Hönnunarsamkeppni um Fossvogsbrú kærð – aftur

Fyrri vinna Eflu við und­ir­bún­ing Foss­vogs­brúar og náin tengsl lyk­il­fólks hjá Vega­gerð­inni við verk­fræði­stof­una ættu að leiða til ógild­ingar á hönn­un­ar­sam­keppni um Foss­vogs­brú, að mati eins þeirra teyma sem tóku þátt í keppn­inni.

Tillaga Eflu, brúin Alda, varð hlutskörpust í hönnunarsamkeppni um brú yfir Fossvog.
Tillaga Eflu, brúin Alda, varð hlut­skörpust í hönn­un­ar­sam­keppni um brú yfir Fossvog. Mynd: Efla

Aðkoma verk­fræði­stof­unnar Eflu að und­ir­bún­ings­vinnu fyrir Foss­vogs­brú er eitt af all­nokkrum atriðum sem fundið er að, í kæru sem barst í upp­hafi árs til kæru­nefndar útboðs­mála vegna fram­kvæmdar og nið­ur­stöðu hönn­un­ar­sam­keppni um brúnna. Kæran er enn til með­ferðar hjá kæru­nefnd­inni.

Þetta er ekki í fyrsta sinn sem kæra berst vegna hönn­un­ar­sam­keppni þess­arar brúar, en teymið sem nú kærir, Úti og Inni arki­tektar og sam­starfs­að­ilar, var annað tveggja teyma sem kærðu fyrri hönn­un­ar­sam­keppni sem boðað var til árið 2019. Kæru­nefnd útboðs­mála ógilti í kjöl­farið val á sex teymum sem höfðu verið valin til þess að taka þátt í for­vali sam­keppn­innar og hefja þurfti allt ferlið upp á nýtt.

Í kærunni sem nú er til með­ferðar er gerð krafa um að sam­keppnin og nið­ur­staða hennar verði dæmd ógild og áskilja kærendur sér rétt til þess að krefj­ast skaða­bóta og end­ur­greiðslu alls kostn­aðar yfir allt ferlið þar sem þau telja ljóst að þau hafi verið „dregin á asna­eyrum af rík­is­stofn­un­inni Vega­gerð­inni, í meira en tvö ár.“

Segir „ekki í lagi“ að Efla hafi tekið þátt í útboðinu

Vega­gerðin, Reykja­vík­ur­borg og Kópa­vogs­bær standa að gerð hinnar fyr­ir­hug­uðu Foss­vogs­brúar, sem á að bera almenn­ings­vagna, gang­andi og hjólandi veg­far­endur og tengja Kárnesið við Vatns­mýr­ina.

Nið­ur­stöður þeirrar hönn­un­ar­sam­keppni sem nú hefur verið kærð voru kynntar 8. des­em­ber síð­ast­lið­inn og varð brú­ar­lausnin Alda eftir Eflu hlut­skörpust. Fram hefur komið að stefnt sé að því að hefja vinnu við land­fyll­ingar undir brú­ar­sporð­ana strax á þessu ári, en brúin er algjör lyk­il­þáttur í fyrsta áfanga Borg­ar­línu.

Kjarninn ræddi við Baldur Ó. Svav­ars­son arki­tekt og fram­kvæmda­stjóra Úti og Inni fyrir skemmstu og sagði hann blaða­manni að það væri ein­fald­lega „ekki í lagi“ að Efla hefði tekið í þátt í sam­keppn­inni, þar sem fyr­ir­tækið hefði verið í sam­starfi við Vega­gerð­ina og sveit­ar­fé­lögin við gerð deiliskipu­lags og að sama skapi hluti af starfs­hóp um gerð Foss­vogs­brúar.

Baldur sagði við Kjarnann að það væru „mýmörg dæmi“ um að arki­tektar og verk­fræð­ingar ein­fald­lega haldi sig frá opnum sam­keppnum ef þeir hinir sömu hafi komið að ein­hverri for­vinnu sem varða verk­efnin. „Við höfum haldið okkur frá sam­keppnum þar sem við höfum bara mögu­lega hugs­an­lega eitt­hvað van­hæfi,“ segir Baldur.

Í kærunni er bent á að lyk­il­fólk hjá Vega­gerð­inni, þau Bryndís Frið­riks­dóttir, svæð­is­stjóri höf­uð­borg­ar­svæðis og Guð­mundur Valur Guð­munds­son fram­kvæmda­stjóri þró­un­ar­sviðs, sem bæði sitja í stjórn rík­is­fyr­ir­tæk­is­ins, hafi á árum áður verið lyk­il­fólk hjá Eflu og að þátt­tak­endur í sam­keppn­inni um brúnna hafi fengið gögn sem þau tvö unnu um brúna er þau voru starfs­menn Eflu.

Fullyrt er að Vega­gerðin hafi, í andsvörum sínum vegna fyrri kæru vegna sam­keppn­innar, farið með rangt mál um umfang þátt­töku Eflu í und­ir­bún­ings­vinnu fyrir brúnna og að stofn­unin hafi séð sér hag í því að „minnka“ hlut Eflu í und­ir­bún­ings­verk­efnum fyrir hönnun brú­ar­innar.

„Það virð­ist sem umræddir rík­is­starfs­menn og til­teknir sam­göngu­mann­virkja­hönn­uðir Eflu líti á sig sem eina heild sem krossar mörk ríkis og einka­fyr­ir­tækis, þar sem „hóp­ur­inn“ hefur það að mark­miði í sam­ein­ingu að kló­festa flagg­skips­verk­efni, fyrir sig og eigin starfs­frama, verk­efni sem þó skal fjár­magna úr sam­eig­in­legum fjár­hirslum allra lands­manna,“ segir í kærunni.

Þar segir einnig að kærendur telji að þátt­tak­endur í sam­keppn­inni hafi „ekki verið metnir með hlut­lægum hætti“ af hæfnis- og dóm­nefnd­ar­fólki og að „marg­vís­leg tengsl“ þeirra sem sinntu hæfnis- og dóm­nefnd­ar­störfum og und­ir­bún­ings­verk­efnum við Eflu verk­fræði­stofu geti ekki talist til­viljun, auk þess sem þau skapi mikla hættu á upp­lýs­inga­leka.

„Auðvelt hefði verið að velja annað fólk, sem hefur engin tengsl við Eflu Verk­fræði­stofu, en var ekki gert, þrátt fyrir ítrek­aðar ábend­ingar kærenda um að slíkt hefði verið æski­legt,“ segir í kærunni.

Ráðgjöf eða undirbúningur leiði ekki sjálfskrafa til útilokunar

Samkvæmt svari vegna þessa máls sem Kjarninn fékk frá Vega­gerð­inni er málið í hefð­bundnum far­vegi fyrir kæru­nefnd útboðs­mála og hefur stofn­unin tekið til varna, með því að skila inn grein­ar­gerð til nefnd­ar­innar.

Í svari Vega­gerð­ar­innar er einnig bent á að sam­kvæmt 46. grein laga um opin­ber inn­kaup leiði ráð­gjöf eða þátt­taka fyr­ir­tækis í und­ir­bún­ingi inn­kaupa ekki sjálf­krafa til úti­lok­unar þess frá inn­kaupa­ferli, sem síðar fari í hönd.

„Þess í stað hvíla ríkar skyldur á kaup­anda að hann geri nauð­syn­legar ráð­staf­anir til að tryggja að fyrri aðkoma eða ráð­gjöf raski ekki sam­keppni, m.a. með því að láta öðrum þátt­tak­endum og bjóð­endum í té upp­lýs­ingar sem máli skipta og setja hæfi­legan til­boðs­frest,“ segir einnig í svari frá Vega­gerð­inni.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár