Nær 40% Spánverja vilja ekki lýðræði

Tæplega fjórir af hverjum tíu Spán­verjum og 35% Bandaríkja­manna eru hlynntir ólýð­ræð­is­legu stjórnar­fyrir­komulagi með sterkum leiðtoga.

Calle De Alcalá í Madríd, höfuðborg Spánar.
Calle De Alcalá í Madríd, höf­uð­borg Spánar.

Nær 40% allra Spánverja myndu kjósa ólýðræðislegt stjórnar­fyrir­komulag með sterkum leiðtoga fram yfir lýðræði. Hlut­fallið er það mesta sem mælt er á Vestur­löndum, en skoðanir Bandaríkja­manna eru ekki ósvipaðar þeim að miklu leyti. Þetta kemur fram í nýrri frétt El Nacional.

Í fréttinni er fjallað um niður­stöður könnunarinnar World Values Survey, en nýjasta útgáfa hennar tók saman viðhorf í 60 löndum á tíma­bilinu 2010 til 2014. Í könnuninni voru viðmælendur meðal annars spurðir hvert viðhorf þeirra væri til stjórnar­fyrir­komulags sem hefði sterkan leiðtoga og þyrfti ekki að lúta vilja þings eða kosninga. Svar­mögu­leikarnir voru fjórir: Mjög hlynntur, frekar hlynntur, frekar andvígur og mjög andvígur.

Alls voru 7,6% Spánverja mjög hlynntir slíku stjórnar­fyrir­komulagi og 31,9% þeirra frekar hlynntir. Samtals svöruðu því 39,5% spurningunni á jákvæðan hátt, en það hlutfall er það mesta sem mælt var á Vestur­löndum og litlu minna en í Pakistan (42%) og Nígeríu (48%).

Hlutfallið hefur hækkað

Hlutfall þeirra sem vilja andlýðræðislegt stjórnar­fyrir­komulag á spáni hefur stóraukist síðan á tíunda áratugnum, en þá svöruðu einungis um 25% lands­manna spurningunni á jákvæðan hátt. Heilt yfir könnunina fór meira fyrir andlýðræðislegum skoðunum á árunum 2010-2014 heldur en 1995-1997, en umrætt hlutfall hækkaði hjá 23 af 30 löndum sem spurð voru þessarar spurningar.

Í öðru sæti meðal Vestur­landa eru Banda­ríkin, en þar vilja um 30% lands­manna andlýðræðislegt stjórnar­fyrir­komulag samkvæmt könnuninni. Þar hefur hlut­fallið hækkað úr 20% frá tíma­bilinu 1995-1997.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár