Mikil óvissa um hvort greiddur sé skattur af Airbnb-leigu

Heimagist­ing í gegnum Airbnb velti um 6,6 millj­örðum króna á fyrstu sex mán­uðum árs­ins 2017. Talið er að slík gist­ing sé með 50 pró­sent mark­aðs­hlut­deild. Og vafi er á hvort skattur sé greiddur af tekjum af henni.

Mikill óvissa ríkir um hvort þeir sem leigi út íbúð­irnar sínar í gegnum Airbnb greiði skatt af þeirri leigu. Alls velti heimagist­ing í gegnum Airbnb í Reykja­vík um 46 millj­ónum evra í fyrra, eða um 6,1 millj­arði króna. Á fyrstu átta mán­uðum árs­ins 2017 er áætlað að veltan sé 50,5 millj­ónir evra, eða um 6,6 millj­arðar króna, sam­kvæmt tölum sem Hag­fræði­deild Lands­bank­ans hefur aflað í gegnum grein­inga­fyr­ir­tækið Airdna, sem safnar sam­tíma­gögnum af vef­síðu Airbnb.

Þetta er meðal þess sem kemur fram í ítar­legri efna­hags­grein­ingu Lands­bank­ans á ferða­þjón­ustu á Íslandi sem birt var í dag.

Alls óvíst að greiddur sé skattur

Talið er að um 15 pró­sent af velt­unni fari beint til Airbnb. Á fyrstu átta mán­uðum árs­ins í ár er það um millj­arður króna en allt árið í fyrra var sú upp­hæð um 900 millj­ónir króna. Lands­bank­inn telur alls óvíst að fyr­ir­tæki eins og Airbnb greiði nokkurn skatt af starf­semi sinni hér­lendis. Þá liggur heldur ekk­ert fyrir um hversu margir þeirra sem leigja út íbúð­irnar sínar í gegnum deili­hag­kerfið greiði skatt af tekjum sínum vegna þeirrar útleigu. Raunar bendir flest til þess að ansi margir geri slíkt ekki.

Samkvæmt lögum eiga allir ein­stak­lingar sem ætla að bjóða heimagist­ingu að til­kynna sýslu­manni um slíkt. Við skrán­ingu ber við­kom­andi aðila að stað­festa að hús­næðið upp­fylli kröfur í reglu­gerð um bruna­varnir, það hafi hlotið sam­þykki sem íbúð­ar­hús­næði og að hús­næðið sé full­nægj­andi með til­liti til holl­ustu­hátta sam­kvæmt lögum um holl­ustu­hætti og meng­un­ar­varnir. Alls eru 927 með skráða heimagist­ingu. Inni­falið í því eru aðilar sem reka gisti­heim­ili og bændag­ist­ingu. Þar er því alls ekki ein­ungis um Airbnb-útleigj­endur að ræða. Í þessu sam­hengi má nefna að 3.049 fast­eignir í Reykja­vík voru skráðar til útleigu á Airbnb í ágúst 2016. Þeim hafði þá fjölgað um 80 pró­sent á milli ára. Og miðað við aukna veltu á árinu 2017 má ætla að þeim fast­eignum hafi síst fækkað.

Í skýrslu Lands­bank­ans segir: „Airbnb greiðir gest­gjöf­unum inn á banka­reikn­ing hér­lendis eða erlendis, eða inn á Paypal-reikn­ing. Mikil óvissa ríkir um hversu hátt hlut­fall af þeim tekjum er gefið upp til skatts hér á landi.“

Allt að 50 prósent markaðshlutdeild

Lands­bank­inn áætlar því, út frá þeim tölum sem hann byggir grein­ingu sína á, að Airnbnb sé með um 40 pró­sent mark­aðs­hlut­deild í hót­el­geir­anum í Reykja­vík. Ef Airbnb-gist­ing í nágranna­sveit­ar­fé­lögum Reykja­víkur er tekin inn í dæmið sé ekki ólík­legt að mark­aðs­hlut­deildin sé nálægt 50 pró­sent.

Í skýrsl­unni segir: „Hver er t.d. ábyrgð stjórn­valda á að skapa sann­gjarna sam­keppn­is­stöðu á milli Airbnb-gist­ingar og hót­ela, að tryggja að eft­ir­lit sé sann­gjarnt og íþyngi ekki einni teg­und gist­ingar (hót­elum og gisti­heim­ilum) umfram aðra (s.s. Airbnb). Það telst líka tæp­ast sann­gjarnt að hótel og gisti­heim­ili þurfi að greiða fyrir leyfi, greiði skatta og þurfi að taka til­lit til ýmissa sam­fé­lags­legra þátt í þéttri íbúa­byggð o.s.frv. á meðan Airbnb-gist­ing fær nán­ast frjálsar hendur.“

Hefur áhrif á innlendan húsnæðismarkað

Útleiga á heim­ilum til ferða­manna hefur gert það að verkum að Ísland hefur getað tekið á móti þeim gríð­ar­lega fjölda ferða­manna sem hefur komið hingað til lands á und­an­förnum árum, þar sem upp­bygg­ing hót­ela hefur ekki getað haldið í við þá aukn­ingu. Skýrslu­höf­undar benda á að nýt­ing á hót­elum hér­lendis hafi dreg­ist saman í byrjun sum­ars, þrátt fyrir að við blasi að skortur sé á hót­el­rýmum til að þjón­usta síauk­inn fjölda ferða­manna sem sækir Ísland heim. Ástæðan sé sú að fram­boð af Airbnb íbúðum sé enn að aukast. Það hefur áhrif á rekstr­ar­hæfi hót­ela og getu þeirra til að greiða þeim sem fjár­magna bygg­ingu þeirra, t.d. bönkum eins og Lands­bank­anum.

Önnur alvar­leg hlið­ar­verkun af auk­inni Airnbnb-útleigu er sú að hún hefur spilað stóra rullu í því að hús­næð­is­verð hefur hækkað gríð­ar­lega á örfáum árum með því að draga veru­legu úr fram­boði á mark­aði þar sem eft­ir­spurn er gríð­ar­leg. Þar spila vit­an­lega aðrir þættir líka stóra, og jafn­vel stærri rullu. Mestu máli skiptir að ein­fald­lega hefur ekki verið byggt nægj­an­lega mikið nægj­an­lega hratt til að halda í við eft­ir­spurn eftir íbúð­ar­hús­næði. Þá hefur inn­koma hagn­að­ar­drif­inna leigu­fé­laga einnig haft áhrif.

Afleið­ingin er sú að hús­næð­is­verð á öllu íbúð­ar­hús­næði á höf­uð­borg­ar­svæð­inu hefur hækkað um 91 pró­sent frá því í des­em­ber 2010. Íbúða­lána­sjóður metur það sem svo að það vanti um 9.000 íbúðir á næstu þremur árum, eða til loka árs 2019, til að anna eft­ir­spurn.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár