Borgarlínubreytingar á Suðurlandsbraut strjúka fasteignaeigendum öfugt

Nokkrir eig­endur fast­eigna við Suð­ur­lands­braut segja að það verði þeim til tjóns ef akreinum undir almenna umferð og bíla­stæðum við Suð­ur­lands­braut verði fækkað. Unnið er að deiliskipu­lags­til­lögum vegna Borg­ar­línu.

Í frumdrögum að fyrstu lotu Borgarlínu var Suðurlandsbrautin teiknuð upp með þessum hætti. Umferðarskipulag götunnar er enn óútkljáð, og sannarlega ekki óumdeilt.
Í frum­drögum að fyrstu lotu Borg­ar­línu var Suð­ur­lands­brautin teiknuð upp með þessum hætti. Umferð­ar­skipu­lag göt­unnar er enn óút­kljáð, og sann­ar­lega ekki óum­deilt. Mynd: Úr frumdragaskýrslu

Nokkrir rekstr­ar­að­ilar og fast­eigna­eig­endur í nágrenni við Suð­ur­lands­braut sendu inn athuga­semdir og ábend­ingar við svo­kall­aða skipu­lags­lýs­ingu vegna legu Borg­ar­línu frá Steina­hlíð að Katrín­ar­túni, sem lögð var fram til kynn­ingar af hálfu borg­ar­yf­ir­valda í nóv­em­ber síð­ast­liðnum.

Kjarninn óskaði eftir og fékk þessar athuga­semdir afhentar á dög­unum, en þær voru kynntar í umhverfis- og skipu­lags­ráði borg­ar­innar í síð­ustu viku. Áform um mögu­legar breyt­ingar á Suð­ur­lands­braut­inni leggj­ast fremur illa í þá aðila sem sendu inn athuga­semdir.

Unnið að gerð skipulagstillögu

Skipu­lags­lýs­ing er und­an­fari vinnslu deiliskipu­lags sem felur í sér lýs­ingar á því sem fyr­ir­huguð skipu­lags­til­laga á að snú­ast um og þeim mark­miðum sem á að ná fram. Þegar þessi skipu­lags­lýs­ing var lögð fram var boðað að deiliskipu­lags­til­laga fyrir svæðið myndi líta dags­ins ljós í febr­úar á þessu ári. Það gerð­ist þó ekki og ekk­ert bólar á henni enn, en borg­ar­full­trúar í síð­ustu borg­ar­stjórn voru ekki á eitt sáttir um ágæti þess að leggja fram skipu­lags­lýs­ing­una til að byrja með, eins og Kjarninn sagði frá fyrir rösku hálfu ári.

Fækkun akreina og bílastæða í deiglunni

Í tengslum við upp­bygg­ingu Borg­ar­línu hefur verið horft til þess að breyta Suð­ur­lands­braut­inni tölu­vert mikið, sam­fara því sem sér­rými yrði sett fyrir miðju veg­ar­ins. Í frum­drögum að fyrstu lotu Borg­ar­línu, sem horft er mikið til í skipu­lags­vinn­unni, var lagt upp með að akreinum fyrir almenna akandi umferð yrði fækkað um tvær.

Það mál er þó enn óút­kljáð – og segir í skipu­lags­lýs­ing­unni að ljóst sé að breyt­ingin sé „stór“ og „ekki óum­deild“.

[adspot]

Við breyt­ing­arnar sem gera á í götu­mynd­inni er stefnt að því að fækka bíla­stæðum við Suð­ur­lands­braut­ina tölu­vert, en nokkur hluti bíla­stæð­anna við braut­ina standa á landi sem er í eigu borg­ar­innar og utan lóða versl­unar- og atvinnu­hús­næð­is­ins sem stendur við Suð­ur­lands­braut­ina. Þessi áform voru viðruð í skipu­lags­lýs­ing­unni, auk ann­arra aðgerða sem sagðar eru til þess fallnar að „auka gæði umhverf­is­ins og bæta aðgengi við göt­una“, ekki síst með virka ferða­máta og teng­ingar nær­ligg­andi hverfa við Suð­ur­lands­braut­ina í huga.

Sjá fram á mikið tekjufall vegna umferðaröngþveitis og minni umsvifa

Með því að leggja fram skipu­lags­lýs­ing­una var Reykja­vík­ur­borg þannig að hefja form­legt sam­tal við hags­muna­að­ila á svæð­inu um fyr­ir­hug­aðar breyt­ingar. Það sam­tal fer hressi­lega af stað, sam­kvæmt því sem lesa má í athuga­semdum við skipu­lags­lýs­ing­una.

Fyr­ir­tækið Sjón­varps­mið­stöðin, sem á fast­eign­ina við Suð­ur­lands­braut 26 sem hýsir meðal ann­ars fyr­ir­tækin Heim­il­is­tæki og Tölvu­list­ann sem eru syst­ur­fé­lög fyr­ir­tæk­is­ins, sagði hug­myndir um fækkun akreina, bíla­stæða og aflögn vinstri­beygja á Suð­ur­lands­braut­inni „algör­lega óásætt­an­legar“.

Í nokkuð ítar­legu bréfi sem lög­fræði­stofa sendi fyrir hönd fyr­ir­tæk­is­ins sagði að það væri afstaða Sjón­varps­mið­stöðv­ar­innar að fyr­ir­huguð lega Borg­ar­línu í mið­rými göt­unnar myndi leiða til þess að „umferð­ar­öng­þveiti“ skap­að­ist á göt­unni með til­heyr­andi töfum og vand­ræðum fyrir við­skipta­vini versl­ana við Suð­ur­lands­braut­ina.

„Mun þetta óhjá­kvæmi­lega hafa það í för með sér að við­skipta­vinum fækkar eða leita frekar til sam­keppn­is­að­ila, með til­heyr­andi fjár­hags­legu tjóni fyrir versl­un­ar­eig­endur. Telja versl­un­ar­eig­endur að um veru­legt fall á veltu geti verið að ræða,“ segir í bréf­inu frá Sjón­varps­mið­stöð­inni. Einnig segir í bréf­inu að fyr­ir­tækið telji að hús­næði sitt, sem ein­ungis er versl­un­ar­hús­næði, muni falla í verði ef breyt­ing­arnar verði að veru­leika, auk þess sem mögu­leikar á útleigu rýmis í hús­inu muni skerð­ast og vænt leigu­verð lækka.[links]

Sjón­varps­mið­stöðin telur að með þessum til­lögum sé „algjör­lega litið fram­hjá því að versl­anir við Suð­ur­lands­braut, sem og í aðliggj­andi götum svo sem Ármúla og Skeif­unni, eru margar hverjar stór­versl­anir, sem valið hafa versl­unum sínum stað út frá þeirri stað­reynd að þar sé aðgengi fyrir fjölda við­skipta­vina með til­heyr­andi umferð­ar­að­gengi og bíla­stæðum“ og að skipu­lags­lýs­ingin muni valda algjörum for­sendu­bresti fyrir versl­anir eins og þær sem reknar eru í hús­næð­inu við Suð­ur­lands­braut.

Í bréf­inu er bent á að „norðan við Suð­ur­lands­braut, í Laug­ar­dalnum“ sé nægt svæði til að leggja Borg­ar­línu við hlið núver­andi götu, sem þá gæti verið áfram í óbreyttri mynd. Einnig er fyr­ir­hug­aðri fækkun bíla­stæða mót­mælt harð­lega og því komið á fram­færi að fyr­ir­tækið telji að nú þegar sé skortur á bíla­stæðum við Suð­ur­lands.

Fyr­ir­tækið vísar einnig til þess sem fram kemur af hálfu borg­ar­innar í skipu­lags­lýs­ing­unni, að áformin um fækkun akreina séu ekki „óum­deild“. Fram kemur í bréf­inu að fyr­ir­tækið telji óhætt að „taka mun dýpra í árinni og segja að mikil and­staða sé meðal fast­eigna- og versl­un­ar­eig­enda sem og ann­arra atvinnu­rek­enda við Suð­ur­lands­braut við fyr­ir­hug­aðar breyt­ingar á deiliskipu­lagi“.

Fleiri fasteignaeigendur ósáttir

Fast­eigna­eig­endur við Suð­ur­lands­braut 4 og 4a sögðu í tveimur svip­uðum bréfum að nú þegar væri „mik­ill skortur á bíla­stæðum“ við Suð­ur­lands­braut­ina, og mikil umferð við göt­una. „Því gerum við alvar­legar athuga­semdir við hug­myndir Reykja­vík­ur­borgar að fækka bíla­stæðum við ofan­greind hús og í nágrenni sem og að fækka akreinum á Suð­ur­lands­braut­inni,“ sagði í bréfi fast­eigna­eig­end­anna, sem einnig bentu á að á svæð­inu væru ýmsir reitir í þróun og að búast mætti við „mun meiri og þétt­ari byggð á svæð­inu“.

„Það er jákvætt að efla sam­göngur á svæð­inu en við höfnum því að það ger­ist á kostnað bíla­stæða við húsin og fækkun akreina,“ sagði í báðum bréf­unum frá eig­endum eign­anna við Suð­ur­lands­braut 4 og 4a.

Eigendur húss­ins við Suð­ur­lands­braut 16 mót­mæltu einnig fyr­ir­hug­aðri fækkun bíla­stæða og sögðu að með þeim áformum yrði „nán­ast ómögu­legt að reka núver­andi fyr­ir­tæki í hús­inu áfram“ en í hús­inu er auk ann­ars raf­tækja­versl­unin Rafha.

Tannlæknir með böggum hildar

Tann­læknir sem verið hefur með rekstur að Lauga­vegi 163 allt frá árinu 1986 rit­aði skipu­lags­yf­ir­völdum einnig bréf vegna skipu­lags­lýs­ing­ar­innar og dró upp dökka mynd af stöðu mála á svæð­inu. Sagði hann að með því „gíf­ur­lega bygg­inga­magni“ sem borgin hefði heim­ilað á Höfða­torgi hefði umferðin um svæðið auk­ist mikið og „slags­mál um bíla­stæði“ hefðu sífellt auk­ist og aldrei hefði verið „verra að leggja einka­bíl“.

[adspot]

„Í dag myndi mér aldrei detta í hug að hefja rekstur á þessu svæði vegna vönt­unar á bíla­stæðum. Svo til að bæta gráu ofan á svart þá til­kynnið þið um Borg­ar­línu, þó að aðeins brot af við­skipta­vinum mínum noti strætó. Þið eruð með hug­myndir að fækka akreinum í eina sem eykur enn bið­tíma. Nær væri að nýta plássið til að auka bíla­stæði á svæð­inu. 95% af við­skipta­vinum koma á einka­bíl. Það er búið að ræna öllum stæðum við Skúla­götu sem voru þar til staðar áður en nýjasta fram­kvæmdin á Höfða­torgs­reitnum fór í gang. Það eru lík­lega um 330 þús­und einka­bílar í land­inu eða næstum einn bíll á hvern íbúa. Ímyndið þið ykkur hjá Reykja­vík­ur­borg að þessir eig­endur einka­bíla ætli að taka strætó eða Borg­ar­línu? Það er útópía. Það er búið að reyna að troða íslend­ingum í strætó í 40-50 ár og það hefur aldrei tek­ist. Ímyndið þið ykkur að það muni takast nú?“ sagði auk ann­ars í bréfi tann­lækn­is­ins.

Hann spurði einnig hvort borgin teldi að það þýddi eitt­hvað fyrir hann að halda messur yfir við­skipta­vinum sínum og skipa þeim að taka strætó eða Borg­ar­línu. „Þeir myndu telja mig eitt­hvað skrít­inn og vera fljótir að flytja sig um set til ann­ars sér­fræð­ings sem býður upp á bíla­stæði,“ sagði einnig í athuga­semd tann­lækn­is­ins.

Meirihlutinn segist vilja skipulagstillögur sem fyrst

Á fundi umhverfis- og skipu­lags­ráðs í síð­ustu viku lögðu full­trúar meiri­hluta Sam­fylk­ingar, Fram­sóknar, Pírata og Við­reisnar fram bókun þar sem sagði að það væri „stefna meiri­hlut­ans að flýta Borg­ar­línu“ og því legðu full­trú­arnir áherslu á að hratt og vel yrði unnið úr athuga­semd­unum sem komu fram, svo fyrstu drög að deiliskipu­lagi gætu litið dags­ins ljós sem fyrst.

„Mik­il­vægt er að huga að sem hæstri flutn­ings­getu Borg­ar­lín­unnar og miklum gæðum umhverfis hennar þegar end­an­leg ákvörðun um útfærslu hennar á svæð­inu er tekin,“ sagði einnig í bókun meiri­hluta­flokk­anna fjög­urra.

Samkvæmt upp­færðri og seink­aðri tíma­línu um fram­kvæmdir vegna Borg­ar­línu sem birt var í vik­unni er ekki ráð­gert að borg­ar­línu­vagnar fari að aka þessa leið fyrr en árið 2027.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Borgarlína

ViðtalBorgarlína

Fyrst til að bjóða Betri sam­göngum í kaffi

Bergþóra Þor­kels­dóttir for­stjóri Vega­gerð­ar­innar segir það vera gamla klisju að tala um að Vega­gerðin sé gam­al­dags stofnun. Öllum lyk­il­stjórn­endum hafi verið skipt út frá árinu 2018 og mikil end­ur­nýjun hafi orðið í starfs­manna­hópnum. Hún og Bryndís Frið­riks­dóttir sam­göngu­verk­fræð­ingur sett­ust niður með blaða­manni og ræddu um verk­efni sam­göngusátt­mál­ans. Bergþóra hafnar því að yfir­stjórn Vega­gerð­ar­innar hafi verið ósátt með stofnun félags­ins Betri sam­gangna.

8 mín. lestur

ÚttektBorgarlína

Gam­al­dags Vegagerð sem vill vera aðal

Heim­ildin leit­aði til nokk­urra ein­stak­linga sem hafa með einum eða öðrum hætti komið að verk­efnum sem tengj­ast sam­göngusátt­mála höf­uð­borg­ar­svæð­is­ins og ræddi við þau um Borg­ar­línu, vinnslu verk­efna sátt­mál­ans, fjár­mögnun þeirra og fram­hald. Í sam­töl­unum kom nokkur gagn­rýni kom fram á Vega­gerð­ina fyrir gam­al­dags stofn­anakúltúr og langar boð­leiðir, for­stjór­inn er sagður vilja hafa „putt­ana í öllu“. Yfir­stjórn Vega­gerð­ar­innar er sögð hafa átt erfitt með að sætta sig við að félagið Betri sam­göngur hafi verið stofnað til að halda utan um verk­efni sátt­mál­ans.

8 mín. lestur

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár