Saknar einhver fjögurra akreina Skeiðarvogs?

Hrafn­kell Á. Proppé skipu­lags­fræð­ingur seg­ist hafa „trölla­trú“ á því að skyn­sam­leg­ast væri að fækka akreinum fyrir almenna umferð á Suð­ur­lands­braut sam­fara upp­bygg­ingu sér­rýmis Borg­ar­línu. Hann segir dæmin sýna að fólk sakni ekki akreina þegar þær fara.

Hrafnkell Á. Proppé skipulagsfræðingur og fyrrverandi forstöðumaður Verkefnastofu Borgarlínu segist hafa „tröllatrú“ á að best væri að fækka akreinum undir almenna umferð á Suðurlandsbraut.
Hrafn­kell Á. Proppé skipu­lags­fræð­ingur og fyrr­ver­andi for­stöðu­maður Verk­efna­stofu Borg­ar­línu seg­ist hafa „trölla­trú“ á að best væri að fækka akreinum undir almenna umferð á Suð­ur­lands­braut. Mynd: Bára Huld Beck

Hrafn­kell Á. Proppé skipu­lags­fræð­ingur, sem lét af störfum sem for­stöðu­maður Verk­efna­stofu Borg­ar­línu hjá Vega­gerð­inni í haust, segir að hann telji að skyn­sam­leg­ast væri að fækka akreinum fyrir almenna umferð á Suð­ur­lands­braut úr fjórum niður í tvær sam­hliða breyt­ingum á göt­unni með lagn­ingu sér­rýmis undir Borg­ar­línu.

„Ég hef trölla­trú á því að sú til­laga sem lögð var fram í frum­drög­unum, sem gerir ráð fyrir einni bíla­akrein í hvora átt sé skyn­sam­leg­asta lausnin. Við skoð­uðum hina leið­ina, að vera með tvær, en það kom ekki jafn vel út,“ sagði Hrafn­kell í sam­tali við Kjarnann skömmu fyrir jól, en ítar­legt við­tal við Hrafnkel birt­ist síð­asta mið­viku­dag.[links]

Hann segir að horfa þurfi á þróun Suð­ur­lands­braut­ar­innar í sam­hengi við annað sem til standi að gera í umferð­ar­málum á höf­uð­borg­ar­svæð­inu á næstu árum. „Til lengdar erum við að auka afkasta­get­una bíla­lega séð á Miklu­braut­inni og Sæbraut­inni þannig að það er svig­rúm til að draga aðeins úr bíla­af­köstum á Suð­ur­lands­braut­inni. En heild­ar­af­köstin eru miklu betri með því að ráð­stafa pláss­inu með skýr­ari hætti og í örugg­ara umhverfi fyrir þá sem eru að velja almenn­ings­sam­göngur og aðra vist­væna ferða­máta,“ segir Hrafn­kell.

Hann bætir við að hann telji það í reynd bara tíma­spurs­mál hvenær ráð­ist verði í útfærslu Suð­ur­lands­braut­ar­innar með þessum hætti. „Ef það er verið að fara núna í fram­kvæmd­irnar er skyn­sam­legt að gera þetta núna, í stað þess að fara í ein­hvern milli­leik og gera hluta nú og breyta seinna, því það liggja nú þegar til plön um að efri hluti Lauga­vegar sé að fara að breyt­ast með þessum sama hætti,“ segir Hrafn­kell, sem segir að Suð­ur­lands­brautin væri „rök­rétt fram­hald af því“ og heild­ar­af­s­kasta­geta göt­unnar sé að aukast mikið, þrátt fyrir að tvær akreinar undir bíla hverfi á braut.

Alltaf „læti“ þegar akreinar eru fjarlægðar

„En ég get alveg haft skiln­ing á að fólki finn­ist þetta skrítið til­hugs­unar og sjái þetta ekki alveg ger­ast. Það hefur alltaf verið í öllum verk­efnum þar sem hafa verið teknar akreinar,“ segir Hrafn­kell og spyr hvort blaða­maður muni þegar Skeið­ar­vog­ur­inn var þrengdur úr fjórum akreinum í tvær.

Því man blaða­maður ekki eftir, en það var gert skömmu fyrir alda­mót í kjöl­far ákalls íbúa í Voga­hverfi og for­eldra barna við Lang­holts­skóla sem höfðu áhyggjur af hraðri þunga­um­ferð í gegnum hverfið.

Hrafn­kell segir að það hafi orðið dálítið „læti“ þegar þessi ákvörðun var tekin í stjórn­ar­tíð R-list­ans. Stutt leit í greina­safni Morg­un­blaðs­ins stað­festir það, en þar var þreng­ing göt­unnar meðal ann­ars kölluð „skemmd­ar­verk“. „Það er eng­inn að biðja um að Skeið­ar­vogur verði aftur fjög­urra akreina gata,“ segir Hrafn­kell.

[adspot]

Hið sama segir hann að gildi um Grens­ás­veg, en akreinum á hluta hans var fækkað árið 2016. „Það voru ægi­leg læti, en ég hef ekki séð að það sé ákall um það að akreinum á Grens­ás­vegi verði fjölgað úr tveimur í fjórar. Þetta er eitt­hvað sem virð­ist vera ómögu­legt, en þegar búið er að taka ákvörð­un­ina og fram­kvæma, þá er ekki ákall um að fara til baka. Þessu má líkja við þegar reyk­ingar inni á skemmti­stöðum voru bann­aðar. Þá voru tals­verð læti en varla nokkur sem vill svo breyta til baka,“ segir Hrafn­kell.

Þegar blaða­maður sett­ist niður sum­arið 2020 með Hrafn­keli og Lilju G. Karls­dóttur, sem þá voru bæði tvö í for­svari fyrir Verk­efna­stofu Borg­ar­línu, kom fram í máli þeirra að afar mik­il­vægt væri að Borg­ar­lína gæti orðið í sér­rými að eins miklu leyti og hægt væri, til að tryggja áreið­an­leika almenn­ings­sam­gangna.

Síðan þá hefur nokkuð vatn runnið til sjávar, frum­drög að fyrstu lotu Borg­ar­línu voru birt í febr­úar síð­ast­liðnum og blaða­manni lék for­vitni á að vita hvernig Hrafn­kell teldi að það væri að ganga eftir að tryggja sem greið­asta för almenn­ings­vagna um Stór-Reykja­vík í hönn­un­ar­vinn­unni.

Hrafn­kell segir að í frum­drögum hafi verið gert ráð fyrir því að Borg­ar­línan yrði í algjöru sér­rými um 75 pró­sent leið­ar­innar, en að það séu áskor­anir sem bíði varð­andi útfærsl­una, til dæmis á Hverf­is­götu og á öðrum svæðum í hinu þrönga mið­bæj­ar­um­hverfi Reykja­víkur og á Kárs­nes­inu í Kópavogi.

„Ég held að tím­inn og trendin muni hjálpa til, því það verður erf­ið­ara og erf­ið­ara að kom­ast á bíl í mið­bæ­inn. Svo ég hef ekk­ert ofsa­legar áhyggjur af þessu. Flókni hlut­inn er svo það sem er eftir, því borg­ar­línu­leið­irnar tvær sem aka eftir þess­ari fyrstu lotu verða með enda­stöðvar í Spöng­inni ann­ars vegar og hins vegar uppi í Kór­a­hverfi og þar verða áskor­anir við að kom­ast fram hjá ein­hverjum ákveðnum flösku­hálsum. Hvað verður hægt að gera með snjall­tækni ljósa­stýr­inga og hvað kallar á ein­faldar flösku­hálsa­að­gerðir, því hefur ekki verið enn svarað almenni­lega, en það eru verk­efni sem bíða Vega­gerð­ar­innar og Betri sam­gangna að leysa úr,“ segir Hrafn­kell.

Margir hafa væntingar um „alvöru almenningssamgöngur“

Hann seg­ist ekki hafa sér­stakar áhyggjur af greið­færni Borg­ar­lín­unnar, ef frum­drög Borg­ar­línu gangi eftir. „En það má ekki fara að gefa mikla afslætti af þeim. Hálfkák er aldrei gott, og lík­lega betra að hætta við en að fara hálfa leið fjölga for­gangs­reinum hér og þar. Það eru margir sem hafa vænt­ingar um alvöru almenn­ings­sam­göngur og not­enda­hóp­ur­inn mun ekki stækki að ráði nema að um raun­veru­legar betrumbætur verði um að ræða.“

Hann seg­ist þó ekki hafa áhyggjur af því að ákvarð­anir verði teknar sem dragi úr áreið­an­leika kerf­is­ins, þar sem sam­göngusátt­máli höf­uð­borg­ar­svæð­is­ins dragi mjög skýrt fram að það eigi að „stefna að auknu jafn­ræði milli sam­göngu­máta, það á að ná að breyta ferða­venjum og stefna að kolefn­is­hlut­lausu borg­ar­sam­fé­lagi.“

„Þó að þetta séu svona high-level mark­mið hljóta þau að hjálpa til við að taka ákvarð­anir sem geta verið erf­iðar þegar kemur að því að klára ein­staka útfærslur,“ segir Hrafn­kell.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár