Fengu gögn um þá stóru en ekki þá mörgu smáu

Bryndís Krist­jáns­dóttir skatt­rann­sókn­ar­stjóri segir að gögn um 25 millj­arða greiðslur til AirBnB-leigu­sala sem feng­ust afhent frá AirBnB á Írlandi nemi um 80 pró­sent heild­ar­greiðslna, en varði ein­ungis 30 pró­sent leigu­sala.

Embætti skattrannsóknastjóra hefur fengið gögn um 30 prósent þeirra aðila sem fengu hæstar greiðslur vegna AirBnB-útleigu á Íslandi á árunum 2015-2018.
Embætti skatt­rann­sókna­stjóra hefur fengið gögn um 30 pró­sent þeirra aðila sem fengu hæstar greiðslur vegna AirBnB-útleigu á Íslandi á árunum 2015-2018. Mynd: Samsett

Embætti skatt­rann­sókn­ar­stjóra fékk nýlega upp­lýs­ingar um greiðslur til um 30 pró­sent þeirra aðila sem voru að leigja út eignir í gegnum AirBnB á Íslandi á árunum 2015 til 2018. Embættið fékk upp­lýs­ingar um greiðslur sem námu 25,1 millj­arði.

Bryndís Krist­jáns­dóttir skatt­rann­sókn­ar­stjóri segir í sam­tali við Kjarnann að sú upp­hæð nemi 80 pró­sent heild­ar­greiðslna sem bár­ust frá AirBnB til aðila hér á landi. Þær hafa því í heild­ina numið um 30 millj­örðum króna á þessu fjög­urra ára tíma­bili.

„Við erum ekki með þessa mörgu mjög smáu,“ segir Bryndís við blaða­mann, en fyrr í dag var greint frá því að upp­lýs­ing­arnar hefðu feng­ist frá AirBnB á Írlandi með aðstoð frá írskum skatt­yf­ir­völdum. Gögnin feng­ust ekki fyrr en eftir að sátt var gerð fyrir dómi um að afhenda þennan hluta gagn­anna, segir Bryndís.

„Það er bara oft þannig með þessar erlendu beiðnir að þetta tekur heill­angan tíma,“ segir Bryndís, en beiðni var form­lega send bréfleiðis til AirBnB í upp­hafi árs 2019. Nú er emb­ættið að fara yfir gögnin og greina þau og segir Bryndís að það líti ekki út fyrir að verða mjög flókin grein­ing­ar­vinna.

„Það þarf bara að bera þetta saman við skatt­skilin [...] og ef það sé ein­hver grunur um und­an­skot þá væru ein­hver mál tekin til rann­sóknar,“ segir Bryndís og bætir við að vænt­an­lega verði starf­inu for­gangs­raðað þannig að stærstu málin verði efst á blaði. Það sé venjan.

„En við erum ekki komin þangað. Við byrjum með autt blað, maður hugsar þetta þannig og kannski er þetta bara í lagi,“ segir Bryndís.

Aðspurð um hvað hæstu greiðsl­urnar til ein­staka aðila nemi háum fjár­hæðum segir Bryndís að emb­ættið hafi ákveðið að halda þeim upp­lýs­ingum að sér, að sinni, enda sé enn verið að fara yfir gögnin, stemma þau af og púsla þeim saman.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

1
Innlent

Hætta á að lánin hækki þó íbúða­verð lækki

Már Wolfgang Mixa hag­fræði­pró­fessor segir að stór hluti eigin fjár íbúða­eig­enda gæti þurrkast út á kom­andi mán­uðum. Verð­tryggðar fast­eigna­skuldir hækki í verð­bólgu­tíð sam­hliða því að íbúða­verð gæti lækkað. Hann leggur til að verð­tryggð hús­næð­is­lán fylgi íbúða­verði en ekki vísi­tölu neyslu­verðs. Þá myndu bank­arnir bera hluta áhætt­unnar.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár