skyldur bjuggu í skuld­lausu hús­næði í lok árs 2020. Það er 30,7 pró­sent allra fjöl­skyldna, en í umfjöllun Páls kemur fram að þetta hlut­fall hafi ekki verið hærra síðan um miðjan tíunda ára­tug síð­ustu aldar.

Þótt skuld­irnar hafi hækkað umtals­vert á árinu 2020 þá dróst sú upp­hæð sem greidd var í vexti umtals­vert saman. Ástæðan eru áður­nefndar stýri­vaxta­lækk­anir Seðla­banka Íslands sem lækk­aði vexti niður í 0,75 pró­sent vorið 2020, sem eru lægstu vextir Íslands­sög­unnar. Fyrir vikið lækk­uðu vaxta­greiðslur heim­il­anna af íbúða­lánum um 6,6 millj­arða króna á umræddi ári, þegar þeir greiddu 73,1 millj­arða króna í vexti af íbúða­lánum. Með­al­vaxta­greiðsla var um 889.009 krónur sem eru lægstu með­al­vextir sem hafa sést síðan árið 2003.

Búast má við því að þessar tölur hafi breyst skarpt á árinu 2021. Eðl­is­breyt­ing varð á lán­­tökum lands­­manna sam­hliða lækkun vaxta. Sú eðl­is­breyt­ing fólst aðal­lega í því að fólk flykkt­ist í óverð­tryggð lán, aðal­lega á breyti­legum vöxtum. Hlutfall þeirra sem var með óverð­tryggða vexti var 27,5 pró­­sent í byrjun árs 2020 en er nú komið yfir 50 pró­­sent.

Hlut­­fall lána sem er á breyt­i­­legum vöxt­um, og fylgir því stýri­­vaxta­hækk­­un­um, hefur söm­u­­leiðis aldrei verið hærra. Í nýlegum Pen­inga­­málum sagði enda að „áhrif vaxta­breyt­inga Seðla­­bank­ans koma því fyrr fram en áður og ljóst er að nýlegra vaxta­hækk­­ana er þegar farið að gæta í greiðslu­­byrði hluta heim­ila.“

Stýri­vaxta­hækk­un­ar­ferli, sem hófst vorið 2021, og hefur skilað stýri­vöxtum í tvö pró­sent sam­hliða því að skuld­setn­ing heim­ila hefur senni­leg­ast auk­ist veru­lega í fyrra sökum áfram­hald­andi hækk­unar á hús­næð­is­verði, mun því án nokk­urs vafa skila hærri vaxta­greiðslum lands­manna.

Virði fasteigna Íslendinga erlendis aukist um 21 milljarð á fimm árum

Íslend­ingar eiga líka fast­eignir erlendis. Þær voru metnar á 34,2 millj­arða króna í lok árs 2020 og höfðu hækkað um 4,6 millj­arða króna milli ára. Það er aukn­ing um 15,5 pró­sent.

Páll skrifar að á fimm árum hafi fast­eignir í útlöndum í eigu Íslend­inga og ann­arra sem skatt­skyldir eru hér á landi auk­ist umtals­vert, eða um 21,3 millj­arða frá árinu 2015. Það er aukn­ing upp á, 165,3 pró­sent.

Ekki er um stóran hóp Íslend­inga að ræða sem á fast­eignir erlendis sem gerð er grein fyrir á íslenskum skatt­fram­tölum. Alls töldu 1.054 fjöl­skyldur fram fast­eignir í útlöndum vegna árs­ins 2020 sem var 71 fleiri fjöl­skyldur en árið á undan. Þeim hefur hins vegar fjölgað hratt á áður­nefndu fimm ára tíma­bili þar sem árið 2015 áttu 415 fjöl­skyldur íbúð­ar­hús­næði erlendis.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár