Telur „jó-jó tímabili“ vegna Hvalárvirkjunar lokið

Vanda­málin í raforku­kerfinu á Vestfjörðum snúast ekki um orkuskort heldur afhendingar­öryggi. Um þetta eru verkefnis­stjóri hjá Landsneti og fulltrúi Jarð­strengja sammála. Sá síðarnefndi telur „jó-jó tímabili“ sem fylgdi Hval­árvirkjun lokið.

Kerfið á Vestfjörðum er viðkvæmt fyrir veðri og vindum.
Kerfið á Vest­fjörðum er við­kvæmt fyrir veðri og vindum. Mynd: Landsnet

Brýnasta verkefnið til að bæta raforku­öryggi á Vestfjörðum er að tvöfalda flutnings­línur inn á suður­firðina. Þeim áformum hefur verið flýtt og eiga framkvæmdir að hefjast árið 2022. Þetta segir Magni Þór Pálsson, verkefnis­stjóri rannsókna hjá Landsneti.

Karl Ingólfsson leið­sögumaður og þátt­takandi í starfi grasrótar­hópsins Jarð­strengja, segir umræðuna um Hval­árvirkjun hafa tafið úrbætur á raforku­kerfi Vestfjarða en nú þegar áformin séu komin á ís verði vonandi hætt að horfa á „óraunhæfar lausnir“ og farið í það „sem raun­verulega kemur að gagni“.

Magni og Karl eru sammála um að vanda­málið á Vestfjörðum sé ekki orku­skortur heldur afhendingar­öryggið. Mikilvægt sé að finna leiðir til að tryggja hnökra­lausa yfir­færslu á varaafl þegar straum­leysi verður og benda þeir á að framþróun hafi verið í slíkum lausnum síðustu ár.

Þetta er meðal þess sem fram kom í máli þeirra á fundi Land­verndar um orku­öryggi á Vestfjörðum sem fram fór um síðustu helgi.

„Við vitum það að afhendingar­öryggi á Vestfjörðum hefur verið með því lægsta sem gerist í flutnings­kerfinu á Íslandi,“ sagði Magni. Aðeins ein megin­flutnings­lína liggur inn á Vestfjarða­kjálkann, Vestur­lína. Út frá henni taka við tvær línur frá Mjólkár­línu; Tálkna­fjarðarlína og Breið­dalslína. „Landslag á Vestfjörðum er eins og allir þekkja sem þangað hafa komið fjöllótt og frekar óblítt og ekki alls staðar hentugt til raflagna, hvort sem er loftlínur eða rafstrengir,“ sagði Magni. „Eins er veðurfar með þeim hætti að loftlínur eru útsettar fyrir ísingu og sterkum vindi. Einnig eru á svæðinu langar vega­lengdir en tiltölu­lega lítil orku­notkun.“

Ýmsar úrbætur hafa verið gerðar síðustu ár. Bolungarvíkur­lína 2 var t.d. lögð í jarð­streng í Óshlíðar­göngin þegar þau voru gerð. Sett var upp stór varaaflsstöð í Bolungarvík ásamt snjall­neti svokölluðu sem lágmarkar straum­leysi þegar norðan­verðir Vestfirðir missa tengingu við flutnings­kerfið. Spennuafl í Mjólká var aukið og eins hafa tengi­virki Landsnets í Bolungarvík og á Ísafirði verið endurnýjuð og yfirbyggð.

Samkvæmt nýrri kerfis­áætlun Landsnets til ársins 2029 á að hefja framkvæmdir við nýtt tengi­virki í Hrúta­tungu þegar á næsta ári. Það tengi­virki er á lykilstað í kerfinu en þaðan fer byggða­línan út á Vestfirðina. Í vonsku­veðrum síðasta vetur átti Landsnet í miklu basli með þetta tengi­virki og verður hið nýja yfirbyggt.

Samkvæmt framkvæmda­áætlun verður svo farið í styrkingu á flutnings­kerfinu á suður­fjörðunum árið 2022 og árið síðar stendur til að endurnýja tengi­virki í Breiðadal. Á tíu ára áætlun er svo verkefni sem kallast áttan og felur í sér tvöföldun flutnings­lína frá Mjólká og í Breiðadal. Þegar hefur verið lagður jarð­strengur um Dýra­fjarðargöng sem unnið er að. „Ástandið hefur farið batnandi þó að margt megi en bæta og við erum fyllilega meðvituð um það,“ sagði Magni.

Karl benti á að á Vestfjörðum væri einungis notað um 1 prósent þeirrar raforku sem framleidd væri í landinu. Það væri hart að búa við óáreiðanlegt rafmagn í landi þar sem framleidd er meiri raforka á hvern landsmann en nokkur staðar annars staðar. „Það er eins og að búa við kaffi­leysi í Brasilíu eða fá ekki soðningu hér á Íslandi þar sem aflað er tveggja tonna af fiski á mann á ári.“

Umræðan um raforku­öryggi á Vestfjörðum hafi síðustu ár að miklu leyti snúist um Hval­árvirkjun. Hann rifjaði upp að þegar virkjana­hugmyndin kom fyrst fram hafi verið rætt um að tengja hana beint inn á Ísafjörð, þ.e. inn í endann á raforku­kerfi svæðisins þar sem þörfin og eftir­spurnin væri mest, en að síðari ár hafi verið horfið frá því og til staðið að tengja hana við megin­flutnings­kerfið í Kolla­firði en þaðan eru tugir kílómetra þangað sem notkunin er mest og leiðin útsett fyrir áföllum. Á sama tíma, þ.e. á árunum 2015-2016, hafi HS orka, sem er meirihluta­eigandi Vestur­verks, lent í vandræðum með rekstur Reykja­nesvirkjunar og bráð­vantað rafmagn. „Þeir áttu ekki nóg rafmagn fyrir sína viðskipta­vini þegar álagið var mest hjá þeim og þurftu að kaupa það sem uppá vantaði dýrum dómum.“

Síðan þá er HS orka búin að „ná upp dampi“ í Reykja­nesvirkjun, er komin með 42 MW vinnslu­getu í smávirkjunum og leyfi til aukinnar orku­vinnslu í Reykja­nesvirkjun. „Þannig að hagur þessa raforku­fram­leiðanda er orðinn mun betri í dag heldur en þegar unnið var að undir­búningi Hval­árvirkjunar,“ sagði Karl. Nú eru hins vegar allt aðrar aðstæður á raforku­markaði og framkvæmdum við Hval­árvirkjun verið slegið á frest um ótilgreindan tíma.

„Það er ekki orku­skortur á Vestfjörðum,“ benti Karl á. „Vestfirðir eru tengdir lands­kerfinu og það er næg flutnings­geta til að koma þeirri orku sem Vestfirðingar kjósa að kaupa vestur. Vandinn er þegar kerfið bilar.“

Hægt er að leggja hluta af flutnings­kerfinu á Vestfjörðum í jörð en svigrúmið er ekki mikið að sögn Magna. Jarð­strengir hafa verið lagðir samhliða jarð­göngum og einnig er verið að skoða, við tvöföldun flutnings­lína sem standa fyrir dyrum á ákveðnum svæðum, hvaða kaflar séu hvað útsettastir fyrir bilunum í vondum veðrum og beri að leggja í jörð.

Ýmislegt hefur áhrif á hið svokallaða skammhlaups­afls sem takmarkar lengd jarð­strengja innan kerfa. Samkvæmt lang­tímaáætlun Landsnets stendur til að leggja nýja flutnings­línu frá Blöndu og í Hvalfjörð og myndi sú lína væntanlega hafa viðkomu í Hrúta­tungu. Við þetta mun kerfis­styrkurinn á Vestur­línu aukast og opnast þar með mögu­leikar til frekari strengja­lagna. Það mun þó ekki mælast í tugum kílómetra en yrði væntanlega nóg til að hægt væri að taka af verstu kafla loft­línunnar.

Karl benti á að Vestur­verk hefði talað um að leggja jarð­streng frá Hval­árvirkjun og yfir Ófeigs­fjarðar­heiði og að tengi­punkti sem fyrir­hugaður var í Ísafjarðar­djúpi í jörð og spurði Magna hvaða áhrif það hefði haft á möguleika til annarra strengja­lagna í raforku­kerfinu. „Hval­árvirkjun, eins og hún er hugsuð, er stór eða 55 MW,“ svaraði Magni og að því hefði hún getað haft umtals­verð jákvæð áhrif á skammhlaups­aflið á Vestfjörðum. Hins vegar hefði jarð­strengurinn yfir Ófeigs­fjarðar­heiði dregið úr þeim ávinningi. Ef 1/3 til helmingur leiðarinnar hefði verið settur í loftlínu hefðu áhrifin virkjunarinnar á skammhlaups­aflið verið jákvæð og hægt að leggja nokkra kílómetra í jörð í kerfinu til viðbótar að mati Landsnets.

Frestun Hval­árvirkjunar um ótilgreindan tíma mun að sögn Magna ekki hafa áhrif á áætlanir Landsnets á Vestfjörðum nema þá á vinnuna við tengi­punktinn sem fyrir­hugaður var í Djúpinu og var á áætlun Landsnets á árinu 2022. Hann hékk saman við nýja orku­vinnslu á því svæði og var Vestur­verk eini virkjunar­aðilinn sem hafði óskað eftir tengingu við flutnings­netið.

Karl sagði það kost að Hval­árvirkjun væri ekki lengur veifað sem „einhverju vonartré“ í sambandi við úrbætur á raforku­kerfi Vestfjarða því nú væri hægt að fara beint í aðgerðir sem kæmu að gagni. „Ég held að þessum biðtíma, þessu jó-jó tímabili, sé lokið.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár