Suðurlandsbraut og efsti hluti Laugavegar í deiliskipulagsferli á næstu mánuðum

Til stendur að nýtt deiliskipu­lag fyrir Suð­ur­lands­braut og efsta hluta Lauga­vegar sem felur í sér mótun sér­rýmis fyrir Borg­ar­línu verði kynnt í febr­úar. Skipu­lags­lýs­ing fyrir verk­efnið liggur fyrir og verður kynnt form­lega eftir sam­þykkt borg­ar­stjórnar.

Svæðið sem verður undir í skipulagsferlinu sem er framundan.
Svæðið sem verður undir í skipu­lags­ferl­inu sem er framundan. Mynd: Skjáskot úr skipulagslýsingunni

Borg­ar­ráð Reykja­víkur sam­þykkti á fundi sínum í gær að ráð­ist verði í að kynna svo­kall­aða skipu­lags­lýs­ingu sem varðar umhverfi Suð­ur­lands­brautar og efsta hluta Lauga­vegar í tengslum við fyr­ir­hug­aðar breyt­ingar á göt­unum og nágrenna þeirra í tengslum við fyrsta áfanga Borg­ar­línu. Full­trúar meiri­hlut­ans í borg­ar­ráði kalla þetta mik­il­vægan áfanga.[links]

Skipu­lags­lýs­ingin er und­an­fari vinnslu deiliskipu­lags, en með því að kynna skipu­lags­lýs­ing­una er umsagn­ar­að­ilum, hags­muna­að­ilum og almenn­ingi gef­inn kostur á að leggja fram sjón­ar­mið og ábend­ingar sem að gagni gætu komið við mótun til­lögu að deiliskipu­lagi. Samkvæmt tíma­á­ætlun sem sett er fram í skipu­lags­lýs­ing­unni er gert ráð fyrir því að ný deiliskipu­lags­til­laga fyrir þetta svæði verði lögð fram í febr­úar næst­kom­andi.

Sjálfstæðisflokkur margradda við meðferð málsins

Málið verður tekið fyrir í borg­ar­stjórn áður en ráð­ist verður í form­lega kynn­ingu skipu­lags­lýs­ing­ar­innar og má búast við því að þar verði deilt um málið, en allir þrír borg­ar­ráðs­full­trúar Sjálf­stæð­is­flokks­ins lögð­ust gegn kynn­ingu skipu­lags­lýs­ing­ar­innar í borg­ar­ráði í gær.

Sjálf­stæð­is­flokk­ur­inn hafði áður verið klof­inn í afstöðu sinni til máls­ins í skipu­lags- og sam­göngu­ráði, en þar greiddi Katrín Atla­dóttir borg­ar­full­trúi atkvæði með full­trúum borg­ar­stjórn­ar­meiri­hlut­ans gegn tveimur atkvæðum sjálf­stæð­is­mann­anna Eyþórs Arnalds og Ólafs Kr. Guð­munds­sonar, sem lögð­ust gegn því að skipu­lags­lýs­ingin yrði sett í kynn­ingu.

Í bókun þeirra Eyþórs og Ólafs sagði að sú útfærsla sem væri boðuð í skipu­lags­lýs­ing­unni myndi þrengja að bíla­um­ferð, en unnið er út frá því að akreinum fyrir bíla á Suð­ur­lands­braut verði fækkað eins og lagt er upp með í frum­drögum að fyrstu lotu Borg­ar­línu. Reyndar er í skipu­lags­lýs­ing­unni tekið fram að fyrir liggi að þessi til­tekna breyt­ing sé „ekki óum­deild“ og að skýra þurfi „hvaða val­kostir eru til staðar og sýna hvernig óbreytt umferð­ar­rýmd fyrir bíla á göt­unni hefði áhrif á greið­færni borg­ar­lín­unnar og gæði borg­ar­um­hverf­is­ins við Laug­ar­dal.“

Í bókun Katrínar frá fundi skipu­lags- og sam­göngu­ráðs, sem fram fór 10. nóv­em­ber, var bent á að ekki væri búið að að útkljá fækkun akreina og gera mætti ráð fyrir að hægt yrði að „taka upp­lýsta afstöðu til þess á síð­ari stigum.“ Hún sagði einnig að ítar­legt sam­ráð væri framundan og Sjálf­stæð­is­flokk­ur­inn hefði lagt mikla áherslu á gott sam­ráð.

[adspot]

„Borg­ar­línan er ekki hafin yfir gagn­rýni og það verður mik­il­vægt fyrir íbúa og hag­að­ila að fá tæki­færi til að gera athuga­semdir bæði nú og þegar deiliskipu­lags­til­lagan verður kynnt í febr­úar á næsta ári. Þar sem ein­göngu er um að ræða lýs­ingu á ferli framundan, verið að bjóða upp á aukið sam­ráð, og ég tel rétt að vinna áfram að fram­gangi Sam­göngusátt­mála sem Sjálf­stæð­is­flokk­ur­inn hefur sam­þykkt í sveit­ar­fé­lög­unum í kringum okkur og í rík­is­stjórn, þá sé ég enga ástæðu til ann­ars en að sam­þykkja skipu­lags­lýs­ing­una,“ bók­aði Katrín.

Bjóði upp á „óþarfa menningarstríð í samgöngumálum“

Í borg­ar­ráði lagð­ist Hildur Björns­dóttir borg­ar­full­trúi gegn því að skipu­lags­lýs­ingin færi í kynn­ingu, en þó á öðrum for­sendum en þau Eyþór Arnalds og Val­gerður Sig­urð­ar­dóttir, sem lögðu mesta áherslu á það í bókun sinni á fund­inum í gær að verið væri að þrengja að bíla­um­ferð­inni á Suð­ur­lands­braut með fækkun akreina.

Hildur gerði aðal­lega athuga­semdir við tíma­setn­ingu kynn­ingar skipu­lags­lýs­ingar, en sagði raunar einnig að breyt­ingar á Suð­ur­lands­braut­inni myndu „fyr­ir­séð vekja úlfúð meðal fjölda borg­ar­búa“ og að þær væru ekki til þess fallnar að „fjölga fylg­is­mönnum borg­ar­línu.“

„Þvert á móti ýta þær undir óþarfa menn­ing­ar­stríð í sam­göngu­málum. Full­trú­inn telur mik­il­vægt að vinna að sam­göngu­málum höf­uð­borg­ar­svæð­is­ins í góðri sátt við fólk og fyr­ir­tæki. Tíma­setn­ing skipu­lags­lýs­ingar er hins vegar ekki til þess fallin að skapa slíka sátt enda fyr­ir­séð að breyt­ing­arnar munu ýta undir nei­kvæða umræðu um Borg­ar­línu,“ segir í bókun Hildar, sem seg­ist ekki fá séð að skipu­lags­lýs­ing þurfi að liggja fyrir svona snemma í ferl­inu.

Að hennar mati færi betur á því að kynna lýs­ing­una „þegar vinna við einka­fram­kvæmd Sunda­brautar er hafin og fyr­ir­hug­aðar stokka­lausnir sam­göngusátt­mála eru langt á veg komnar.“

Lykilkafli Borgarlínunnar, segir meirihlutinn

Í bókun borg­ar­ráðs­full­trúa Sam­fylk­ingar, Við­reisnar, Pírata og Vinstri grænna um málið segir að veg­ar­kafl­inn sem er undir í þess­ari skipu­lags­lýs­ingu, frá Steina­hlíð og alla leið að Katrín­ar­túni, gegni „lyk­il­hlut­verki í því að borg­ar­línan í heild sinni verði hágæða BRT-kerfi“ og að mik­il­vægt sé að leggja ríka áherslu á þau gæða­við­mið í deiliskipu­lags­vinn­unni sem er framundan.

„Við leggjum mikla áherslu á að borg­ar­línan eigi að njóta for­gangs þegar kemur að pláss­notkun, í borg­ar­rými og við gatna­mót. Um leið og þessum mik­il­væga áfanga er fagnað er því starfs­fólki sem unnið hefur að þessu stóra verk­efni þakkað,“ segir í bókun meiri­hlut­ans í borg­ar­ráði.

Verður kynnt fyrir fasteignaeigendum við Suðurlandsbraut

Í skipu­lags­lýs­ing­unni kemur fram að umsagna um lýs­ing­una skuli leita víða, eða hjá Skipu­lags­stofnun, Umhverf­is­stofnun, Minja­stofnun Íslands, Borg­ar­sögu­safni Reykja­víkur, Vega­gerð­inni, OR/Veitum, Svæð­is­skipu­lags­nefnd höf­uð­borg­ar­svæð­is­ins, fram­kvæmda­nefnd vatns­verndar á höf­uð­borg­ar­svæð­inu, Strætó bs., Slökkvi­liði höf­uð­borg­ar­svæð­is­ins, Lög­regl­unni á höf­uð­borg­ar­svæð­inu og hinum ýmsu deildum og sviðum Reykja­vík­ur­borgar.

Einnig er tekið fram kynna skuli skipu­lags­lýs­ing­una fyrir lóð­ar­höfum og eig­endum fast­eigna við Suð­ur­lands­braut, íbúa­ráði Háleitis- og Bústaða­hverfis, íbúa­ráði Laug­ar­dals, íbúa­ráði Hlíða­hverfis og íþrótta­sam­böndum og -félögum með aðstöðu í Laug­ar­dal: sér­sam­böndum ÍSÍ með aðstöðu í Laug­ar­dal, Þrótti, Ármanni og TBR – auk þess sem skipu­lags­lýs­ingin skuli kynnt almenn­ingi.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Borgarlína

ViðtalBorgarlína

Fyrst til að bjóða Betri sam­göngum í kaffi

Bergþóra Þor­kels­dóttir for­stjóri Vega­gerð­ar­innar segir það vera gamla klisju að tala um að Vega­gerðin sé gam­al­dags stofnun. Öllum lyk­il­stjórn­endum hafi verið skipt út frá árinu 2018 og mikil end­ur­nýjun hafi orðið í starfs­manna­hópnum. Hún og Bryndís Frið­riks­dóttir sam­göngu­verk­fræð­ingur sett­ust niður með blaða­manni og ræddu um verk­efni sam­göngusátt­mál­ans. Bergþóra hafnar því að yfir­stjórn Vega­gerð­ar­innar hafi verið ósátt með stofnun félags­ins Betri sam­gangna.

8 mín. lestur

ÚttektBorgarlína

Gam­al­dags Vegagerð sem vill vera aðal

Heim­ildin leit­aði til nokk­urra ein­stak­linga sem hafa með einum eða öðrum hætti komið að verk­efnum sem tengj­ast sam­göngusátt­mála höf­uð­borg­ar­svæð­is­ins og ræddi við þau um Borg­ar­línu, vinnslu verk­efna sátt­mál­ans, fjár­mögnun þeirra og fram­hald. Í sam­töl­unum kom nokkur gagn­rýni kom fram á Vega­gerð­ina fyrir gam­al­dags stofn­anakúltúr og langar boð­leiðir, for­stjór­inn er sagður vilja hafa „putt­ana í öllu“. Yfir­stjórn Vega­gerð­ar­innar er sögð hafa átt erfitt með að sætta sig við að félagið Betri sam­göngur hafi verið stofnað til að halda utan um verk­efni sátt­mál­ans.

8 mín. lestur

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár