Stjórnarformaður Vesturverks: Hægt að bæta afhendingaröryggi án Hvalárvirkjunar

Alls óvíst er hvenær Hval­ár­virkjun verður byggð. Aðeins er nú unnið að „nauð­syn­legum rann­sóknum sem bæta aðstöðu okkar þegar þar að kemur til að taka ákvörðun um að byggja eða byggja ekki,“ segir stjórn­ar­for­maður Vest­ur­verks.

Hvalárvirkjun yrði byggð í eyðifirðinum Ófeigsfirði og samkvæmt áformunum yrði rennsli þriggja áa á Ófeigsfjarðarheiði virkjað: Hvalár, Rjúkanda og Eyvindarfjarðarár. Byggðar yrðu fimm stíflur við heiðarvötn til að mynda þrjú miðlunarlón
Hval­ár­virkjun yrði byggð í eyði­firð­inum Ófeigs­firði og sam­kvæmt áformunum yrði rennsli þriggja áa á Ófeigs­fjarð­ar­heiði virkjað: Hvalár, Rjúkanda og Eyvind­ar­fjarð­arár. Byggðar yrðu fimm stíflur við heið­ar­vötn til að mynda þrjú miðl­un­ar­lón Mynd: Golli

Ekki hefur komið til tals hjá stjórn­endum Vest­ur­verks og HS orku að slá Hval­ár­virkjun í Árnes­hreppi út af borð­inu þó að hægja hafi þurft veru­lega á verk­efn­inu. Hins vegar munu frek­ari rann­sóknir á næstu árum bæta þann grunn sem ákvörðun um „ að byggja eða byggja ekki“ verður tekin á.

Þetta segir Ásbjörn Blöndal, stjórn­ar­for­maður Vest­ur­verks og fram­kvæmda­stjóri þró­unar hjá HS orku, í sam­tali við Kjarnann. Í vor var skrif­stofu Vest­ur­verks á Ísafirði lokað og öllum starfs­mönnum sagt upp. Til stóð að hefja und­ir­bún­ings­fram­kvæmdir í sumar en af þeim varð ekki.

„Ég bara veit það ekki,“ svarar Ásbjörn spurður hvenær fram­kvæmdir við virkj­un­ina gætu haf­ist fyrst enn sé stefnt að bygg­ingu hennar. Biðstaða er að hans sögn framundan vegna mik­illa breyt­inga á raf­orku­mark­aði og ákvarð­anir um næstu skref stjórn­ist af eft­ir­spurn eftir raf­orku. Hann segir lítið hægt að gera til að bæta þessu fámenn­asta sveit­ar­fé­lagi lands­ins, þar sem í hrepps­nefnd sitja dyggir stuðn­ings­menn virkj­un­ar­innar, upp fyrir taf­irnar og óviss­una sem framundan er en bendir á að hægt sé að bæta raf­orku­ör­yggi og koma á þrí­fösun raf­magns án Hval­ár­virkj­unar. Dreifi­veita beri ábyrgð á því að færa kerfin til nútíma­horfs og nú skap­ist eflaust þrýst­ingur á að hrinda slíkum verk­efnum sem og öðrum í fram­kvæmd.

[adspot]

Hval­ár­virkjun hefur verið á teikni­borð­inu í mörg ár. Hún var sett inn á aðal­skipu­lag Árnes­hrepps árið, 2014 og er í nýt­ing­ar­flokki ramma­á­ætl­unar en hefur lengi verið umdeild, bæði meðal íbúa hrepps­ins og ann­arra. Virkj­unin yrði byggð í eyði­firð­inum Ófeigs­firði og sam­kvæmt áformunum yrði rennsli þriggja áa á Ófeigs­fjarð­ar­heiði virkjað: Hvalár, Rjúkanda og Eyvind­ar­fjarð­arár. Byggðar yrðu fimm stíflur við heið­ar­vötn til að mynda þrjú miðl­un­ar­lón. Virkj­unin yrði 55 MW og orku­fram­leiðslan um 320 gíga­vatt­stundir á ári (Gwh). Hið fyr­ir­hug­aða virkj­ana­svæði er í miðju mestu víð­erna Vest­fjarða.

Ætlunin var að hefja und­ir­bún­ings­fram­kvæmdir í sumar í sam­ræmi við fram­kvæmda­leyfi sem var svo ekki end­ur­nýjað í júní og er því útrunnið. „Sökum þess að við vorum aðeins farnir að skoða það að hægja á þá var tekin sú ákvörðun að vera ekki að raska einu né neinu að svo komnu máli,“ segir Ásbjörn. Spurður hvort fyr­ir­tækið getið sótt um end­ur­nýjun á fram­kvæmda­leyf­inu með stuttum fyr­ir­vara segir hann það hægt „ef að það er komin meiri vissa um verk­efnið“.

Marg­vís­legar aðstæður á mark­aði gera það að verkum „að tíma­punkt­ur­inn til að keyra Hvalár­verk­efnið á fullu áfram er ekki réttur,“ segir Jóhann Snorri Sig­ur­bergs­son, for­stöðu­maður við­skipta­þró­unar hjá HS orku, við Kjarnann. Og að vegna aðstæðna sem nú eru uppi sé „ekki hægt að gefa ákveð­inn tímara­mma um það hvenær bygg­ing virkj­un­ar­innar hefst“.

Aðstæð­urnar sem Jóhann Snorri talar um voru til­komnar áður en að heims­far­aldur kór­ónu­veirunnar skall á. „COVID hefur ein­göngu bætt á erf­iðar mark­aðs­að­stæður,“ segir hann. „Það sem hefur gerst, óháð COVID, er að tvö kís­il­ver sem voru komin í rekstur hafa hætt rekstri í það minnsta tíma­bundið sem dregur umtals­vert úr raf­orku­notkun á litlum mark­aði. Þá hefur álverið í Straums­vík dregið umtals­vert úr afl­notkun sinni. Loks hefur hægst veru­lega á vexti gagna­vera á Íslandi af marg­vís­legum ástæðum og jafn­vel dregið úr, meðal ann­ars vegna breyttrar sam­setn­ingar við­skipta­vina. Hlutfall raf­mynta­graftrar hefur minnkað en í stað­inn er að aukast önnur þjón­usta hjá þeim sem nýtir minna raf­magn í sama hús­næði.“

[links]Hann segir far­sótt­ina svo hafa þau áhrif að ekki séu í gangi miklar við­ræður um upp­bygg­ingu erlendra aðila á Íslandi auk þess sem almenni mark­að­ur­inn hafi einnig dreg­ist saman. „Ákvörðun um að hægja á Hval­ár­virkjun hafði verið rædd áður en COVID skall á enda voru blikur á lofti varð­andi raf­orku­þörf á Íslandi sem stað­festar voru af raf­orku­hópi orku­spár­nefndar, en hóp­ur­inn mældi í fyrsta sinn í langan tíma sam­drátt í raf­orku­notkun milli áranna 2018 – 2019.“

Ásbjörn, sem tók við stjórn­ar­for­mennsku í Vest­ur­verki fyrir um ári af Ásgeiri Mar­geirs­syni, fyrr­ver­andi for­stjóra HS orku, segir að strax árið 2018, jafn­vel fyrr, hafi verð­lag á mark­aði farið lækk­andi. „Þannig að snemma árs í fyrra vorum við byrj­aðir að athuga hvort við værum í réttum takti með þetta verk­efni miðað við mark­að­inn. Það var eig­in­lega nið­ur­staðan að hægja á og sjá til hvernig mál þró­uð­ust hérna á næst­unni. Það var ekki mikið mál þar sem við erum með alla val­kosti Vest­ur­verks á rann­sókn­ar­stigi.“

Hval­ár­virkj­un­ar­verk­efnið sé þó ekki stopp því verið sé að sinna „nauð­syn­legum rann­sóknum sem bæta þá aðstöðu okkar þegar þar að kemur til að taka ákvörðun um að byggja eða byggja ekki“.

Þær rann­sóknir lúta fyrst og fremst að frek­ari vatna­mæl­ingum á Ófeigs­fjarð­ar­heiði. „Að öðru leyti höldum við bara sjó og keyrum verk­efnið áfram í ró og spekt.“

Um miðjan apríl höfð­uðu eig­endur eyði­jarð­ar­innar Dranga­víkur í Árnes­hreppi mál fyrir hér­aðs­dómi Reykja­víkur á hendur eig­endum jarð­anna Engja­ness og Ófeigs­fjarðar þar sem þess er kraf­ist að við­ur­kennt verði að landa­merki Dranga­víkur gagn­vart jörð­unum séu eins og þeim er lýst í þing­lýstum landa­merkja­bréfum frá árinu 1890. Verði krafa land­eig­end­anna stað­fest mun það þýða að Eyvind­ar­fjarð­ará og Eyvind­ar­fjarð­ar­vatn, sem til hefur staðið að nýta til Hval­ár­virkj­unar, eru inni á landi í eigu fólks sem kærir sig margt hvert ekki um virkj­un­ina.

Hafði landa­merkja­málið, sem kom upp skömmu áður en ákveðið var að loka skrif­stofu Vest­ur­verks og hægja á fram­kvæmd­inni, áhrif á þá ákvörðun?

„Nei, ekki neitt,“ svarar Ásbjörn. Hann segir Vest­ur­verk ekki beinan aðila að mál­inu og er ekki kunn­ugt um hvar málið er statt.

Hins vegar gæti það haft ein­hver áhrif á Hval­ár­virkj­un­ar­verk­efnið þar sem það snerti efsta hluta vatna­kerf­is­ins sem fyr­ir­hugað er að nýta til virkj­un­ar­innar. Ekki hafi hins vegar verið reiknað út hvort að virkj­unin yrði arð­bær án vatna­sviðs Eyvind­ar­fjarð­arár. „Við erum nátt­úr­lega sífellt að end­ur­meta arð­semi verk­efn­is­ins, eins og mark­aður leyfir og svo fram­vegis. Þetta yrði bara einn þáttur í því, ef þar að kemur og ef af verður.“

Gjöbreytt landslag

Ásgeir Mar­geirs­son sagði í við­tali við mbl.is haustið 2017 að fram­leiðsla raf­magns í Hval­ár­virkjun myndi mögu­lega hefj­ast á árunum 2023-2024. Hann sagði enn­fremur að eft­ir­spurn eftir raf­orku væri mun meiri en fram­boðið og nefndi gagna­verin helst í því sam­bandi.

Nú, haustið 2020, er allt gjör­breytt.

Ásbjörn segir það ekki hafa verið rætt, hvorki af hálfu Vest­ur­verks né HS orku, að slá verk­efnið út af borð­inu. „Við höldum ótrauð áfram en með þessum breytta takti. Við erum að eyða ein­hverjum tugum millj­ónum króna í ár í rann­sóknir.“

En er þá eitt­hvað hægt að segja til um hvenær virkj­unin verður byggð? Erum við að tala um á næstu 5 árum eða næstu 10 árum?

„Ég bara veit það ekki,“ segir Ásbjörn. „Þetta fer allt eftir mark­aðs­að­stæðum hér heima. Er þörf á raf­orku eða ekki? Hvað kallar raf­væð­ingin á mikla orku? Halda álverin velli? Fer kís­il­iðn­að­ur­inn aftur af stað? Óvissan er all­mikil. En Hval­ár­virkjun er þó í nýt­ing­ar­flokki ramma­á­ætl­unar og það eru verk­efnin sem fara fyrst í gang.“

Til staðar séu samn­ingar við land­eig­endur í Ófeigs­firði og Eyvind­ar­firði um vatns­rétt­indi og við þá þurfi að nást sátt, verði langur dráttur á verk­efn­inu. Í samn­ing­unum sé sett fram ákveðin hug­mynd að fram­vindu og upp­lýsa þurfi hlut­að­eig­andi um fyr­ir­sjá­an­legar breyt­ingar á henni. Sömu sögu sé að segja um sveit­ar­fé­lagið.

Óásættanleg staða

Í ágúst var sam­þykkt ályktun á fundi hrepps­nefndar Árnes­hrepps þar sem segir að nefndin telji „mjög brýnt“ að „áformum um virkjun Hvalár“ verði haldið til streitu. „Atvinnu­upp­bygg­ing á Vest­fjörðum hefur liðið mikið fyrir skort á raf­orku og því með öllu óásætt­an­legt að málum sé sífellt frestað og sett í bið­stöðu.“

Ásbjörn seg­ist gera sér grein fyrir þeim áhrifum sem frestun fram­kvæmd­ar­innar hafi enda hrepps­nefndin öll stutt verk­efnið dyggi­lega. Íbúar hafi vænst þess að virkjun myndi fylgja umbætur á borð við þrí­fösun raf­magns, trygg­ara afhend­ingar­ör­yggi raf­orku og sam­göngu­bætur. „Ég held að hrepp­ur­inn hafi nú eflaust horft til þess að það væri eitt­hvað ljós fyrir end­ann á gangna­mun­anum.“

Finnið þið ekki til ábyrgðar gagn­vart þessu sveit­ar­fé­lagi, eftir að hafa í öll þessi ár ýtt á þetta verk­efni, fengið til þess mik­inn stuðn­ing en svo er því frestað og eng­inn veit hvert fram­haldið verður?

„Við vitum ekk­ert annað en að það er verið að keyra verk­efnið í öðrum takti heldur en var,“ svarar Ásbjörn. „Við höfum gert sveit­ar­fé­lag­inu grein fyrir því. Meira getum við í raun og veru ekki gert. Og von­andi ræt­ist úr síðar, sem fyrst.“

Ekki sé hægt að ráð­ast í fram­kvæmd án þess að fjár­hags­legar for­sendur séu fyrir hendi. „Þetta eru gríð­ar­lega fjár­frekar fram­kvæmdir. Það þarf að vanda vel til verka þegar ráð­ist er í verk­efni af þessu tagi.“

Ábyrgð dreifiveitunnar

Á meðan Hval­ár­virkjun er enn á teikni­borð­inu, en óvíst er hvenær hún rís og jafn­vel hvort, verður að telj­ast ólík­legt að aðrar stórar hug­myndir sem upp hafa komið, á borð við þjóð­garð, fái braut­ar­gengi í hrepps­nefnd sveit­ar­fé­lags­ins. Spurður um þessa klípu, ef svo mætti kalla, sem Árnes­hreppur er í, jafn­vel til margra ára, segir Ásbjörn að á dög­unum hafi verið kynnt ýmis verk­efni sem til standi að fara í norður á Ströndum.

Nýverið voru veittir styrkir til 13 verk­efna í hreppnum úr frum­kvæð­is­sjóði brot­hættra byggða. Þau tengj­ast flest ferða­þjón­ustu í hreppnum og end­ur­bótum á sund­laug­inni í Kross­nesi. Úthlutað var tæpum fimmtán millj­ónum króna.

„Það er dreifi­veita í hreppnum,“ bendir Ásbjörn svo á. „Auðvitað mynd­ast kannski ein­hver pressa á að flýta ein­hverjum fram­kvæmdum, bæta úr afhend­ingar­ör­yggi og því að hægt verði að byggja eitt­hvað upp á staðnum.“

Þannig að það ætti að vera hægt með öðrum leiðum heldur en Hval­ár­virkjun?

„Já, það er þarna dreifi­veita sem er með ein­hverja ábyrgð á því að kerfi séu færð til nútíma horfs.“

Ábyrgð á dreif­ingu raf­magns á Vest­fjörðum liggur hjá Orkubúi Vest­fjarða sem er að fullu í eigu rík­is­ins. Í umræð­unni um Hval­ár­virkjun síð­ustu ár hefur margoft verið nefnt af stuðn­ings­mönnum hennar að hún myndi auka afhend­ingar­ör­yggi á Vest­fjörðum. „Það hefur marg­sinnis komið fram í skýrslum frá Lands­neti að afhend­ingar­ör­yggi og afhend­ing­ar­geta á svæð­inu er tak­mörkuð,“ segir Ásbjörn. „Þetta er senni­lega sá fjórð­ungur sem kemur síst út á land­inu. Það er eitt­hvað sem þyrfti að takast á við sam­eig­in­lega. Það getur vel verið að ríki, sveit­ar­fé­lög og allir þurfi að leggj­ast á eitt að bæta úr svo það hamli ekki atvinnu­upp­bygg­ingu á svæð­inu.“

Engu tapað

Ásbjörn telur ekk­ert benda til þess að aðstæður á raf­orku­mark­aði muni breyt­ast á næst­unni. Biðstaða verði lík­leg­ast fram á næsta ár. Til standi að ræsa kís­il­verið á Bakka, sem hætti tíma­bundið starf­semi í sumar, að nýju við upp­haf næsta árs. „Við eigum eftir að sjá það ger­ast. Á meðan þeir eru niðri þá er mikið afl á lausu.“

Áfram verða stund­aðar rann­sóknir í tengslum við Hval­ár­virkj­un­ar­verk­efnið. „Með hverju árinu sem við stundum rann­sóknir þá erum við í raun­inni að bæta grunn­inn fyrir ákvarð­ana­töku. Þannig að við teljum okkur ekki vera að tapa neinu eða missa af ein­hverju. Engan veg­inn.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Hvalárvirkjun

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár