Mynd: Golli

Höfða landamerkjamál á Ströndum sem gæti sett áform um Hvalárvirkjun í uppnám

Meiri­hluti eig­enda eyði­jarð­ar­innar Dranga­víkur í Árnes­hreppi segir það sinn vilja „að óbyggðir Ófeigs­fjarð­ar­heiðar, vatns­föllin, foss­arnir og strand­lengjan fái að vera óröskuð um ókomna tíð og nátt­úran fái að þró­ast á eigin for­sendum“.

Eigendur um 75 pró­sent eyði­jarð­ar­innar Dranga­víkur í Árnes­hreppi hafa höfðað mál fyrir hér­aðs­dómi Reykja­víkur á hendur eig­endum jarð­anna Engja­ness og Ófeigs­fjarðar í Árnes­hreppi sem og eig­endum Lauga­lands í Stranda­byggð. Er þess kraf­ist að við­ur­kennt verði með dómi að landa­merki Dranga­víkur gagn­vart hinum jörð­unum þremur séu eins og þeim var lýst í þing­lýstum landa­merkja­bréfum frá árinu 1890. Landa­merkja­bréfin, sem voru öruggar heim­ildir síns tíma, hafa verið sam­þykkt af eig­endum þeirra jarða er áttu land að við­kom­andi jörð og eru þing­lýstar heim­ildir fyrir eign­ar­rétti.

Engir samn­ingar hafa verið gerðir eftir að landa­merkja­bréfin voru skráð sem breyta að mati land­eig­enda Dranga­víkur merkjum milli jarð­anna svo merkja­lýs­ingar þeirra skulu gilda.

Verði krafa land­eig­end­anna stað­fest mun það setja áform Vest­ur­verks um Hval­ár­virkjun í upp­nám. Eyvind­ar­fjarð­ará og Eyvind­ar­fjarð­ar­vatn, sem til stendur að nýta til virkj­un­ar­innar, yrðu þá inni á landi í eigu fólks sem margt hvert kærir sig ekki um virkj­un­ina.

Samkvæmt þeim kortum sem Vest­ur­verk notar í sínum áætl­unum, m.a. mati á umhverf­is­á­hrifum virkj­un­ar­innar, og sveit­ar­fé­lagið í sínum skipu­lags­upp­dráttum frá árinu 2014 eru Eyvind­ar­fjarð­ar­vatn og áin úr því innan landa­merkja Engja­ness.

Í stefn­unni, sem Kjarninn hefur undir höndum, er heim­ildin fyrir þeim mörkum sögð sú sama: Gagna­grunnur verk­efn­is­ins Nytja­lands frá árinu 2002. Sá grunnur hafi ekki verið ætl­aður sem heim­ild um landa­merki. Við vinnslu verk­efn­is­ins hafi almenna reglan verið sú að afla heim­ilda um bújarð­irnar frá eig­endum sjálfum. Enginn eig­enda Dranga­víkur var hins vegar spurður álits.

Enda segir á skipu­lags­upp­dráttum Árnes­hrepps: „Heim­ild­ar­maður vegna jarða­marka Haukur Jóhann­es­son án ábyrgðar.”

Haukur Jóhann­es­son er jarð­fræð­ingur. Samkvæmt stað­festu end­ur­riti skýrslu­töku af honum í nýlegu óbyggð­ar­nefnd­ar­máli, sem rakið er í stefn­unni, tók hann enga afstöðu til merkj­anna. Þetta sýnir, að mati land­eig­enda Dranga­víkur, að engin áreið­an­leg heim­ild sé að baki þeim gögnum er stuðst hefur verið við.

Til vinstri má sjá þær kröfur sem eigendur Drangavíkur gera og til hægri jarðamörk sem Vesturverk hefur stuðst við í áætlunum sínum um fyrirhugaða Hvalárvirkjun.
Til vinstri má sjá þær kröfur sem eig­endur Dranga­víkur gera og til hægri jarða­mörk sem Vest­ur­verk hefur stuðst við í áætl­unum sínum um fyr­ir­hug­aða Hval­ár­virkjun.

Í stjórn­sýslu- og dóms­málum sem rekin hafa verið vegna fyr­ir­hug­aðrar Hval­ár­virkj­unar hefur komið fram að óleystur sé ágrein­ingur um landa­merki Dranga­víkur gagn­vart jörð­unum Engja­nesi og Ófeigs­firði. Telur meiri­hluti eig­enda Dranga­víkur því nauð­syn­legt að höfða mál til við­ur­kenn­ingar á landa­merkjum milli jarð­anna. Inn í málið dregst einnig jörðin Lauga­land í Stranda­byggð, sem á land að umdeildu svæði.

Ekki hefur verið búið á jörð­inni Engja­nesi í hund­ruð ára. Hún er nú í eigu ítalsks bar­óns, Felix von Longo-Lieb­en­stein. Vest­ur­verk samdi við hann um vatns­rétt­indi vegna Hval­ár­virkj­unar árið 2008. Það sama ár samdi fyr­ir­tækið við eig­endur Ófeigs­fjarðar en í þeirri jörð á Pétur Guð­munds­son, sem þar er fæddur og upp­al­inn, langstærstan hlut.

Jörðin Dranga­vík er víð­feðm land­náms­jörð og nær frá Dranga­jökli í sjó fram, segir í stefn­unni. Hún liggur sunnan Dranga­skarða en norðan þeirra er jörðin Drangar. Síðast var búið í Dranga­vík 1947. Hefur jörðin síð­ustu ára­tugi verið nytjuð til reka, sel­veiða og dún­tekju.

Í stefn­unni er vísað til fjölda heim­ilda. Þeirra elst er sjálf Landnáma en þar segir:

„Þorvaldr Ásvalds­son, Úlfs­sonar, Yxna-Þór­is­sonar, nam Dranga­land ok Dranga­vík til Enginess ok bjó at Drǫngum alla ævi. [...] Herrøðr hvíta­ský var gǫfugr maðr; hann var drep­inn af ráðum Haralds kon­ungs, en synir hans þrír fóru til Íslands ok námu land á Strǫndum: Eyvindr Eyvind­ar­fjǫrð, Ófeigr Ófeigs­fjǫrð, Ingólfr Ing­ólfs­fjǫrð; þeir bjǫggu þar síðan.“

Stóra málið í stefn­unni snýst um landa­merkin milli Dranga­víkur og Engja­ness og kemur þar fram að ekki séu til skýrar heim­ildir um til­urð og afmörkun Engja­ness. Hún sé ekki land­náms­jörð en virð­ist hafa fengið land frá Dranga­vík og Eyvind­ar­firði. Vísað er til mál­daga Staf­holts­kirkju þar sem segir m.a. um eignir kirkj­unnar: „Engi nes a strondum norðr [ok] reki með.“

Í Jarðabók Árna Magn­ús­sonar og Páls Vídalín yfir Tré­kyllis­vík­ur­hrepp frá 1706 segir eft­ir­far­andi um Engjanes:

„Þetta kot hefur aldrei bygt verið, nema fyrir x árum tók það einn maður og flosn­aði upp, síðan hefur það ei bygt verið. Það kann ei að byggj­ast, nema sá sem er í Dránga­vík hafi það með. Þar hefur nú eng­inn maður gagn af sem menn vita.“

Í jarða­mati Stranda­sýslu frá 1804 er dýr­leiki Engja­ness met­inn sex hund­ruð en eig­andi jarð­ar­innar var Staf­holts­kirkja. Þá segir að engin búseta sé á jörð­inni. Enn­fremur segir að hún not­ist aðeins sem beiti­land fyrir næstu jörð, þ.e. jörð­ina Dranga­vík. Ekkert kemur þar fram um afmörkun eða ítök Engja­ness.

Engar upp­lýs­ingar eru um Engjanes í jarða­mati Stranda­sýslu frá 1849 til 1850.

Landamerkjabréfi Drangavíkur var þinglýst árið 1890.
Landa­merkja­bréfi Dranga­víkur var þing­lýst árið 1890.

En þau gögn sem land­eig­endur telja að renni helst stoðum undir kröfur sínar eru hin svoköll­uðu landa­merkja­bréf.

Landa­merkja­bréf er skjal sem hefur að geyma upp­lýs­ingar um landa­merki, auð­kenni þeirra svo sem nátt­úru­leg kenni­leiti, hlaðnar vörður o.þ.u.l. og um skyld efni. Merkja­lýs­ingar þessar voru að mestu leyti skráðar á síð­ustu tveimur ára­tugum 19. aldar í kjöl­farið á settum lögum um landa­merki frá árinu 1882. Ný lög um landa­merki tóku gildi árið 1919 og eru þau enn í fullu gildi. Þessar lýs­ingar eru geymdar í landa­merkja­bókum, en unnt er að nálg­ast þær hjá við­kom­andi sýslu­manns­emb­ætti og á vef Þjóð­skjala­safns Íslands.

Landamerkjabréfin dregin fram

Er upp komst síð­asta sumar að landa­merki þau sem notuð voru á skipu­lags­upp­dráttum Árnes­hrepps, sem eru þau sömu og Vest­ur­verk hefur stuðst við, voru ekki þau sem stað­kunn­ugir töldu sig þekkja, var farið að skoða málið nánar.

Í ljós kom að þing­lýst landa­merkja­bréf Dranga­víkur er dag­sett 2. júlí 1890. Því var þing­lýst sama dag við mann­tals­þings­rétt að Árnesi, og hljóðar svo:

„Landa­merkja­skrá fyrir jör­dina Dranga­vík í Árnes­hreppi. Milli Dranga er Dranga­tangi við sjó­inn sjón­hend­ing af lægsta Skar­datind­inum á vördu þá sem er á Klett­unum skammt fyrir ofan sjó­inn og svo eptir þeirri línu til sjóar. En milli Dranga­víkur og Engjanes er Þrælsk­leif og nor­dan­verdu kúp­óttur klettur og varda beint upp af honum. Kál­hólmar 3 med Ædar­varpi.“

Landa­merkja­bréf Engja­ness er einnig dag­sett 2. júlí 1890. Því var þing­lýst sama dag og hljóðar svo:

„Landa­merkja­skrá fyrir eyði­jör­dina Engjanes í Árnes­hreppi. Hornmark milli Engjanes og Dranga­víkur er Þrælsk­leif, þadan beint til fjalls, svo eptir hæstu fjalls­brún ad Eyvind­ar­fjardará en hún ræður merkjum til sjóar milli Engja­ness og Ófeigs­fjardar.“

Landa­merkja­bréf Ófeigs­fjarðar er dag­sett 21. jan­úar 1890, en því var þing­lýst 2. júlí sama ár og hljóðar svo:

„Landa­merki fyrir jör­dinni Ófeigs­firði í Árnes­hreppi innan Stranda­sýslu. Land jardar­innar er frá Helga­skjóli og nordur ad Eyvind­ar­fjardará og eru þar skír landa­merki, fram til fjalls á Ófeigs­fjör­dur svo langt sem vötnum hallar að Ófeigs­fjarð­ar­landi og liggur því undir Ófeigs­fjörð allur Húsa­dalur og allur Sýrár­dalur út á Selja­nes­múla ad vör­dum þeim, sem skilja milli Ófeigs­fjardar og Selja­nes­lands. Á sjó á Ófeigs­fjör­dur út þangað til Helga­skjól er ad bera í landa­merkja­vördu, sem þar er uppi á múl­anum, þ.e. Ófeigs­fjörður á nokkuð lengra á sjó úteptir en á landi.“

Í maí árið 1921 seldi Guð­mundur Pét­urs­son hálfa jörð­ina Ófeigs­fjörð til Péturs Guð­munds­sonar. Landa­merki jarð­ar­innar eru skráð í kaup­samn­ing­inn í afsals- og veð­mála­bók Stranda­sýslu að því er fram kemur í stefn­unni og þau eru eft­ir­far­andi:

„Milli Selja­ness og Ófeigs­fjarðar í læk, er fellur til sjávar hjá svo­nefndu Helga­skjóli, ræður hann merkjum frá sjó að vörðu á múla­brún­inni þar upp af, þaðan sjón­hend­ing eptir sömu stefnu uppá hámúl­ann. – Milli Dranga­víkur og Ófeigs­fjarðar ræður Eyvind­ar­fjarð­ará merkjum frá sjó til upp­taka, en á aðra vegu á Ófeigs­fjörður land eins langt og vötn falla þar til sjávar.“

Meiri­hluti land­eig­enda Dranga­víkur gerðu gang­skör að því að sýslu­maður leit­aði sátta um landa­merkja­á­grein­ing­inn sam­kvæmt lögum um landa­merki „en af hálfu eig­enda Engja­ness og Ófeigs­fjarðar var talið þýð­ing­ar­laust að reyna slíkar sættir,“ segir í stefn­unni.

Land­eig­end­urnir telja að þegar Dranga­vík var ásamt Dröngum numin á land­náms­öld hafi land­námið náð til vatna­skila á Dranga­jökli og hafi landið fylgt jörð­inni allar götur síðan og að land Ófeigs­fjarðar, hafi verið þar sunnan við. Engar vís­bend­ingar eða skrif­legar heim­ildir séu um annað.

Þá telja þeir að í þeim til­vikum sem öðrum heim­ildum sé ekki til að dreifa um merki land­náms­jarða hafi almennt verið litið svo á að land hafi verið numið milli fjalls og fjöru. Því megi álykta að lönd land­náms­manna á Ströndum hafi náð frá hábungu á vatna­skilum í vestri og til sjávar.

Drangaskörð.
Dranga­skörð.

Samkvæmt landa­merkja­bréfi Engja­ness var jörðin með skýrt afmarkað land á alla vegu og hring­ur­inn lok­að­ist við Eyvind­ar­fjarðarána. „Þegar haft er í huga að Engjanes verður til síðar en land­náms­jarð­irnar þá er skilj­an­legt hvers vegna sú ein jörðin er með afmarkað land á alla vegu en Dranga­vík og hinar land­náms­jarð­irnar eru áfram með sitt afréttar- eða eign­ar­land upp að vatna­skilum,“ segir í stefn­unni.

Land­eig­endur Dranga­víkur telja ljóst af merkja­lýs­ingu í landa­merkja­bréfi Engja­ness að jörðin Engjanes sé afmörkuð sneið úr því landi sem liggi á milli jarð­anna Ófeigs­fjarðar og Dranga og að land hennar nái hvergi upp fyrir Eyvind­ar­fjarð­ará. Þetta fær að þeirra mati stuðn­ing í nið­ur­stöðum úrskurðar óbyggða­nefndar um Dranga­jök­ul­svíð­erni sem birtur var á þessu ári. Í nið­ur­stöðum nefnd­ar­innar er fjallað nokkuð um kröfur Engja­ness og eru leiddar líkur að því til­vísun landa­merkja­bréfs Engja­ness til vatna­skila eigi við vatna­skil á Dranga­vík­ur­fjalli en síður ofan við svo­kallað Efra-Dranga­vík­ur­vatn. Þar segir m.a.:

„Telja verður ljóst að þar sem merkjum Engja­ness er lýst frá Þrælsk­leif „beint til fjalls“ og svo „eptir hæstu fjalls­brún“ sé a.m.k. átt við fram­an­greind vatna­skil á Dranga­vík­ur­fjalli, enda liggur Dranga­vík­ur­fjall beint upp af Þrælsk­leif, myndar skýr skil milli vatna­sviða Eyvind­ar­fjarð­arár og Dranga­vík­urár og eðli­legt má telja að vísa til hæstu brúna þess sem „hæstu fjalls­brúnar“.

Í frétta­til­kynn­ingu frá eig­endum Dranga­víkur segir að ástæða þess­ara aðgerða þeirra sé „vilji til að óbyggðir Ófeigs­fjarð­ar­heiðar, vatns­föllin, foss­arnir og strand­lengjan fái að vera óröskuð um ókomna tíð og nátt­úran fái að þró­ast á eigin for­sendum. Hval­ár­virkjun mun ekk­ert gera fyrir mann­líf á Ströndum norður, heldur þvert á móti eyði­leggja þá mögu­leika sem fel­ast í nátt­úru­vænni upp­bygg­ingu atvinnu­lífs til fram­tíðar. Hval­ár­virkjun er ekki nauð­syn­leg til að tryggja raf­orku­ör­yggi á Vest­fjörðum og bygg­ing hennar myndi enn­fremur leiða til nei­kvæðra umhverf­is­á­hrifa af háspennu­línum og veg­slóðum í óbyggðum.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Hvalárvirkjun

Mest lesið undanfarið ár