Bryndís Friðriksdóttir svæðisstjóri höfuðborgarsvæðisins og Arndís Ósk Ólafsdóttir Arnalds forstöðumaður verkefnastofu Borgarlínu.
Bryndís Frið­riks­dóttir svæð­is­stjóri höf­uð­borg­ar­svæð­is­ins og Arndís Ósk Ólafs­dóttir Arnalds for­stöðu­maður verk­efna­stofu Borg­ar­línu. Mynd: Arnar Þór

Áskorun að tryggja flæði á meðan það verður grafið og byggt

Á næstu árum fara í hönd miklar sam­göngu­fram­kvæmdir víða á höf­uð­borg­ar­svæð­inu. Kjarninn ræddi við svæð­is­stjóra Vega­gerð­ar­innar og for­stöðu­mann verk­efna­stofu Borg­ar­línu um stóru verk­efnin sem eru á döf­inni og hvernig á að láta umferð­ina ganga upp á meðan.

Það sem af er sumri hafa verið flutt ný tíð­indi af stórum fram­kvæmdum sem eru hluti af sam­göngusátt­mála höf­uð­borg­ar­svæð­is­ins. Innsýn fékkst í áform­aða fram­kvæmd Sæbraut­ar­stokks er mats­á­ætlun verks­ins var lögð fram fyrir skemmstu og sömu­leiðis var sagt frá því í lið­inni viku að tíma­á­ætl­anir fram­kvæmda við Borg­ar­línu hefðu verið end­ur­skoð­aðar og þeim seinkað.

Kjarninn sett­ist niður með þeim Bryndísi Frið­riks­dóttur svæð­is­stjóra Vega­gerð­ar­innar á höf­uð­borg­ar­svæð­inu og Arndísi Ósk Ólafs­dóttur Arnalds for­stöðu­manni verk­efna­stofu Borg­ar­línu í höf­uð­stöðvum Vega­gerð­ar­innar á dög­unum og ræddi við þær um hinar miklu fram­kvæmdir sem eru framundan á höf­uð­borg­ar­svæð­inu á næstu árum.

Ýmsar spurn­ingar vakna, ekki síst um hvernig umferð­ar­mál á höf­uð­borg­ar­svæð­inu verði látin ganga upp á fram­kvæmda­tíma Borg­ar­línu, Sæbraut­ar­stokks, Miklu­braut­ar­stokks og ann­arra fram­kvæmda, sem munu valda miklu raski árum saman. Þessar spurn­ingar hafa sér­fræð­ingar Vega­gerð­ar­innar verið að glíma við að und­an­förnu og komst Bryndís þannig að orði á opnum fundi í upp­hafi árs að það væri ekki komið fram „neitt gott svar“ um hvernig þetta yrði allt látið ganga upp.

„Þetta verða þung fram­kvæmdaár framundan,“ segir Arndís. Spurð um hvort eitt­hvað valdi sér­stökum áhyggjum segir Bryndís það helst vera að ná að „tryggja flæði“ á umferð, hvort sem um er að ræða umferð einka­bíla, strætó eða hjólandi fólks.

„Eig­in­lega öll þessi verk­efni setja þessa sam­göngu­máta – ég ætla ekki að segja kannski í upp­nám – en það er áskorun að leysa hjá­leiðir á fram­kvæmda­tíma. Það er stóra verk­efnið okkar að tryggja að fólk kom­ist á milli heim­ila og vinnu­staða og skóla á þessum árum. Það þarf að hugsa í lausnum, Strætó þarf að skoða hvernig hann ætlar að aka á fram­kvæmda­tíma og við þurfum að fara að skoða hvernig við leysum hjóla­leiðir. Þegar við tökum Sæbraut­ar­stokk­inn þurfum við að tryggja góða hjóla­leið þarna yfir, þetta er svo þungur ás í dag úr Graf­ar­vog­inum inn á Suð­ur­lands­braut­ina,“ segir Bryndís.

Þar er stefnt að því að setja upp tíma­bundna brú fyrir gang­andi og hjólandi yfir Sæbraut­ina þar til stokk­ur­inn verður klár­aður og segir Bryndís horft til þess að hafa hana þannig gerða að hægt verði að flytja hana í burtu og nýta á öðrum fram­kvæmda­stöðum í fram­tíð­inni.

Tvær akreinar í átt að miðborginni á morgnana?

Í mats­á­ætl­un­inni vegna Sæbraut­ar­stokks var sett fram til­laga að fram­kvæmda­á­ætlun verks­ins og þar kom fram að horft væri til þess að hafa Sæbraut­ina sem 1+1 veg á fram­kvæmda­tím­anum. Er talið berst að þessu segir Bryndís ekki ljóst hvort það verði nið­ur­staðan og greinir frá því að til standi að skoða aðra mögu­leika, til dæmis að leggja þrjár bráða­birgða­akreinar í stað tveggja á meðan á fram­kvæmdum stendur.

Hug­myndin er að akst­urs­stefnan á miðju­akrein­inni verði þá sveigj­an­leg, og hægt verði að beina umferð­inni í þá átt sem straum­ur­inn liggur á hverjum tíma.

„Það væri kostur að geta haft tvær akreinar niður í bæ að morgni og tvær til baka seinni­part­inn,“ segir Bryndís, en játar þó að það sé ekki sér­lega mikið pláss til þess að vinna með, þar sem lóðir liggja alveg upp að fram­kvæmda­svæð­inu. Um 33.500 bílar á dag fóru að með­al­tali um fram­kvæmda­kafl­ann á Sæbraut­inni í fyrra, sam­kvæmt umferð­ar­taln­ingum.

Miklabraut í göng?

Annar umferð­ar­stokkur er fyr­ir­hug­aður undir Miklu­braut. Verið er að vinna að frum­drögum á þeirri fram­kvæmd og enn er margt á huldu um hvernig best sé að ganga til verka. Það er meira að segja til skoð­unar að gera engan stokk, heldur grafa fremur jarð­göng.

Þær Arndís og Bryndís segja tvær ástæður fyrir því að jarð­göng hafa verið tekin til skoð­unar. Í fyrsta lagi séu það umferð­ar­málin, en ef að jarð­göng verða grafin í stað þess að grafa fyrir stokk getur umferðin að mestu gengið sinn vana­gang ofanjarðar á fram­kvæmda­tím­anum og ekki þyrfti að fækka akreinum á Miklu­braut­inni á meðan grafið væri ofan í jörð­ina.

Í öðru lagi eru það veitna­málin, en stórar og miklar vatns- og frá­veitu­lagnir liggja um þau svæði sem þarf að grafa upp ef byggja á umferð­ar­stokk. Arndís þekkir veitu­kerfið vel, enda kom hún inn í stafn borg­ar­línuteym­is­ins úr stjórn­enda­stöðu hjá Veitum. Hún segir stofn­lögn frá­veitu liggja um Kringlu­mýr­ina og hana er bæði flókið og dýrt að flytja. Því kunna göng að verða fýsi­legri.

„Við erum nátt­úrega að byggja inni í borg­ar­um­hverfi og það er svo margt sem þarf til að borg „fún­keri“. Veitur eru ósýni­legar, þær eru undir jörð­inni og það er mik­il­vægt að púsla þessu rétt, það þarf að vera pláss fyrir lagn­irnar og sum­staðar eru ekki margir kostir í að færa lagnir,“ segir Arndís.

„Það er ekki bara að þetta sé flókið, þetta eru líka rosa­lega dýrar lagnir að færa. Það þarf líka að horfa á þetta út frá því, þetta kostar allt og við þurfum að gera þetta á sem hag­kvæm­astan hátt,“ bætir hún við.

Bryndís segir að það sé einmitt þetta sem verði skoðað í frum­draga­vinnu við Miklu­braut­ar­stokk, eða –göng. Fram­kvæmda­kostn­að­ur­inn verði rýndur og einnig afleiddur kostn­aður við veitna­fram­kvæmdir. Auk þess er verið að skoða jarð­fræð­ina og meta „hvort þetta sé ekki örugg­lega ger­legt, bæði stokkur og göng,“ segir Bryndís.

Tímalína þess­ara fram­kvæmda gerir í dag ráð fyrir því að fyrri hluti stokks­ins, eða vest­ari endi hans á milli Snorra­brautar og Rauð­ar­ár­stígs, gæti orðið til­bú­inn á árunum 2025-26. Svo er horft til þess að seinni hlut­inn, lengri part­ur­inn, geti orðið klár á árunum 2029-30. En þessar tíma­á­ætl­anir verða sömu­leiðis rýndar, í frum­draga­vinn­unni sem stendur yfir.

Hug­myndin hefur verið sú að munnar stokks­ins verði í grennd við Kringl­una, á milli Kringlu­mýr­ar­brautar og Háa­leit­is­brautar. „Svo erum við að skoða sam­hliða hvort það væri hag­kvæmt að teygja hann lengra, því veg­ur­inn rís upp á Háa­leit­is­braut og fellur svo aftur, svo það er líka verið að skoða það að teygja hann í átt að Grens­ás­vegi. Við munum líka skoða hvaða áhrif það hefur á umferð eftir bygg­ingu, við viljum nýta mann­virkið og reyna að taka sem mesta umferð af yfir­borði og niður, og erum með það til skoð­unar hvort það breyti ein­hverju að lengja hann,“ segir Bryndís.

Kærumál hangandi yfir Fossvogsbrúnni

Vinna við land­fyll­ingar vegna Foss­vogs­brúar á að hefj­ast í haust, en for­hönnun þess verks er í gangi og verk­hönnun á að hefj­ast í vetur, að sögn Arndísar. Hún bætir við að land­fyll­ingin undir brú­ar­end­ann sé ekki stórt verk­efni en samt sem áður en um að ræða fyrstu fram­kvæmd­ina sem fer af stað sem teng­ist Borg­ar­línu með beinum hætti.

„Þarna verður grafa komin á stað­inn og það er áfangi, í mínum huga alla­vega, og svo byrja fram­kvæmdir við brúnna að á næsta ári,“ segir Arndís og Bryndís bætir því við að fyrsta skrefið í brú­ar­bygg­ing­unni verði það að Veitur færi „risa­stóran raf­streng sem liggur þarna yfir vog­inn. „Það ger­ist í sumar og að því loknu er hægt að fara að hefj­ast handa við fyll­ingar,“ segir Bryndís.

Eins og Kjarninn sagði frá í vor var hönn­un­ar­sam­keppni vegna Foss­vogs­brú­ar­innar kærð, í annað skipti. Nið­ur­staða í því kæru­máli, sem lýtur að því að sig­urteymi Eflu verk­fræði­stofu hefði ekki átt að fá að taka þátt í keppn­inni vegna fyrri ráð­gjaf­ar­starfa í tengslum við brúnna, liggur ekki fyrir.

Bryndís segir „alltaf vont að hafa svona hang­andi yfir“ og að þau hjá Vega­gerð­inni bíði eftir því að fá nið­ur­stöðu í málið, það verði gott að klára það.

Stefnt er að því að Foss­vogs­brú verði til­búin árið 2025, og þrátt fyrir að borg­ar­línu­vagnar verði ekki byrj­aðir að aka um svæðið á þeim tíma­punkti segja þær Bryndís og Arndís að stefnt sé að því að strætó­leiðir geti byrjað að ganga yfir brúnna strax frá upp­hafi.

Gagnrýni sem búist var við hafi ekki komið fram

Eins og sagt var frá í lið­inni viku er nú stefnt að því að fyrsta lota Borg­ar­línu verði til­búin í áföngum á árunum 2026 og 2027. Ýmis skipu­lags­mál sem tengj­ast fram­kvæmdum eru í vinnslu í Kópavogi og Reykja­vík, sveit­ar­fé­lög­unum tveimur sem fyrsta lotan snertir.

Á nokkrum stöðum gera fram­settar áætl­anir ráð fyrir að götu­mynd­inni verði gjör­breytt til að að koma Borg­ar­línu fyrir, eins og til dæmis við Suð­ur­lands­braut. Eins og Kjarninn fjall­aði um í lið­inni viku eru hug­myndir um fækkun hvoru tveggja akreina og bíla­stæða við Suð­ur­lands­braut­ina ekki óum­deildar.

Blaða­maður spurði Arndísi hvort að hún hefði ein­hverja skoðun á því hvort rétt væri að fækka akreinum á þessum kafla Suð­ur­lands­braut­ar­innar. „Ég læt nú bara sam­göngu­verk­fræð­ing­ana um það. Það er eig­in­lega svarið,“ svarar Arndís og hlær, en ákvörð­unin um þetta liggur á end­anum hjá borg­ar­stjórn Reykja­víkur.

Full­trúar meiri­hlut­ans þar bók­uðu á nýlegum fundi umhverfis- og skipu­lags­ráðs að mik­il­vægt væri að „huga að sem hæstri flutn­ings­getu Borg­ar­lín­unnar og miklum gæðum umhverfis hennar þegar end­an­leg ákvörðun um útfærslu hennar“ á Suð­ur­lands­braut­inni yrði tekin.

Bryndís segir að framundan sé frekara sam­ráð við íbúa og hags­muna­að­ila er deiliskipu­lags­til­lög­urnar verða lagðar fram, en blaða­maður hafði á orði að fremur fáar umsagnir hefðu borist um svo­kall­aða skipu­lags­lýs­ingu sem lögð var fram síð­asta vetur.

Bryndís sam­sinnir því og segir raunar að allt frá því að frum­drögin voru lögð fram fyrir rúmu ári, eða í febr­úar 2021, hafi þau hjá Vega­gerð­inni og búist við „miklu meiri umfjöllun og gagn­rýni“ sem hafi svo ekki látið á sér kræla. „En það gæti komið í deiliskipu­lags­ferl­inu, það er ekk­ert úti­lokað,“ segir Bryndís.

Arndís bætir því við að það sé gott að fá athuga­semdir fram. „Því þá getur maður unnið úr þeim og tekið sam­tölin og þá eru meiri líkur á að við sjáum alla vinkla.“

Happafengur frá Danmörku

Verk­efna­stofa Borg­ar­línu er teymi innan Vega­gerð­ar­innar og vinnur náið með sveit­ar­fé­lögum höf­uð­borg­ar­svæð­is­ins, Strætó, Veitum, Betri sam­göngum og fleiri aðilum, en starfs­menn sveit­ar­fé­laga og þess­ara opin­beru fyr­ir­tækja geta gengið að vinnu­að­stöðu í höf­uð­stöðvum Vega­gerð­ar­innar.

Arndís segir að alla jafna séu 10-20 manns að störfum við þau verk­efni sem unnin eru hjá verk­efna­stofu Borg­ar­línu, sem einnig vinnur náið með verk­fræð­ingum Vega­gerð­ar­innar sem eru í stofn­vega-, stokka- og hjóla­stíga­hlutum sam­göngusátt­mál­ans. Enda hanga fram­kvæmd­irnar víða saman.

Borg­ar­línu­verk­efnið er það fyrsta sinnar teg­undar hér­lendis og í raun öðru­vísi verk­efni en Vega­gerðin hefur tek­ist á við áður. Bryndís og Arndís segja frá því að mikil þekk­ing komi inn með erlendum ráð­gjöfum sem hafa verið fengnir að borð­inu.

„Við erum mjög heppin, við erum komin með danskan verk­efna­stjóra með okkur í lið sem er nýkom­inn úr Ála­borg­ar­verk­efn­inu sem er nú komið í fram­kvæmd,“ segir Bryndís og á þar við Plusbus í Álaborg, sem er hrað­vagna­kerfi rétt eins og Borg­ar­línan.

„Þetta er í raun nákvæm­lega eins kerfi og Borg­ar­línan, svo við erum heppin að fá hann um borð, alveg ferskan úr sam­bæri­legu verk­efni,“ sam­sinnir Arndís og blaða­maður spyr hvort danski verk­efna­stjór­inn viti ef til vill hvað eigi að var­ast í verk­efnum af þessum.

Framkvæmdir standa yfir við Plusbus í Álaborg, en þar er um að ræða 12 kílómetra langt hraðvagnakerfi, þar sem strætisvagnar aka um í sérrými að hluta.
Fram­kvæmdir standa yfir við Plusbus í Álaborg, en þar er um að ræða 12 kíló­metra langt hrað­vagna­kerfi, þar sem stræt­is­vagnar aka um í sér­rými að hluta.

Arndís játar því og nefnir sem dæmi að í Ála­borg­ar­verk­efn­inu hafi „þau lent í því að vagn­arnir, sem eru raf­magns­vagnar, hafi verið þyngri en gert var ráð fyrir“ og því hafi þurft að ráð­ast í styrk­ingu veg­anna á ákveðnum stöðum, sem ekki hafi verið gert ráð fyrir í hönn­un­ar­ferl­inu. Þurfti því að leggja meira slit­lag og styrkja suma kafla leið­ar­innar sem Plusbus á að aka eftir. Nú er borg­ar­línuteymið hins vegar með­vitað um þetta og mun skoða þetta þegar orku­gjafi vagna verður val­inn.

Ákvörðun um vagna liggi fyrir í haust

Talandi um vagna, þá segja Arndís og Bryndís að það stytt­ist í að ákvarð­anir liggi fyrir um það nákvæm­lega hvers­konar vagnar verði not­aðir hjá Borg­ar­línu. Sú ákvörðun liggur hjá Strætó, en gengið er út frá því að Strætó verði rekstr­ar­að­ili Borg­ar­lín­unnar.

„Kosn­ing­arnar settu smá töf á svona ákvörð­un­ar­töku, en ég geri ráð fyrir að þetta verði komið með haustinu,“ segir Bryndís og vísar til þess að í aðdrag­anda og eftir sveit­ar­stjórn­ar­kosn­ingar hafi orðið smá hiksti í störfum stjórna og nefnda á vegum sveit­ar­fé­lag­anna.

Arndís segir að það sé „rosa­lega mik­il­vægt“ að ákvörðun um hvernig vagna eigi að nota liggi fyrir, svo að það liggi fyrir í hönn­un­ar­ferl­inu.

Engin stefnubreyting eftir sveitarstjórnarkosningarnar

Arndís og Bryndís eru sam­mála um að sveit­ar­stjórn­ar­kosn­ing­arnar í vor hafi ekki orðið til þess að stefnu­breyt­ing hafi orðið hjá sveit­ar­fé­lögum á höf­uð­borg­ar­svæð­inu í garð Borg­ar­línu, en eig­in­lega öll sveit­ar­fé­lögin hafa óskað eftir því að fram­kvæmdum á þeim lotum sem liggja „inn til þeirra“ verði flýtt.

„Þegar ég var að fylgj­ast með kosn­inga­bar­átt­unni og fannst mér eng­inn tala á móti Borg­ar­línu nema einn flokkur, almennt. Fólk var kannski að tala um að það vildi skoða útfærslur og þess háttar, en það var eng­inn bein­línis á móti, alla­vega svo að ég tæki eftir því. Við höfum ekki fengið nein merki frá sveit­ar­fé­lög­unum um að það séu ein­hverjar breyt­ingar í vændum,“ segir Bryndís.

Arndís segir að henni þyki umræða um Borg­ar­línu vera búin að „breyt­ast og þroskast“ á und­an­förnum miss­erum. „Ég bjóst við því, þegar ég fór að halda fyr­ir­lestra fyrir hina ýmsu hópa, að þurfa að vera að útskýra hvað Borg­ar­lína er og útskýra „konseptið“ og af hverju verið væri að gera þetta, en sam­talið er meira um rekstur og útfærslu,“ segir hún.

„Svo eru öll sveit­ar­fé­lögin búin að senda okkur áskor­anir um að byrja á þeirra leggjum fyrr. Sem er jákvætt, þó maður geti ekki alltaf orðið við því,“ segir Bryndís og hlær, en Arndís skýtur því þá inn að þess sé ekki langt að bíða að hönn­un­ar­ferli seinni lotna Borg­ar­línu fari af stað sam­hliða því sem hönnun fyrstu lotu vindur fram.

„Horft er til þess að hefja vinnu við lotu númer tvö næsta vetur, en það er legg­ur­inn frá Hamra­borg og upp í Lind­irnar,“ segir Bryndís.

„Það er verk­efni hausts­ins og vetr­ar­ins að horfa á hinar lot­urnar – og fara að tíma­setja þær,“ bætir Arndís við.

Hún kom sjálf úr veitu­geir­anum inn í það að stýra verk­efna­stofu Borg­ar­línu og segir að hún hafi fengið hálf­gerða upp­ljómun eftir að hún hóf störf í upp­hafi árs og fór að umgang­ast sam­göngu­verk­fræð­ing­ana sem starfa með henni hjá Vega­gerð­inni.

„Það eru ótrú­lega fáir staðir á höf­uð­borg­ar­svæð­inu þar sem þú getur búið og átt bara einn bíl á heim­ili án þess að það sé vesen. Svo er fólk pirrað yfir umferð­inni. Af hverju ertu ekki bara pirr­aður yfir því að búa á stað sem er þannig skipu­lagður að þú verðir að eiga tvo bíla? Því þetta kostar pen­ing, það kostar pen­inga að reka bíl,“ segir Arndís.

Nánar verður rætt við þær Bryndísi og Arndísi í Kjarn­anum á næstu dögum.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Borgarlína

ViðtalBorgarlína

Fyrst til að bjóða Betri sam­göngum í kaffi

Bergþóra Þor­kels­dóttir for­stjóri Vega­gerð­ar­innar segir það vera gamla klisju að tala um að Vega­gerðin sé gam­al­dags stofnun. Öllum lyk­il­stjórn­endum hafi verið skipt út frá árinu 2018 og mikil end­ur­nýjun hafi orðið í starfs­manna­hópnum. Hún og Bryndís Frið­riks­dóttir sam­göngu­verk­fræð­ingur sett­ust niður með blaða­manni og ræddu um verk­efni sam­göngusátt­mál­ans. Bergþóra hafnar því að yfir­stjórn Vega­gerð­ar­innar hafi verið ósátt með stofnun félags­ins Betri sam­gangna.

8 mín. lestur

ÚttektBorgarlína

Gam­al­dags Vegagerð sem vill vera aðal

Heim­ildin leit­aði til nokk­urra ein­stak­linga sem hafa með einum eða öðrum hætti komið að verk­efnum sem tengj­ast sam­göngusátt­mála höf­uð­borg­ar­svæð­is­ins og ræddi við þau um Borg­ar­línu, vinnslu verk­efna sátt­mál­ans, fjár­mögnun þeirra og fram­hald. Í sam­töl­unum kom nokkur gagn­rýni kom fram á Vega­gerð­ina fyrir gam­al­dags stofn­anakúltúr og langar boð­leiðir, for­stjór­inn er sagður vilja hafa „putt­ana í öllu“. Yfir­stjórn Vega­gerð­ar­innar er sögð hafa átt erfitt með að sætta sig við að félagið Betri sam­göngur hafi verið stofnað til að halda utan um verk­efni sátt­mál­ans.

8 mín. lestur

Mest lesið undanfarið ár