Tímalínu framkvæmda við fyrstu lotu Borgarlínu seinkað

End­ur­skoðuð tíma­á­ætlun fram­kvæmda við fyrstu lotu Borg­ar­línu gerir ráð fyrir því að fram­kvæmda­lok verði á árunum 2026 og 2027, en ekki 2024 eða 2025 eins og lagt var upp með. Sam­still­ing við aðrar fram­kvæmdir, eins og Sæbraut­ar­stokk, spila inn í.

Samkvæmt tilkynningu frá Borgarlínu er gert ráð fyrir því að vagnar Borgarlínunnar byrji að ganga á milli Hamraborgar og Háskóla Íslands árið 2025, þrátt fyrir að framkvæmdum á þeim kafla verði ekki að fullu lokið þá.
Samkvæmt til­kynn­ingu frá Borg­ar­línu er gert ráð fyrir því að vagnar Borg­ar­lín­unnar byrji að ganga á milli Hamra­borgar og Háskóla Íslands árið 2025, þrátt fyrir að fram­kvæmdum á þeim kafla verði ekki að fullu lokið þá. Mynd: Borgarlína

Tíma­á­ætl­anir fram­kvæmda vegna Borg­ar­línu hafa verið end­ur­skoð­aðar að und­an­förnu og nú miða áætl­anir við að fram­kvæmda­lok við fyrstu lotu verk­efn­is­ins verði tví­skipt og ljúki á árunum 2026 og 2027. Þetta kemur fram á vef borg­ar­línu­verk­efn­is­ins í dag.

Er skýrsla með frum­drögum fyrstu lot­unnar var kynnt í upp­hafi síð­asta árs var reiknað með því að hægt yrði að taka fyrstu borg­ar­línu­leið­irnar í notkun árið 2025, sam­hliða heild­stæðri inn­leið­ingu nýs leiða­nets Strætó. Áður hafði verið svo jafn­vel verið rætt um að fyrsta lotan gæti verið tekin í notkun árið fyrir árs­lok 2024. Tíma­lín­unni hefur því seinkað nokkuð frá því sem lagt var upp með.

Fram kemur í til­kynn­ingu á vef Borg­ar­línu að fyrstu fram­kvæmdir sem tengj­ast Borg­ar­línu hefj­ist í haust, þegar byrjað verður á land­fyll­ingu við brú yfir Fossvog. Tíma­á­ætl­unin gerir ráð fyrir því að brúin verði til­búin í lok árs 2024 og segir í til­kynn­ing­unni að vagnar Borg­ar­lín­unnar muni byrja að aka á milli Hamra­borg og Háskóla Íslands þegar árið 2025.

Þá verður fram­kvæmdum á þeim kafla leið­ar­innar þó ekki lokið, en upp­færðar áætl­anir miða við að fram­kvæmdum á milli Hamra­borgar og mið­borg­ar­innar verði lokið árið 2026 og að fram­kvæmdum á kafl­anum á milli Ártúns­höfða og mið­borg­ar­innar ljúki árið 2027.

Faraldurinn og Úkraínustríðið á meðal áhrifaþátta

Í til­kynn­ingu á vef Borg­ar­línu segir að „nokkur veiga­mikil atriði“ hafi haft áhrif á tíma­á­ætl­an­irnar. Í fyrsta lagi sé verk­efnið tækni­lega flókið og stilla þurfi ýmsa þætti þess saman með öðrum verk­efnum sam­göngusátt­mála höf­uð­borg­ar­svæð­is­ins sem fram undan eru eða eru þegar hafin.

[adspot]

Dæmi um slíkt verk­efni er til dæmis Sæbraut­ar­stokkur, en eins og Kjarninn sagði frá í síð­ustu viku gerir til­laga sem Vega­gerðin og Reykja­vík­ur­borg hafa lagt fram að fram­kvæmda­á­ætlun Sæbraut­ar­stokks ekki ráð fyrir því að því verki verði að fullu lokið fyrr en árið 2027. Borg­ar­lína á sam­kvæmt áætl­unum að aka ofan á stokknum er hann verður til­bú­inn og þvera þannig Sæbraut­ina.[links]

Í öðru lagi segir svo í til­kynn­ingu frá Borg­ar­línu að COVID-19 far­ald­ur­inn og stríðið í Úkraínu hafi haft áhrif á virð­is­keðjur.

Fram kemur í til­kynn­ing­unni á vef Borg­ar­línu að und­ir­bún­ingur við aðrar lotur Borg­ar­lín­unnar sé að hefj­ast og að sú vinna muni standa yfir fram á næsta ár. Fyrsta lota Borg­ar­lín­unnar er sú lengsta, eða um 14,5 km. „Aðrar lotur eru styttri og þær munu vinn­ast sam­hliða lotu eitt,“ segir í til­kynn­ingu Borg­ar­línu.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Borgarlína

ViðtalBorgarlína

Fyrst til að bjóða Betri sam­göngum í kaffi

Bergþóra Þor­kels­dóttir for­stjóri Vega­gerð­ar­innar segir það vera gamla klisju að tala um að Vega­gerðin sé gam­al­dags stofnun. Öllum lyk­il­stjórn­endum hafi verið skipt út frá árinu 2018 og mikil end­ur­nýjun hafi orðið í starfs­manna­hópnum. Hún og Bryndís Frið­riks­dóttir sam­göngu­verk­fræð­ingur sett­ust niður með blaða­manni og ræddu um verk­efni sam­göngusátt­mál­ans. Bergþóra hafnar því að yfir­stjórn Vega­gerð­ar­innar hafi verið ósátt með stofnun félags­ins Betri sam­gangna.

8 mín. lestur

ÚttektBorgarlína

Gam­al­dags Vegagerð sem vill vera aðal

Heim­ildin leit­aði til nokk­urra ein­stak­linga sem hafa með einum eða öðrum hætti komið að verk­efnum sem tengj­ast sam­göngusátt­mála höf­uð­borg­ar­svæð­is­ins og ræddi við þau um Borg­ar­línu, vinnslu verk­efna sátt­mál­ans, fjár­mögnun þeirra og fram­hald. Í sam­töl­unum kom nokkur gagn­rýni kom fram á Vega­gerð­ina fyrir gam­al­dags stofn­anakúltúr og langar boð­leiðir, for­stjór­inn er sagður vilja hafa „putt­ana í öllu“. Yfir­stjórn Vega­gerð­ar­innar er sögð hafa átt erfitt með að sætta sig við að félagið Betri sam­göngur hafi verið stofnað til að halda utan um verk­efni sátt­mál­ans.

8 mín. lestur

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár