Skattrannsóknarstjóri fær upplýsingar um 25 milljarða greiðslur í gegnum AirBnB

Skatt­rann­sókn­ar­stjóri hefur fengið send gögn frá AirBnB á Írlandi, um greiðslur sem komið hafa til vegna útleigu íbúða á Íslandi. Alls fékk emb­ættið upp­lýs­ingar um greiðslur sem námu um 25,1 millj­arði króna á árunum 2015-2018.

Bryndís Kristjánsdóttir er skattrannsóknarstjóri.
Bryndís Krist­jáns­dóttir er skatt­rann­sókn­ar­stjóri. Mynd: RÚV/Skjáskot

Skatt­rann­sókn­ar­stjóri hefur fengið upp­lýs­ingar sendar frá AirBnB á Írlandi um greiðslur sem runnu til íslenskra skatt­þegna vegna útleigu íbúða á Íslandi á árunum 2015-2018. Alls nema greiðsl­urnar 25,1 millj­arði króna.

Óskað var eftir gögn­unum frá AirBnB árið 2018, en þau bár­ust ekki fyrr en nýlega, sam­kvæmt til­kynn­ingu á vef skatt­rann­sókn­ar­stjóra í dag. Írsk skatt­yf­ir­völd aðstoð­uðu skatt­rann­sókn­ar­stjóra við að fá gögn og upp­lýs­ingar frá AirBnB.

Í til­kynn­ingu skatt­rann­sókn­ar­stjóra segir að þegar sé farin af stað vinna innan emb­ætt­is­ins við frek­ari grein­ingu gagn­anna og að í fram­hald­inu verði metið hvort þörf sé á frek­ari aðgerðum af hálfu emb­ætt­is­ins.

Stór hluti gistingar á Íslandi seldur í gegnum AirBnB

Mark­aðs­hlut­deild AirBnB, hlut­fall af seldum gistin­óttum á Íslandi, fór vax­andi með auknum umsvifum í ferða­þjón­ustu á Íslandi og náði hámarki árið 2018, þegar 38 pró­sent af öllum seldum gistin­óttum á Íslandi voru seldar í gegnum AirBnB, sam­kvæmt ferða­þjón­ustu­grein­ingu Lands­bank­ans sem birt­ist í fyrra.

Fjöl­margir Íslend­ingar hafa á und­an­förnum árum séð tæki­færi í því að leigja út íbúðir sínar til skemmri tíma til ferða­manna, auk þess sem ferða­þjón­ustu­fyr­ir­tæki hafa nýtt sér vef­síð­una til þess að aug­lýsa hefð­bundn­ara form íbúða­gist­ingar.

Allt að 70 pró­sent íbúða í ákveðnum götum í Reykja­vík voru skráðar á síð­una sam­kvæmt rann­sókn á áhrifum AirBnB á hús­næð­is­mark­að­inn á höf­uð­borg­ar­svæð­inu sem birt­ist í maí í fyrra.

AirBnB er hluti af hinu svo­kall­aða deili­hag­kerfi og var það form heimagist­ingar sem hægt er að bjóða upp á í gegnum síð­una nýr veru­leiki fyrir bæði neyt­endur og stjórn­völd þegar mark­aðs­hlut­deildin fór vax­andi.

Hót­el­eig­endur fundu sumir fyrir minnk­andi eft­ir­spurn vegna aukn­ingar á heimagist­ingu í gegnum AirBnB og kvört­uðu yfir því að sitja ekki við sama borð þegar kæmi að skatt­lagn­ingu og eft­ir­liti með starf­sem­inni.

Samkvæmt áður­nefndri rann­sókn á áhrifum AirBnB á hús­næð­is­mark­að­inn á höf­uð­borg­ar­svæð­inu voru 2.567 eignir í Reykja­vík skráðar á Air­BnB í apríl í fyrra og þar af voru 58 pró­sent starf­ræktar án lög­bund­ins leyf­is.

Sérstök heimagist­ing­ar­vakt var sett á fót hjá emb­ætti sýslu­manns­ins á höf­uð­borg­ar­svæð­inu. Heimagist­ing­ar­vakt­inni var ætlað að hafa hvetj­andi áhrif á ein­stak­linga til þess að skrá skamm­tíma­út­leigu sína, en mörg­þús­und ábend­ingar hafa borist þangað um heimagist­ingu sem starf­rækt hafi verið án leyfis.

Svo­kölluð 90 daga regla varð­andi heimagist­ingu tók gildi í árs­byrjun 2017, en í henni felst að ein­stak­lingum er heim­ilt að leigja út lög­heim­ili sín og eina aðra fast­eign sem er í þeirra eigu til allt að 90 daga á hverju alm­an­aks­ári án þess að lúta sömu reglum um leyfi og gjöld og gilda um atvinnu­rekst­ur.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

1
Innlent

Hætta á að lánin hækki þó íbúða­verð lækki

Már Wolfgang Mixa hag­fræði­pró­fessor segir að stór hluti eigin fjár íbúða­eig­enda gæti þurrkast út á kom­andi mán­uðum. Verð­tryggðar fast­eigna­skuldir hækki í verð­bólgu­tíð sam­hliða því að íbúða­verð gæti lækkað. Hann leggur til að verð­tryggð hús­næð­is­lán fylgi íbúða­verði en ekki vísi­tölu neyslu­verðs. Þá myndu bank­arnir bera hluta áhætt­unnar.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár