Laugardalurinn sem bíllaust íþrótta- og útivistarsvæði?

Starfs­hópur um skipu­lags- og mann­virkja­mál í Laug­ar­dal hefur skilað af sér til­lögum og hug­myndum að fram­tíð­ar­skipu­lagi fyrir Laug­ar­dal­inn. Þar er því velt upp hvort koma megi í veg fyrir gegn­u­makstur um Engjaveg og fækka lítið not­uðum bíla­stæðum.

Yfirlitsmynd af Laugardalnum úr umfjöllun starfshópsins. Hér tákna fjólubláir reitir hugmyndir að húsum.
Yfir­lits­mynd af Laug­ar­dalnum úr umfjöllun starfs­hóps­ins. Hér tákna fjólu­bláir reitir hug­myndir að húsum. Mynd: Úr tillögum starfshópsins

Starfs­hópur um skipu­lags- og mann­virkja­mál í Laug­ar­dal, sem skip­aður var í febr­úar árið 2021, skil­aði fyrir skemmstu af sér plaggi með ýmsum til­lögum og skipu­lags­hug­myndum um fram­tíð Laug­ar­dals­ins.

Borg­ar­ráð ræddi um til­lög­urnar á fundi sínum síð­asta fimmtu­dag og vís­aði þeim áfram til umfjöll­unar í skipu­lags- og sam­göngu­ráði, menn­ingar-, íþrótta og tóm­stunda­ráði og íbúa­ráði Laug­ar­dals, en einnig stendur til að borg­ar­stjóri kynni þessar til­lögur og hug­myndir á íbúa­fundi í Laug­ar­dalnum á næst­unni.

Lítið nýttum bílastæðum gæti verið fækkað

Í umfjöllun starfs­hóps­ins er því meðal ann­ars velt upp hvort það gæti verið „fal­leg fram­tíð­ar­sýn“ að sjá Laug­ar­dal­inn sem bíl­laust íþrótta- og útvist­ar­svæði og nefnt að þetta gæti gerst í skrefum, þar sem fyrst yrði lokað fyrir gegn­u­makstur um Engjaveg og svo skoðað í fram­hald­inu hvort ein­hver hluti lítið not­aðra bíla­stæða gætu umbreyst í græn almanna­rými.

Fjallað er um fyr­ir­ferða­mikil bíla­stæðin sem eru við íþrótta­mann­virkin í vest­ur­hluta Laug­ar­dals og bent á að þau séu í það heila „lítið notuð“ og í raun ein­ungis að hluta til fyrir þau til­felli sem þau voru hugsuð fyrir, stór­við­burði sem haldnir eru í Laug­ar­dalnum.

Á und­an­förnum árum hefur t.d. öllum bíla­stæðum beint fyrir framan Laug­ar­dals­völl verið lokað þegar þar fara fram við­burðir sem margir áhorf­endur sækja, til að koma í veg fyrir umferð­ar­teppur í nærum­hverf­inu. Áhorf­endum hefur í stað­inn verið verið bent á að nota aðra ferða­máta eða að leggja bílum sínum fjær og ganga ofan í Laug­ar­dal.

„Engja­vegur var hugs­aður sem hægakst­ur­gata í dalnum og kannski helst til að flýta fyrir rým­ingu þegar stór­við­burðir eru í dalnum. Raunin er að margir nota veg­inn til að „stytta“ sér leið og aka greitt í gegn. Oft hefur verið nefnt að loka á gegn­u­makstur í dalnum,“ segir í plaggi starfs­hóps­ins, sem var sam­kvæmt skip­un­ar­bréfi settur saman af sviðs­stjórum umhverfis- og skipu­lags­sviðs, skóla- og frí­stunda­sviðs og íþrótta- og tóm­stunda­sviðs borg­ar­innar ásamt skrif­stofu­stjóra eigna­skrif­stofu og full­trúa Íþrótta­banda­lags Reykja­víkur.

Ný íþróttahöll á milli þeirrar gömlu og Suðurlandsbrautar

Málefni nýrra þjóð­ar­leik­vanga fyrir knatt­spyrnu, bolta­í­þróttir inn­an­húss og frjálsar íþróttir hafa verið mikið í umræð­unni und­an­farin ár og hafa þau verk­efni verið í sér­far­vegi í við­ræðum á milli rík­is­ins og Reykja­vík­ur­borgar.

Samkvæmt því sem fram kemur í skjali starfs­hóps­ins gera hug­myndir þó ráð fyrir því að nýr Laug­ar­dals­völlur verði á sama stað og núver­andi völlur og að ný þjóð­ar­höll rúmist á milli gömlu Laug­ar­dals­hall­ar­innar og Suð­ur­lands­brautar, með beinni teng­ingu við borg­ar­línu­stöð á Suð­ur­lands­braut.

Þjóð­ar­leik­vangur frjáls­í­þrótta er svo fyr­ir­hug­aður á því svæði sem í dag er æfinga­svæði Þróttar, með­fram Suð­ur­lands­braut­inni, en í stað­inn er Þróttur að fara að fá það svæði sem hefur verið nýtt undir frjálsar íþróttir norðan Laug­ar­dals­laugar.

Í umfjöllun starfs­hóps­ins má lesa að innan hans hafi orðið tal­verð umræða um hvort núver­andi göngu- og hjóla­stígar við Suð­ur­lands­braut­ina verði óbreyttir sem grænn kafli í stíga­kerf­inu eða hvort hjóla­stíg­ur­inn t.d. komi til með að fara upp að Suð­ur­lands­braut­inni er hún umbreyt­ist í borg­ar­götu með til­komu Borg­ar­línu.

Starfs­hóp­ur­inn ræddi um að stækka svæðið fyrir völl­inn og stúku, sem á að vera fyrir allt að 2.000 manns, með því að færa stíg­inn. Einnig ræddi starfs­hóp­ur­inn um hvort fram­lengja ætti akveg­inn Vegmúla inn í Laug­ar­dal­inn og hvort Engja­veg­ur­inn ætti að halda sér í óbreyttri mynd á þessum slóðum.

„Líkleg nið­ur­staða að Vegmúli fram­leng­ist ekki inn í dal­inn sam­kvæmt gild­andi skipu­lagi og að Engja­vegi verði lokað fyrir gegn­um­um­ferð. Vegmúli myndi fara illa saman með borg­ar­línu­stöð og gera sam­teng­ingu frjáls­í­þrótta­hallar og frjáls­í­þrótta­vallar erf­iða,“ segir um þetta í umfjöllun starfs­hóps­ins.[links]

Mikil umhverfisgæði í trjábeltinu meðfram Suðurlandsbraut

Um óbyggða reit­inn á horni Engja­vegar og Suð­ur­lands­brautar er fjallað í til­lögum starfs­hóps­ins. Þar segir að áform séu um upp­bygg­ingu grænna þró­un­ar­lóða á reitnum í takt við græna ásýnd Laug­ar­dals, en jafn­framt að mik­il­vægt sé að „hugsa fyrir fram­leng­ingu trjá­ganga­stígs­ins alveg upp að Borg­ar­línu­stöð.“

Samkvæmt nýsam­þykktu aðal­skipu­lagi Reykja­víkur fram til árs­ins 2040 er gert ráð fyrir því að á mjóum og löngum reit sem kall­ast M2g og liggur upp við Suð­ur­lands­braut­ina bygg­ist upp lágreist byggð á 2-4 hæðum með verslun, þjón­ustu, skrif­stofum og íbúðum.

Í skjali starfs­hóps­ins segir að skyn­sam­legt gæti verið að end­ur­skoða þessa sam­felldu byggð norðan við Suð­ur­lands­braut­ina, en stefna þess í stað fyrst og fremst að afmark­aðri upp­bygg­ingu í tengslum við borg­ar­línu­stöðvar.

„Mögulegt bygg­ing­ar­svæði er háð því að Suð­ur­lands­braut verði end­ur­hönnuð og skal miða við að ekki verði gengið á græn úti­vistar- og íþrótta­svæði í Laug­ar­dalnum. Ljóst er að svæðið er mjög krefj­andi í útfærslu vegna þrengsla, hæð­ar­munar, aðliggj­andi skjól­beltis og stofn­stígs. Mikil umhverf­is­gæði fel­ast í trjá­belt­inu með­fram Suð­ur­lands­braut og stíg­unum í skjóli þess,“ segir í umfjöllun starfs­hóps­ins.

Húsbílabyggð blandist illa við hinn almenna ferðamann

Lang­tíma­stæði fyrir hús­bíla hafa und­an­farin ár verið á tjald­svæð­inu í Laug­ar­dalnum, í næsta nágrenni við Laug­ar­dals­laug­ina, en nokkur fjöldi fólks hefur haft þar fasta búsetu í bílum sínum.

Í skjali starfs­hóps­ins segir að finna þurfi lang­tíma­stæði fyrir hús­bíla á ein­hverjum öðrum stað í Reykja­vík.

„Ekki í Laug­ar­dalnum þar sem þeir bland­ast illa við hinn almenna ferða­mann,“ segir í umfjöllun starfs­hóps­ins um reit­inn sem fer undir tjald­svæðið og far­fugla­heim­ilið í Laug­ar­dalnum, sem mögu­lega verður stækkað einn dag­inn, sam­kvæmt deiliskipu­lagi.

Möguleg uppbygging fyrir aftan stúkuna við Laugardalslaug

Í umfjöllun starfs­hóps­ins segir að til standi að ráð­ist verið í hug­mynda­sam­keppni um Laug­ar­dals­laug og nærum­hverfi hennar. Jafn­framt verði því tengt skoð­aðir upp­bygg­ing­ar­mögu­leikar norðan stúkunnar við sund­laug­ina, en þar er í dag inn­keyrsla út frá Sund­lauga­vegi, nokkur bíla­stæði og ruslagámar.

Einnig er minnst á að bíla­stæðið sem er næst inn­gang­inum að lík­ams­rækt­ar­stöð World Class þveri „mik­il­vægan stíg“ sem liggi með­fram Laug­ar­dals­laug, Laugum og stúku Laug­ar­dalsvallar. „Við­skipta­vinir og starfs­fólk Lauga reyna að finna þar stæði sem fram­kallar óæski­legt hring­sól og þverun stígs­ins í leit að stæðum og býr þannig til ákveðið óör­yggi gagn­vart gang­andi og hjólandi umferð,“ segir í umfjöllun starfs­hóps­ins.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár