Veitumál og stál- og steypuverð gætu helst aukið kostnað við Borgarlínu

Búast má við því að kostn­aður við Borg­ar­línu og aðrar fram­kvæmdir í sam­göngusátt­mála höf­uð­borg­ar­svæð­is­ins verði eitt­hvað hærri en áætlað hefur verið. Næsta kostn­að­ar­á­ætlun fyrstu lotu Borg­ar­línu lítur dags­ins ljós eftir að for­hönnun lýkur á næsta ári.

Bryndís Friðriksdóttir svæðisstjóri höfuðborgarsvæðisins og Arndís Ósk Ólafsdóttir Arnalds forstöðumaður verkefnastofu Borgarlínu.
Bryndís Frið­riks­dóttir svæð­is­stjóri höf­uð­borg­ar­svæð­is­ins og Arndís Ósk Ólafs­dóttir Arnalds for­stöðu­maður verk­efna­stofu Borg­ar­línu. Mynd: Arnar Þór

Verð­bólga er á flugi sem ekki hefur sést hér á landi frá því skömmu eftir hrun. Ísland er ekki eyland í þessum efnum, virð­is­keðjur heims­ins eru í hæga­gangi vegna far­ald­urs­ins og stríðs­ins og það er nán­ast allt að verða dýr­ara, líka efnið sem þarf til að byggja vegi, brýr og veg­stokka.

Þær miklu fram­kvæmdir sem eru framundan í sam­göngu­málum á höf­uð­borg­ar­svæð­inu koma eflaust ekki til með að verða ósnortnar af þessum hrær­ingum í efna­hags­málum.

Blaða­maður Kjarnans sett­ist niður með þeim Arndísi Ósk Ólafs­dóttur Arnalds for­stöðu­manni verk­efna­stofu Borg­ar­línu og Bryndísi Frið­riks­dóttur svæð­is­stjóra Vega­gerð­innar á höf­uð­borg­ar­svæð­inu á dög­unum og ræddi meðal ann­ars um kostn­að­ar­á­ætl­anir þeirra verk­efna sem eru framundan, í ljósi verð­bólgu­tíðar.

Uppfærð kostnaðaráætlun Borgarlínu á næsta ári

Spurð út í kostn­að­ar­á­ætlun Borg­ar­línu segir Arndís að hún verði upp­færð eftir hvert hönn­un­ar­stig verks­ins, en um þessar mundir er fyrsta lota Borg­ar­línu í for­hönnun.

„Við munum upp­færa kostn­að­ar­á­ætl­un­ina eftir for­hönnun, sem verður lokið á næsta ári,“ segir Arndís og bætir við að eftir hvert hönn­un­ar­stig minnki óvissan um væntan kostnað við fram­kvæmd­irnar.

Með fyrstu lot­unni er átt við þann kafla sem verður byggður upp fyrir Borg­ar­línu á milli Hamra­borgar og Ártúns­höfða með við­komu í mið­borg Reykja­víkur, en þetta verk á að klár­ast í áföngum á árunum 2026 og 2027 og er lengsta og um leið dýrasta lota borg­ar­línu­fram­kvæmd­ar­innar.

Í kostn­að­ar­á­ætlun fyrsta lot­unnar sem sett var fram sam­hliða frum­drögum verks­ins í upp­hafi árs 2021 var heild­ar­kostn­aður áætl­aður 24,9 millj­arðar króna, en þar af voru 18,65 millj­arðar sem féllu undir sam­göngusátt­mála höf­uð­borg­ar­svæð­is­ins. Samkvæmt honum á alls að veita rúmum 49 millj­örðum króna í upp­bygg­ingu Borg­ar­línu.

Er frum­drögin komu út var kostn­að­ar­ó­vissan metin 40 pró­sent. Það má búast við því að töl­urnar gætu orðið eitt­hvað hærri í upp­færðri kostn­að­ar­á­ætlun, en þær liggja ekki fyrir á þessum tíma­punkti.

„Við munum að sjálf­sögðu koma út með þær upp­lýs­ing­arnar um leið og þær tölur liggja fyrir. Um er að ræða opin­bert fé og það skiptir mjög miklu máli að það sé allt uppi á borðum,“ segir Arndís.

„Stálverð er að hækka og olía hefur verið að hækka og við erum með­vituð um það og það mun vænt­an­lega sjást í næstu kostn­að­ar­á­ætlun,“ bætir hún við.

En er eitt­hvað sem bendir til þess að þetta verði ein­hver veru­leg breyt­ing?

„Ég bara get ekki svarað því, því ég er ekki með þessar tölur í hönd­unum eins og er,“ segir Arndís.

Bryndís svarar því hins vegar til að í dag sé ekk­ert sem endi­lega bendi til þess að veru­legar breyt­ingar verði á kostn­að­ar­á­ætlun fyrstu lotu Borg­ar­línu, en það sé vissu­lega óvissa til staðar.

„Það sem við þekkjum, eins og Arndís sagði, er að óvissan minnkar eftir hvert hönn­un­ar­stig. Við tókum í fyrri kostn­að­ar­á­ætlun fyrir frum­drög Borg­ar­línu þum­al­putta­ó­vissu varð­andi til dæmis veitu­mál, sá þáttur skýrist nánar eftir næstu kostn­að­ar­á­ætlun sem verður gerð eftir for­hönnun og er kannski stærsta breytan sem getur haft áhrif, en við höfum ekki enn séð hvernig það mun þró­ast,“ segir Bryndís.

En þetta á kannski ekk­ert bara við um Borg­ar­línu heldur bara allar fram­kvæmd­irnar sem eru undir í þessum sam­göngusátt­mála?

„Já, og þar sem við erum með stál og steypu vitum við ekk­ert hvernig ein­inga­verð mun þró­ast núna á kom­andi mán­uðum, en sú óvissa er til staðar um allan heim. Það er því stór óvissu­þáttur líka,“ segir Bryndís.

Haldið þið að 120 millj­arðar dugi fyrir öllum verk­efnum sam­göngusátt­mál­ans?

„Nú væri gott að hafa krist­alskúlu,“ segir Arndís og hlær. „Tíminn verður bara að leiða það í ljós held ég, við erum á þeim stað í hönnun á þessum verkum að við erum ekki farin að sjá þessar end­an­legu áætl­anir,“ bætir Bryndís við.

„En við vitum að kostn­aður vegna Sæbraut­ar­stokk­urs verður ekki 2,2 millj­arðar eins og sett var í sátt­mál­ann,“ segir Bryndís, en raunar hefur legið fyrir allt frá und­ir­ritun sam­göngusátt­mál­ans að það verk­efni yrði tölu­vert dýr­ara en þeir millj­arðar sem voru eyrna­merktir því í sátt­mál­anum.

Í dag er horft til þess að áætl­aður kostn­aður við stokk­inn verði 14,5 millj­arðar króna, sam­kvæmt fjár­fest­inga­yf­ir­liti á vef Betri sam­gangna. Hvað kostnað við umferð­ar­stokka varðar segir Bryndís að það skipti miklu hvað er fyr­ir­hugað að hafa ofan á þeim.

Hugmyndir sem unnið er út frá gera ráð fyrir því að töluvert byggingarmagn verði ofan á stokknum við Sæbrautina. Mynd: Arkís
Hug­myndir sem unnið er út frá gera ráð fyrir því að tölu­vert bygg­ing­ar­magn verði ofan á stokknum við Sæbraut­ina. Mynd: Arkís

„Það er allt annað að byggja lok sem á að bera stíga eða garða eða nokk­urra hæða bygg­ingar. Þar getur líka orðið hlaup í kostn­aði,“ segir Bryndís.

Mannaflaþörfin áhyggjuefni

Samkvæmt mats­á­ætlun sem lögð var fram vegna Sæbraut­ar­stokks í síð­asta mán­uði var gengið út frá því að um 250 árs­verk yrðu unnin við bygg­ingu stokks­ins. Blaða­maður spurði út í mann­afla­þörf allra þeirra verk­efna sem eru framundan á höf­uð­borg­ar­svæð­inu, en auk fram­kvæmda við gerð veg­stokka á að fara að ráð­ast í umbreyt­ingar á götum vegna Borg­ar­línu og fleira á allra næstu árum.

Erum við nóg af fólki til að sinna öllum þessum verk­efnum, þegar við ætlum líka að vera að byggja hérna ein­hverjar 3.000 íbúðir á ári?

„Þetta er rosa­lega góð spurn­ing. Við höfum alveg átt nokkur sam­töl um þetta,“ segir Arndís og Bryndís bætir því við að umræða hafi verið um mann­afla­þörf bæði á verk­taka­mark­aði og ekki síður á ráð­gjafa­mark­anum. „Þetta er stöðugt áhyggju­efni hjá okkur,“ segir hún.

„Við ætlum okkur að vera með kynn­ingar eftir sum­ar­frí fyrir verk­tak­ana, um hvað er á döf­inni á næstu miss­erum, þannig að við áttum okkur á því hvað verk­taka­mark­að­ur­inn getur tekið af öllum þessum verkum og líka til þess að gefa þeim „signal“ ef þeir vilja leita sér erlendra sam­starfs­að­ila eða inn­lendra sam­starfs­að­ila,“ segir Bryndís og bætir við að næsti vetur muni fara í að eiga þessi sam­töl að ein­hverju leyti.

Vantar fleiri verkfræðinga í þessa geira

Hún bætir við að það þurfi svo eig­in­lega að fara að ræða meira um það opin­ber­lega hversu umfangs­miklar fram­kvæmdir eru fyr­ir­hug­aðar, „þannig að fólk átti sig á því að sam­göngu­mál, vega­mál, gatna­mál og frá­veitu­mál og fleira séu mark­aðir sem verði mikið að gera í næstu árin og að það sé mjög snið­ugt hjá þeim sem eru í verk- og tækni­fræði að velja þetta fag­svið.“

„Ég held við séum ekki alveg nógu góð að tala um allt sem er í gangi hjá okkur. Nú er ég sam­göngu­verk­fræð­ingur og ég held að maður viti hverjir allir eru, þetta er ekki stór bransi, og svo bæt­ast veg­hönn­uðir við. Og þú þekkir frá­veitu­málin,“ segir Bryndís við Arndísi sem jánkar því að það sé „mjög lít­ill“ bransi hér á landi.

„Ég held að það megi gjarnan tala um það sem er í vændum svo fólk átti sig á því að það sé áhuga­vert að fara inn á þessa braut,“ segir Bryndís.

Arndís bætir því við að við séum núna á spenn­andi tímum, þar sem í tengslum við Borg­ar­línu séu erlendir ráð­gjafar að störfum og hug­myndin sé að þeir skilji þekk­ingu eftir hér­lendis og að það séu ráð­gjaf­arnir með­vit­aðir um að gera. „Ef maður er að fara í verk­fræði, þá held ég að í sam­göngu- og veitu­málum verði alla­vega nóg að gera næstu árin,“ segir hún.

Samgönguverkfræði snúist um að skapa umhverfi fyrir ólíka samgöngumáta

Bryndís, sem er sam­göngu­verk­fræð­ingur, segir að þegar hún sjálf var að velja sér fag­svið hafi umhverf­is­verk­fræði verið að rísa sem svið innan verk­fræð­innar, ef til vill í takt við auknar áherslur á bæði lofts­lags- og umhverf­is­mál.

„Fólk áttar sig almennt ekki á því að sam­göngu­verk­fræði er svo nátengd skipu­lags- og umhverf­is­málum að þú ert að vinna í sömu verkum, í raun og veru, þú ert að reyna að skapa umhverfi fyrir ólíka sam­göngu­máta, svo fólk geti valið hvernig það ferð­ast,“ segir hún.

Í sam­tali við blaða­mann sagð­ist Bryndís stundum upp­lifa umræð­una um kostnað við Borg­ar­línu með svip­uðum hætti og hún upp­lifði umræðu um gerð hjóla­stíga á árum áður.

„Þegar við vorum að byrja að hanna og leggja hjóla­stíga hérna upp úr 2000-2005 þá fussað fólk og svei­aði yfir verði á kíló­metra, þetta væri nú bara pen­ingum illa varið en um leið og þeir fóru að rísa fór fólk að nota þá og það er eng­inn að kvarta yfir því núna að við séum að leggja hjóla­stíga. Það er meira kvartað yfir því að við leggjum ekki nóg af hjóla­stígum.

Við erum bara framar í umræðu með Borg­ar­línu, en ég trúi því að þetta verði sam­bæri­legt og með hjóla­stíg­ana, að um leið og við förum að keyra Borg­ar­línu og fólk fer að átta sig á þessu þá bara vex þörfin og umræðan um að gera meira,“ segir Bryndís.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Borgarlína

ViðtalBorgarlína

Fyrst til að bjóða Betri sam­göngum í kaffi

Bergþóra Þor­kels­dóttir for­stjóri Vega­gerð­ar­innar segir það vera gamla klisju að tala um að Vega­gerðin sé gam­al­dags stofnun. Öllum lyk­il­stjórn­endum hafi verið skipt út frá árinu 2018 og mikil end­ur­nýjun hafi orðið í starfs­manna­hópnum. Hún og Bryndís Frið­riks­dóttir sam­göngu­verk­fræð­ingur sett­ust niður með blaða­manni og ræddu um verk­efni sam­göngusátt­mál­ans. Bergþóra hafnar því að yfir­stjórn Vega­gerð­ar­innar hafi verið ósátt með stofnun félags­ins Betri sam­gangna.

8 mín. lestur

ÚttektBorgarlína

Gam­al­dags Vegagerð sem vill vera aðal

Heim­ildin leit­aði til nokk­urra ein­stak­linga sem hafa með einum eða öðrum hætti komið að verk­efnum sem tengj­ast sam­göngusátt­mála höf­uð­borg­ar­svæð­is­ins og ræddi við þau um Borg­ar­línu, vinnslu verk­efna sátt­mál­ans, fjár­mögnun þeirra og fram­hald. Í sam­töl­unum kom nokkur gagn­rýni kom fram á Vega­gerð­ina fyrir gam­al­dags stofn­anakúltúr og langar boð­leiðir, for­stjór­inn er sagður vilja hafa „putt­ana í öllu“. Yfir­stjórn Vega­gerð­ar­innar er sögð hafa átt erfitt með að sætta sig við að félagið Betri sam­göngur hafi verið stofnað til að halda utan um verk­efni sátt­mál­ans.

8 mín. lestur

Mest lesið undanfarið ár