Mikilvægt að fá gögn um skammtímagistingu

Fram­kvæmda­stjóri Samtaka ferða­þjón­ust­unnar segir mjög mik­il­vægt að íslensk skatta­yf­ir­völd séu byrjuð að fá gögn um greiðslur vegna skamm­tímagist­ingar á borð við AirBnB. Hert eft­ir­lit und­an­far­inna ára hafi einnig þegar skilað árangri.

Jóhannes Þór Skúlason framkvæmdastjóri Samtaka ferðaþjónustunnar.
Jóhannes Þór Skúlason fram­kvæmda­stjóri Samtaka ferða­þjón­ust­unnar. Mynd: Arnar Þór Ingólfsson

„Það er mjög mik­il­vægt ef skatt­ur­inn er byrj­aður að fá gögn frá þessum aðilum, því þetta er eitt af því sem við höfum verið að berj­ast fyrir, að þetta hag­kerfi, deili­hag­kerfið, sé innan lag­ara­mmans,“ segir Jóhannes Þór Skúlason, fram­kvæmda­stjóri Samtaka ferða­þjón­ust­unnar, í sam­tali við Kjarnann.

Í gær greindi skatt­rann­sókn­ar­stjóri frá því að emb­ættið hefði fengið gögn um rúm­lega 25 millj­arða greiðslur frá AirBnB á Írlandi til íslenskra skatt­þegna á fjög­urra ára tíma­bili, frá 2015-2018.

Að hafa betra eft­ir­lit með skamm­tíma­út­leigu á íbúð­ar­hús­næði hefur verið sett á odd­inn af hálfu Samtaka ferða­þjón­ust­unnar á und­an­förnum árum, en sam­tökin telja rík­is­sjóð hafa orðið af millj­örðum króna sökum þess að greiðslur fyrir íbúðir sem leigðar eru í gegnum AirBnB og fleiri slíkar síður séu ekki uppi á borðum, sem hafi líka skekkt sam­keppn­is­stöðu hót­ela og gisti­heim­ila, sem greiða allt sitt.

„Þetta, fyrir okkur, hefur alltaf snú­ist um að jafna sam­keppn­is­grund­völl­inn, gagn­vart þeim sem eru með gisti­þjón­ustu í atvinnu­starf­semi,“ segir Jóhannes Þór og bætir við að skamm­tíma­út­leiga á íbúð­ar­hús­næði hafi ekki verið af hinu slæma þegar hún jókst mjög um miðjan ára­tug­inn, því þörfin fyrir gisti­rými var meiri í örum vexti ferða­þjón­ust­unnar en svo að hægt væri að upp­fylla hana með hót­el­her­bergjum ein­göngu.

Eftirlitið hafi skilað góðum árangri

Eft­ir­litið með skamm­tímagist­ingu hefur verið aukið á und­an­förnum árum og áhrifin hafa verið jákvæð, segir Jóhannes. „Skrán­ingum hefur fjölgað tölu­vert og ríkið hefur fengið inn í raun­inni meira en pen­ing­ana sem það lagði í eft­ir­litið í sekt­ar­greiðslur. Eft­ir­litið hefur þannig staðið undir kostn­aði og gott betur, sem var akkúrat það sem við lögðum upp með á sínum tíma að myndi ger­ast.“

„Sekt­ar­greiðsl­urnar eru að stærstum hluta að koma frá, skilst mér, stærri aðilum, sem hafa í alvör­unni verið að svindla á kerf­inu og ekki farið eftir réttum leik­reglum. Þetta hefur verið stór­vanda­mál, því áður en þetta átak var sett í gang voru þetta minnir mig um sex þús­und aðilar sem voru skráðir með skamm­tíma­leigu á þessum vef­síðum, en í raun­inni undir tvö­þús­und sem voru skráðir og að greiða skatta og skyldur,“ segir Jóhannes Þór.

Hann nefnir að Ísland hafi ekki verið eina landið sem var að reyna að færa þetta nýja fyr­ir­bæri, deili­hag­kerfið, inn í lag­ara­mmann og skatt­heimt­una, en reynst hefur erfitt að fá gögn frá skrif­stofum AirBnB í Írlandi.

„Evr­ópu­sam­bandið hefur tekið á hluta af þessu vanda­máli með reglu­setn­ingu en það hefur verið stór hluti af þessu vanda­máli að þessar vef­síður, það hefur verið erfitt að kría út úr þeim upp­lýs­ingar um hvaða raun­veru­legu greiðslur eru að skila sér til útleigj­enda, svo hægt sé að inn­heimta af þeim réttar skatt­greiðslur.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

2
Viðtal

Ef við kveðjum tungu­málið, þá týnum við vídd draumanna

Í sögu íslenskra bók­mennta í þús­und ár er lögð áhersla á raddir inn­flytj­enda, þá sem nú. Höf­und­ur­inn, Halldór Guð­munds­son, öðl­að­ist tveggja heima sýn ungur í Þýska­landi. Að læra lat­ínu frá 10 ára aldri lam­inn af kenn­ara sem skildi hann ekki, í sárum eftir heims­styrj­öld. Seinna spurði hann sig: „Hver má tala?" Í dag segir hann: „Íslend­inga­sögur dags­ins í dag eru að hluta til sagðar af fólki sem hingað hefur flutt."

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

5
Innlent

Hætta á að lánin hækki þó íbúða­verð lækki

Már Wolfgang Mixa hag­fræði­pró­fessor segir að stór hluti eigin fjár íbúða­eig­enda gæti þurrkast út á kom­andi mán­uðum. Verð­tryggðar fast­eigna­skuldir hækki í verð­bólgu­tíð sam­hliða því að íbúða­verð gæti lækkað. Hann leggur til að verð­tryggð hús­næð­is­lán fylgi íbúða­verði en ekki vísi­tölu neyslu­verðs. Þá myndu bank­arnir bera hluta áhætt­unnar.

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár