Hvernig breytir Borgarlínan götunum?

Frumdrög að fyrstu lotu Borg­ar­línu hafa verið birt. Þar fæst skýr­ari mynd en áður hefur komið fram um hvernig fyr­ir­séð er að Borg­ar­línan breyti sam­göngu­skipu­lag­inu á þeim götum sem hún fer um. Tillaga er gerð um ein­stefnu á Hverf­is­götu.

Fyrstu heild­stæðu til­lög­urnar að útfærslu Borg­ar­lín­unnar líta dags­ins ljós í nýrri skýrslu sem opin­beruð var í dag. Þessi rúm­lega 300 blað­síðna skýrsla inni­heldur frum­drögin að fyrstu lotu Borg­ar­lín­unnar.

Í henni má meðal ann­ars kynna sér hvernig áætlað er að sér­rými Borg­ar­línu muni liggja frá Ártúns­höfða að mið­borg Reykja­víkur, þaðan um svæði bæði Háskóla Íslands og Háskól­ans í Reykja­vík í Vatns­mýr­inni, yfir Foss­vogs­brú, upp Kársnes og að Hamra­borg í Kópavogi.

Reiknað er með að fyrstu tvær Borg­ar­línu­leið­irnar, frá Hamra­borg að mið­borg og Ártúns­höfði að Miðborg, gætu verið teknar í notkun árið 2025, sam­fara heild­stæðri inn­leið­ingu á nýju leiða­neti Strætó.

Heild­ar­kostn­aður við þessa fyrstu lotu Borg­ar­línu er áætl­aður um 24,9 millj­arðar króna, sam­kvæmt skýrsl­unni. Þar af eru um 18,65 millj­arðar sem falla undir fram­kvæmda­á­ætlun Borg­ar­línu og hjóla­leiða­nets, sem eru innan sam­göngusátt­mála höf­uð­borg­ar­svæð­is­ins.

Um 5,5 millj­arðar króna eru áætl­aðir í fram­kvæmdir sem Reykja­vík­ur­borg stendur straum af. Gert er ráð fyrir 40 pró­sent óvissu í kostn­að­ar­á­ætlun á þessu stigi hönn­unar, en slíkt er venjan þegar verk­efni eru á frum­draga­stigi.

Næsta skref er að ráð­ast í for­hönnun verk­efn­is­ins og er gert er ráð fyrir að sú vinna gæti verið langt komin um mitt ár 2022. Í kjöl­far þess kemur að loka­stigi hönn­unar, sem kall­ast verk­hönnun, en stefnt er að því að vinna hana í áföngum þannig að hægt verði að bjóða út fram­kvæmd­irnar jafnt og þétt.

Ný vef­síða Borg­ar­línu var sett í loftið í dag, en þar er búið að taka margt af því sem fram kemur í frum­draga­skýrsl­unni og setja fram með skýr­ing­ar­myndum og útskýr­ingum.

Götumyndir og gatnamót

Það eru ýmsar breyt­ingar á borg­ar­um­hverf­inu sem fylgja þess­ari fyrstu lotu, sem verður allt í allt 14,5 kíló­metra löng. Tillögur að útfærslu hverra ein­ustu gatna­móta á leið­inni eru teikn­aðar upp í skýrsl­unni og sömu­leiðis til­lögur að því hvernig breyta skuli nýt­ingu og ásýnd götu­rým­is­ins á leið­inni. Hafa ber í huga að um frum­drög er að ræða og þessar fyrstu til­lögur geta tekið breyt­ingum síðar í hönn­un­ar­ferl­inu.

Gert er ráð fyrir því að þar sem pláss er nægt verði sér­rými Borg­ar­lín­unnar á tveimur akreinum fyrir miðju og akreinar fyrir almenna umferð og hjóla- og göngu­stígar verði á jöðr­unum. Þannig er svo­kallað „kjör­snið“ Borg­ar­línu upp­byggt, en plássið er þó ekki alls staðar nægt til þess að það sé hægt að útfæra götu­mynd­ina með þessum hætti. Lagt er til að mal­bikið í sér­rými Borg­ar­línu verði rautt á lit­inn.

Í skýrsl­unni er fyrstu lot­unni skipt upp í sex leggi og fjallað er um mis­mun­andi aðstæður í hverjum og einum þeirra. Kjarninn skoð­aði frum­draga­skýrsl­una og tók saman nokkra mola um hvern og einn legg, áætl­aða legu Borg­ar­lín­unnar um mis­mun­andi svæði og breyt­ingar á sam­göngu­skipu­lagi sem lagðar eru til.

Óútfært hvar Elliðaárvogur verður þveraður

Í fyrsta leggnum, frá Ártúns­höfða og að suð­ur­enda Suð­ur­lands­brautar, er að stórum hluta verið að fara um svæði sem er ekki búið að byggja upp, ennþá. Á slíkum svæðum er lítið mál að koma borg­ar­línu­braut­unum hag­an­lega fyrir. Gert er ráð fyrir því að Stór­höfði verði að hluta til bíl­laus gata ofan Breið­höfða, þar sem ein­ungis almenn­ings­sam­göngur og hjólandi og gang­andi fólk fari um.

Fram kemur í skýrsl­unni að ýmis útfærslu­at­riði séu eftir á þessum legg, til dæmis varð­andi hvernig bíla­um­ferð inn í nýja Voga­hverfið verði með til­komu Sæbraut­ar­stokks. Því er ekki enn búið að útfæra end­an­lega legu Borg­ar­línu yfir Elliða­ár­vog­inn, en þar stendur til að byggja brú sem verður ein­ungis fyrir almenn­ings­sam­göngur, gang­andi og hjólandi.

Suðurlandsbraut tekur stakkaskiptum

Annar legg­ur­inn er frá suð­ur­enda Suð­ur­lands­brautar að Hlemmi. Á þessum kafla er í dag að mestu leyti fjög­urra akreina umferð­ar­þung breið­gata, en í frum­draga­skýrsl­unni er gert ráð fyrir miklum breyt­ingum á þessum kafla.

Til dæmis er til­laga um að hring­torgið á gatna­mótum Suð­ur­lands­brautar og Skeið­ar­vogs verði fjar­lægt og ljósagatna­mót sett þar í stað­inn. Síðan er áætlað að Suð­ur­lands­brautin frá Skeið­ar­vogi, með­fram Laug­ar­dalnum og að Lauga­vegi verði með tvö­faldri borg­ar­línu­braut í miðj­unni og einni akrein fyrir bíla sitt­hvoru megin.

Í skýrslunni er umfjöllun um það hvernig mismunandi götumyndir voru metnar með tilliti til margra þátta. Suðurlandsbraut er þar tekin sem dæmi.
Í skýrsl­unni er umfjöllun um það hvernig mis­mun­andi götu­myndir voru metnar með til­liti til margra þátta. Suð­ur­lands­braut er þar tekin sem dæmi.

Einnig er gert ráð fyrir því að hjóla- og göngu­stígar verði beggja vegna Suð­ur­lands­brautar og svæðið undir bíla­stæði fyrir framan bygg­ingar sunnan Suð­ur­lands­brautar verði minnkað veru­lega, en stór hluti þeirra er á landi Reykja­vík­ur­borgar.

Búist er við að þessar breyt­ingar á göt­unni dragi úr umferð­ar­þunga á henni og að bíla­um­ferð leiti annað, þá helst um Sæbraut og Miklu­braut.

Einstefna fyrir bíla á Hverfisgötu

Í umræðum um Borg­ar­línu und­an­farin miss­eri hafa sumir spurt sig að því hvernig eigi eig­in­lega að koma sér­rými fyrir borg­ar­línu­leiðir í gegnum elsta hluta Reykja­víkur, mið­borg­ina. Samkvæmt frum­draga­skýrsl­unni verður Borg­ar­lína aðeins að hluta til í sér­rými í mið­borg­inni.

Tölu­verðar breyt­ingar verða þó gerðar á sam­göngu­skipu­lagi. Gert er ráð fyrir að ein­stefna verði fyrir almenna bíla­um­ferð til aust­urs á Hverf­is­götu og ein­ungis almenn­ings­sam­göngum verði heim­ilt að aka til vest­urs. Einnig er lagt til að Lauga­vegur ofan Hlemms og kafli Hverf­is­götu á milli Snorra­brautar og Bar­óns­stígs verði ein­ungis fyrir almenn­ings­sam­göngur, hjólandi og gang­andi.

Á Hverf­is­göt­unni er gert ráð fyrir að sam­eig­in­legir göngu- og hjóla­stígar verði til hliðar við akbraut­irnar, en þó er einnig búist við að margir kjósi að hjóla á göt­unni. Meðal ann­ars vegna þessa er lagt til að hámarks­hraði á Hverf­is­göt­unni verði 20 km/klst.

Í Lækj­ar­götu er gert ráð fyrir því að Borg­ar­línan verði með tvö­falda braut fyrir miðju og bíla­um­ferð verði á einni akrein hvoru megin. Síðan er gert ráð fyrir að Borg­ar­lína fari um Von­ar­stræti í bland­aðri umferð til vest­urs og þar næst inn Suð­ur­götu áleiðis að Háskóla Íslands, sömu­leiðis í bland­aðri umferð, en ein­stefna er nú þegar í Suð­ur­götu.

Þegar Borg­ar­línan kemur úr hinni átt­inni, frá Háskóla Íslands og að mið­borg­inni, er hins vegar tek­inn öfugur hringur um Tjörnina og farið um Skot­hús­veg og síðan Frí­kirkju­veg, í bland­aðri umferð. Tekið er fram í skýrsl­unni að skoða þurfi hvort brúin yfir Tjörnina á Skot­hús­vegi sé nógu sterk til að þola sífellda umferð allt að 24 metra langra borg­ar­línu­vagna.

Við Frí­kirkju­veg er lagt til að ekið verði í bland­aðri umferð „til að tryggja að ekki þurfi að breikka götu­rýmið með mögu­legum áhrifum á líf­ríki Tjarn­ar­innar.“ Í skýrsl­unni segir þó einnig að líkur séu á að umferð bíla um Frí­kirkju­veg auk­ist tölu­vert á næstu árum og því séu líkur á að Borg­ar­línan lendi þar í töfum. Það þurfi að skoða betur, en á þessum tíma­punkti er ein­ungis lögð til sú breyt­ing á göt­unni að bíla­stæði verði fjar­lægð og göngu- og hjóla­stígar bættir.

Farinn hringur um svæði Háskóla Íslands

Næsti leggur er um svæði Háskóla Íslands, en lagt er til að ekinn verði hringur um svæðið og stoppi­stöðvar verði við Þjóð­minja­safn, Veröld - hús Vigdisar og Vís­inda­garða á Sturlu­götu.

Lagt er til að hring­torgið mikla á gatna­mótum Suð­ur­götu og Hring­brautar verði fjar­lægt og þar komi ljósagatna­mót í stað­inn. Borg­ar­lína verði síðan í sér­rými á Suð­ur­göt­unni að Sturlu­götu og þræði sig svo í bland­aðri umferð gegnum háskóla­svæðið, fram­hjá Vís­inda­görðum og svo aftur yfir Hring­braut­ina að BSÍ. Gert er ráð fyrir ljósagatna­mótum á gatna­mótum Sæmund­ar­götu og Sturlu­götu.

Ákveðið var að stefna að því að fara með Borg­ar­línu inn á háskóla­svæðið, í stað þess að fara ein­fald­lega um Hring­braut. Þessi hringur lengir leið­ina um 700 metra fyrir þá sem ekki eiga erindi á háskóla­svæðið, en var samt talið besta leiðin til þess að stækka far­þega­grunn Borg­ar­línu.

„Háskóla­nemar eru mik­il­vægur mark­hópur almenn­ings­sam­gangna en kalla má Háskóla Íslands fjöl­menn­asta vinnu­stað lands­ins. Auk þess munu margir koma til með að starfa í Vís­inda­görðum í fram­tíð­inni. Lega um Suð­ur­götu og Sturlu­götu nær að sinna þessum mark­hópi betur en lega lín­unnar um Hring­braut,“ segir í skýrsl­unni.

Einnig var til skoð­unar að fara enn lengri hring um háskóla­svæðið og hafa stoppi­stöð á Egg­erts­götu. Það var þó álitið óhag­kvæmara, bæði myndi ferða­tím­inn lengj­ast enn meira fyrir þá sem ættu ekki erindi á svæðið og kostn­að­ar­sam­ara væri að breyta götu­mynd Egg­erts­götu en Sturlu­götu. Umræða um þessa val­kosti er á bls. 218 í skýrsl­unni.

Miklabrautarstokkur breytir aðkomu að Vatnsmýri

Í næsta legg er gert ráð fyrir að Borg­ar­línan þræði sig í sér­rými fram­hjá BSÍ og síðan í gegnum Land­spít­ala­svæðið um nýju göt­una Burkna­götu á leið sinni niður í Vatns­mýri og yfir á Kársnes.

Á Burkna­götu, rétt eins og raunar alls staðar ann­ars­staðar í sér­rými Borg­ar­línu, er gert ráð fyrir að neyð­ar­bílar á borð við sjúkra­bíla megi fara um. Lagt er til að hóp­ferða­bílar og leigu­bílar fái hins vegar ekki að nýta sér sér sér­rýmið.

Á þessum legg er gert ráð fyrir til­komu Miklu­braut­ar­stokks, sem þýðir að Snorra­brautiná að geta farið beint yfir hann inn að Arn­ar­hlíð á Hlíð­ar­enda. Með Miklu­braut­ar­stokknum fær­ist sú mikla bíla­um­ferð sem ein­kennir svæðið neð­an­jarðar.

„Við það gefst tæki­færi til nýrrar notk­unar á svæð­inu og um leið mögu­leiki á að hnýta saman nær­liggj­andi íbúa­hverfi og þró­un­ar­reiti, s.s. Hlíð­ar­enda, Hlíðar, Norð­ur­mýri og Skóg­ar­hlíð, sem í dag eru aftengd með fjöl­förnum gatna­mótum Hring­brautar og Snorra­brautar/Bústaða­vegar,“ segir um þetta í skýrsl­unni.

Miklu­braut­ar­stokkur er sagður mik­il­væg for­senda fyrir þeirri leið sem dregin hefur verið upp og sam­kvæmt því sem fram kemur í skýrsl­unni er stefnt að því að fyrsti hluti þeirrar fram­kvæmdar verði stokka­munn­inn frá enda Hring­brautar upp að Rauð­ar­ár­stíg.

Frá Hlíð­ar­enda á borg­ar­línu­leiðin svo að liggja að Háskól­anum í Reykja­vík, en þar á enn eftir að útfæra nákvæm­lega hvernig aðkoma bæði Borg­ar­línu og bíla verður. Frá HR liggur leiðin svo yfir Foss­vogs­brú, sem ráð­gert er að verði ein­ungis fyrir almenn­ings­sam­göngur, hjólandi- og gang­andi.

Farið um Borgarholtsbraut á Kársnesi

Þegar yfir brúna verður komið fer Borg­ar­línan smá spöl í bland­aðri umferð á Bakka­braut sunnan Vest­ur­varar og að Kópa­vogs­höfn. Síðan fer línan um nýtt tvö­falt sér­rými sem til stendur að byggja upp á vest­ur­enda Borg­ar­holts­brautar, bæði til þess að mýkja beygju­hornið og minnka lang­halla í göt­unni, sem tal­inn er of mik­ill fyrir Borg­ar­línu.

Einungis verður sér­rými í aðra átt­ina á Borg­ar­holts­braut. Lagt er upp með að Borg­ar­holts­brautin verði ein­stefna til vest­urs fyrir almenna umferð austan Þing­holts­brautar og upp að Sundlaug Kópavogs. Í umfjöllun í skýrsl­unni segir að breidd götu­sniðsins milli lóða­marka á Borg­ar­holts­braut setji „þröngar skorður á mögu­legar útfærslur svo sem með breidd stíga og aðskilnað milli ólíkra ferða­máta.“

Borgarlínan mun, þegar hún verður komin í rekstur, fara þessar tvær leiðir og vagnarnir því aka umfram sérrýmið. Sérrýmið mun þó einnig nýtast mörgum öðrum leiðum í strætókerfinu.
Borg­ar­línan mun, þegar hún verður komin í rekstur, fara þessar tvær leiðir og vagn­arnir því aka umfram sér­rýmið. Sérrýmið mun þó einnig nýt­ast mörgum öðrum leiðum í strætó­kerf­inu.

„Við áfram­hald­andi skipu­lags­vinnu fyrir Borg­ar­holts­braut ætti að stefna að því til lengri tíma að breidd göt­unnar verði aukin að ein­hverju marki þannig að koma mætti fyrir góðum aðskildum göngu- og hjóla­stígum. Einnig ætti að stefna að því að inn­keyrslum yrði fækkað eða sam­ein­aðar milli lóða. Væri kjörið að slík stefnu­mörkun, sem og mögu­leg breytt land­notkun á hluta Borg­ar­holts­braut­ar­innar, yrði skil­greind nánar í fyr­ir­hug­aðri Hverf­is­á­ætlun fyrir Kárs­nesið í sam­ráði við íbúa hverf­is­ins,“ segir um þetta í skýrsl­unni.

Frá gatna­mótum við Urð­ar­braut verður Borg­ar­línan í blönd­uðum akstri til aust­urs og með sér­rými til vest­urs en frá Lista­braut að Hamra­borg verður sér­rýmið í báðar áttir og akreinar fyrir aðra umferð beggja vegna að Hamra­borg.

Í umfjöllun um val­kost­ina á Kárs­nes­inu (bls. 296 í skýrsl­unni) kemur fram að skoð­aðar hafi verið fleiri leiðir, en engin þeirra hafi haft kosti umfram það að fara Borg­ar­holts­braut frá Bakka­braut.

Mikil bíla­um­ferð á Kárs­nes­braut var til dæmis talin draga um of úr greið­færni Borg­ar­lín­unnar og sú leið hefði einnig verið með fleiri 90 gráðu beygjur sem lengja ferða­tím­ann. Þá hefði pláss­leysi orðið til þess að ekki hefði verið hægt að hafa jafn mik­inn hluta leið­ar­innar í sér­rými.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Borgarlína

ViðtalBorgarlína

Fyrst til að bjóða Betri sam­göngum í kaffi

Bergþóra Þor­kels­dóttir for­stjóri Vega­gerð­ar­innar segir það vera gamla klisju að tala um að Vega­gerðin sé gam­al­dags stofnun. Öllum lyk­il­stjórn­endum hafi verið skipt út frá árinu 2018 og mikil end­ur­nýjun hafi orðið í starfs­manna­hópnum. Hún og Bryndís Frið­riks­dóttir sam­göngu­verk­fræð­ingur sett­ust niður með blaða­manni og ræddu um verk­efni sam­göngusátt­mál­ans. Bergþóra hafnar því að yfir­stjórn Vega­gerð­ar­innar hafi verið ósátt með stofnun félags­ins Betri sam­gangna.

8 mín. lestur

ÚttektBorgarlína

Gam­al­dags Vegagerð sem vill vera aðal

Heim­ildin leit­aði til nokk­urra ein­stak­linga sem hafa með einum eða öðrum hætti komið að verk­efnum sem tengj­ast sam­göngusátt­mála höf­uð­borg­ar­svæð­is­ins og ræddi við þau um Borg­ar­línu, vinnslu verk­efna sátt­mál­ans, fjár­mögnun þeirra og fram­hald. Í sam­töl­unum kom nokkur gagn­rýni kom fram á Vega­gerð­ina fyrir gam­al­dags stofn­anakúltúr og langar boð­leiðir, for­stjór­inn er sagður vilja hafa „putt­ana í öllu“. Yfir­stjórn Vega­gerð­ar­innar er sögð hafa átt erfitt með að sætta sig við að félagið Betri sam­göngur hafi verið stofnað til að halda utan um verk­efni sátt­mál­ans.

8 mín. lestur

Mest lesið undanfarið ár