Bann við vinstri beygju tekið til skoðunar en það hefði aukið umferð á öðrum stöðum

Horft er til þess að mislæg lausn verði gerð fyrir vinstri beygjur af Reykja­nesbraut inn á Bústaðaveg, í tillögum sem Vega­gerðin hefur unnið í samstarfi við borgina. Hugmynd um að banna vinstri beygju inn Bústaðaveg var líka skoðuð.

Þegar samgöngusáttmálinn var settur saman árið 2019 var stefnt á að hafa breytingar á gatnamótum Bústaðavegar og Reykjanesbrautar klár árið 2021. Það varð ekki, en nú hillir undir lausn.
Þegar sam­göngusátt­mál­inn var settur saman árið 2019 var stefnt á að hafa breyt­ingar á gatna­mótum Bústaða­vegar og Reykja­nes­brautar klár árið 2021. Það varð ekki, en nú hillir undir lausn. Mynd: Skjáskot úr kynningarmyndbandi um samgöngusáttmálann

Bann við vinstri beygju af Reykja­nesbraut og inn á Bústaðaveg er á meðal þess sem Vega­gerðin hefur verið með til skoðunar varðandi útfærslu gatnamóta þar, en sú lausn að breyttum gatna­mótum hefur ekki orðið ofan á.

Vega­gerðin hyggst fara með tillögur að skipulagi vegna gatna­mótanna fyrir skipulagsráð Reykja­víkurborgar í haust, en svæðið í heild verður skipulagt með framtíðar­legu Borgar­línu í huga.

Bryndís Friðriks­dóttir samgöngu­verk­fræðingur og svæðis­stjóri Vega­gerðarinnar á höfuð­borgar­svæðinu segir aðspurð við Kjarnann að sá kostur að banna einfald­lega vinstri­beygjuna inn á Bústaðaveg og út af honum, sem bent hefur verið á að myndi um leið eyða þörfinni fyrir hvoru tveggja mislæg gatnamót og umferðar­ljós á Reykja­nesbrautinni, myndi auka umferðina á Sogavegi, Réttar­holtsvegi og í slaufunum fyrir neðan Ártúns­brekkuna.

Lausnin myndi því í raun ekki samræmast markmiðum samgöngu­sáttmála höfuð­borgar­svæðisins um greiðari samgöngur.

Í tillögunum sem fara til borgarinnar er því horft til þess að umferð af Reykja­nesbraut inn á Bústaðaveg fari um mislæga lausn í frjálsu flæði og umferðar­ljósin við Sprengi­sand heyri sögunni til.

„Við erum búin að vera í mjög góðu samstarfi við borgina núna síðasta árið við að leysa þessi gatnamót, en þar spilar inn í lota þrjú í Borgar­línu, sem fer frá Mjódd og inn í Vogabyggð og svo áfram niður á BSÍ. Síðastliðinn vetur fór í að útfæra Reykja­nesbrautina og Borgar­línuna í þessu þversniði og sjá í gegnum hvernig við tengjum okkur inn í stöðina í Vogabyggð og upp á Stekkjar­bakkann, þannig að það verði hægt að aka Borgar­línu inn í Mjódd,“ sagði Bryndís í samtali við Kjarnann á dögunum.

Þurfi að tryggja flæði allra samgöngumáta

„Ég vona að fljótlega eftir sumarfrí getum við kynnt þær útfærslur sem hafa verið til skoðunar fyrir skipulags­ráði borgarinnar. Fjölmargar lausnir hafa verið skoðaðar, sem snúa að útfærslu Reykja­nesbrautar, gatna­mótunum við Bústaðaveg og Borgar­línu á þessu svæði,“ segir Bryndís og bætir við að lausnir samgöngu­mannvirkja á svæðinu hafi reynst nokkur áskorun.

„Við erum með dalinn þarna alveg upp við sem er hverfis­verndaður og svo er byggð hinumegin. Og allt stíga­kerfið. Það er verið að reyna að koma þessu haganlega fyrir,“ segir Bryndís einnig.

„Þetta er búið að vera mjög áhugavert verkefni, að reyna að koma fyrir lausnum, af því að þarna sameinar þú allar þrjá samgöngu­mátana. Þú ert með bíla­umferðina, þú ert með Borgar­línu og svo ertu með öflugt hjóla­stígakerfi þarna og þú þarft að tryggja öllum pláss og flæði.

Það verður spennandi þegar við getum farið að sýna þetta í haust,“ segir Bryndís.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár