Þingmenn Sjálfstæðisflokks vilja fjögurra prósentustiga fylgisþröskuld á ríkisstyrki

Nokkrir þingmenn stærsta flokks landsins vilja að fyrirtæki og einstak­lingar geti styrkt flokka um hærri fjárhæð en nú er heimilt, en enginn flokkur fær meira í styrki frá slíkum en Sjálfstæðis­flokkurinn.

Diljá Mist Einarsdóttir er fyrsti flutningsmaður frumvarpsins.
Diljá Mist Ein­ars­dóttir er fyrsti flutn­ings­maður frum­varps­ins. Mynd: Bára Huld Beck

Fimm þingmenn Sjálfstæðis­flokksins hafa lagt fram frumvarp sem felur í sér að framlög til stjórn­málaflokka úr ríkis­sjóði verði lækkuð og sá atkvæða­þröskuldur sem flokkur þarf að klífa til að fá styrki verði hækkaður úr 2,5 í fjögur prósent. Sú breyting myndi ekki hafa áhrif á þá níu flokka sem fá styrki úr ríkis­sjóði í dag en sá eini þeirra sem náði ekki inn á þing í kosningunum í fyrra­haust var Sósíalista­flokkur Íslands, sem fékk 4,1 prósent atkvæða.

Í frumvarpi er einni lagt til að hver flokkur sem fær að minnsta kosti einn mann kjörinn á Alþingi, og á í dag rétt á 12 milljón króna grunn­rekstrar­framlagi, fái héðan í frá sjö milljónir króna og að styrkir til að mæta útlögðum kostnaði vegna kosninga­baráttu verði aflagðir.

Þá vilja þing­mennirnir fimm; Diljá Mist Einars­dóttir, Berglind Ósk Guðmunds­dóttir, Guðrún Hafsteins­dóttir, Vilhjálmur Árnason og Óli Björn Kárason, að hámarks­greiðslur einstaklinga og lögaðila til stjórn­málaflokka verði hækkaðar úr 550 þúsund krónum í 1,3 milljónir króna.

Flokkar í „öruggum faðmi hins opinbera“

Í greinar­gerð sem fylgir frum­varpinu segir að það sé eindregið mat flutnings­manna þess að sú þróun sem hafi orðið hér á landi vegna hárra framlaga hins opinbera til stjórn­málaflokka dragi úr stjórnmála­starfi flokka og tengslum þeirra við flokks­menn sína og við atvinnu­lífið, enda þurfa flokkarnir sífellt minna á þeim að halda í öruggum faðmi hins opinbera.

Grund­völlur þess að stjórn­málaflokkar séu hornsteinn lýðræðis í landinu sé sá að þar fari fram virk starfsemi og þjóðmála­umræða, en ríkis­kostunin hafi dregið úr hvata flokkanna til að sinna því hlutverki. „Það er öfugþróun enda eru stjórn­málaflokkar einungis skipulögð lýðræðisleg samtök fólksins sem þá myndar. Í framkvæmd hefur fjár­styrkur hins opinbera því hamlað starfsemi og sjálf­stæði stjórn­málaflokka sem gengur þvert á upphaflegt markmið með setningu laganna. Þá hefur fjár­austur hins opinbera til stjórn­málaflokka síst dregið úr umfangs­mikilli kosninga­baráttu, eins og vonast var til með setningu laganna og er miklum fjármunum skatt­greiðenda varið í auglýsinga­herferðir stjórn­málaflokka.“

Píratar vilja fara í allt aðra átt

Þetta er ekki eina frum­varpið sem lagt hefur verið fram í upphafi þings sem snýst um að breyta fjár­mögnun stjórn­málaflokka.

Þing­flokkur Pírata hefur lagt fram frum­varp sem felur í sér að lög­að­ilar megi ekki styrkja stjórn­mála­sam­tök eða stjórn­mála­fólk með beinum hætti. Í núgild­andi lögum mega lög­að­ilar gefa 550 þús­und krónur á ári til stjórn­mála­sam­taka og 400 þús­und krónur á ári til ein­stakra fram­bjóð­enda.

Sömu­leiðis vill þing­flokk­ur­inn að allir afslættir lög­að­ila af vörum og þjón­ustu og veittir eru af mark­aðs­verði verði sér­greindir í reikn­ing­um. „Lög­að­ilar sem inna af hendi ein­hvers konar fram­lög til stjórn­mála­sam­taka eða fram­bjóð­enda, í formi afslátta eða hvers konar efn­is­legra gæða, skulu sér­greina heild­ar­fjár­hæð slíkra fram­laga í árs­reikn­ingum sínum og gera Rík­is­end­ur­skoðun sér­stak­lega grein fyrir þeim afslætti. Telja skal saman fram­lög tengdra aðila. Afslættir mega ekki vera umfram það sem öðrum við­skipta­vinum stendur almennt til boða.“

Í grein­ar­gerð sem fylgir frum­varp­inu segir að núver­andi lög­gjöf stuðli að ójafn­ræði borg­ar­anna þegar komi að styrkjum til stjórn­mála­sam­taka. Til­gangur með hámarks­fjár­hæðum sé sá að eng­inn einn aðili geti í krafti fjár­hags­stöðu sinnar styrkt stjórn­mála­sam­tök um það háar fjár­hæðir að hætta skap­ist á spill­ingu. „Hætt er við að stjórn­mála­sam­tök eða stjórn­mála­fólk freist­ist til að gæta frekar hags­muna styrkt­ar­að­ila umfram hags­muni almenn­ings þegar svo stendur á. Því er mik­il­vægt að borg­ar­arnir njóti jafn­ræðis þegar kemur að styrk­veit­ing­um.“

Þeir ein­stak­lingar sem eigi fyr­ir­tæki geti sem stendur ekki aðeins styrkt stjórn­mála­sam­tök per­sónu­lega heldur einnig í krafti fyr­ir­tækja sinna. „Þetta fyr­ir­komu­lag er ólíð­andi í lýð­ræð­is­sam­fé­lagi og fer í raun þvert á mark­mið lag­anna um að tryggja gagn­sæi, jafn­ræði og að berj­ast gegn spill­ingu. Því er lagt til í frum­varpi þessu að fella brott heim­ild lög­að­ila til að styrkja stjórn­mála­sam­tök og stjórn­mála­fólk með beinum hætt­i.“

Í grein­ar­gerð­inni er einnig bent á að fyr­ir­tæki geti styrkt stjórn­mála­sam­tök óbeint. „Það er ekki óal­gengt að fyr­ir­tæki gefi jafn­vel þjón­ustu sína eða veiti meiri afslátt en gengur og ger­ist gagn­vart öðrum við­skipta­vin­um. Því er nauð­syn­legt að það sé greint frá því á gagn­sæjan hátt til þess að aðrir við­skipta­vinir geti notið sömu kjara.“

Verði frum­varpið sam­þykkt myndi það bitna mest á Sjálf­stæð­is­flokkn­um, sem fékk alls 16,7 millj­ónir króna í fjár­fram­lög frá lög­að­ilum á árinu 2020, sem er síð­asti birti árs­reikn­ingum flokks­ins. Á meðal þeirra lög­­að­ila sem greiddu Sjálf­­stæð­is­­flokknum hámarks­­­styrk upp á 550 þús­und krónur á því ári voru sjá­v­­­ar­út­­­vegs­­fyr­ir­tæki mest áber­and­i. 

Flokkar settir á fjár­lög

Fram­lög til stjórn­­­mála­­flokka úr rík­­is­­sjóði voru hækkuð veru­­lega í byrjun síð­­asta kjör­­tíma­bils. Til­­­­laga sex flokka sem sæti eiga á Alþingi um að hækka fram­lag rík­­­­­­­is­ins til stjórn­­­­­­­­­­­­­mála­­­­­­­flokka á árinu 2018 um 127 pró­­­­­­­sent var sam­­­­­­­þykkt í fjár­­­­­­­lögum sem voru afgreidd áður en þingi var slitið í lok des­em­ber 2017. Fram­lög til stjórn­­­­­­­­­­­­­mála­­­­­­­flokka á því ári áttu að vera 286 millj­­­­­­­ónir króna en urðu 648 millj­­­­­­­ónir króna. Fram­lögin hækk­uðu síðan jafnt og þétt og voru 728,2 millj­ónir króna síð­ustu þrjú ár.

Til við­­­bótar við þær greiðslur er kostn­aður vegna starfs­­­manna þing­­­flokka greiddur af Alþingi.

Í nýfram­lögðu fjár­laga­frum­varpi kemur fram að það eigi að lækka fram­lag til stjórn­mála­flokka úr rík­is­sjóði á árinu 2023, en nú eru þiggj­end­urnir níu þar sem Sós­í­alista­flokkur Íslands upp­fyllir einnig skil­yrði til að þiggja styrk­ina.

Ekki er um stór­kost­lega breyt­ingu að ræða. Fram­lagið verður lækkað úr 728,2 í 692,2 millj­ónir króna á ári, eða um 36 millj­ónir króna.

Fjár­hags­staða flokka hefur kúvenst á fáum árum

Þorri tekna allra flokk­a sem eiga sæti á þingi á árinu 2020 voru fram­lög úr opin­berum sjóð­­um. Í til­­­felli Flokks fólks­ins og Pírata komu 98 pró­­sent tekna úr rík­­is­­sjóði eða frá Alþingi eða sveit­ar­fé­lög­um, í til­­­felli Mið­­flokks­ins var hlut­­fall tekna úr opin­berum sjóðum tæp­­lega 94 pró­­sent, hjá Vinstri grænum 92 pró­­sent og rúm­­lega 91 pró­­sent tekna Við­reisnar komu úr opin­berum sjóð­­um.

Fram­­sókn­­ar­­flokk­­ur­inn sótti 87 pró­­sent tekna sinna á árinu 2020 í opin­bera sjóði, Sam­­fylk­ingin 75 pró­­sent og Sjálf­­stæð­is­­flokk­­ur­inn 66 pró­­sent.

Þessi fram­lög hafa kúvent fjár­hags­stöðu flokk­anna átta. Eigið fé þeirra jókst sam­tals um 748,5 millj­arða króna frá árs­lokum 2017 og til loka árs 2020.

Bjarni vill draga úr opinberum styrkjum

Aukin framlög úr ríkis­sjóði til stjórn­málaflokka hafa verið gagnrýnd víða á undan­förnum árum. Þau komu aftur til umræðu í sumar eftir að Bjarni Benediktsson, formaður Sjálfstæðis­flokksins og fjármála- og efnahags­ráðherra, fór í tvö viðtöl. Í öðru þeirra, við Dag­mál á mbl.is, sagði Bjarni að hann teldi það fjöl­flokka­kerfi sem sé á Íslandi, þar sem átta flokkar eru á þingi og einn til við­bótar hafi ekki verið langt frá því að ná inn, sé að stóru leyti sjálf­sköpuð staða. Flokk­arnir hafi ákveðið að stór­auka fram­lög úr rík­is­sjóði og setja þannig reglur að þeir flokkar sem fá ákveðið hlut­falla atkvæða, 2,5 pró­sent, fái líka mikið fjár­magn, jafn­vel þótt þeir nái ekki inn á þing.

Á Sprengis­andi á Bylgjunni skömmu síðar sagði Bjarni að hann vildi draga úr opin­berum styrkjum til stjórn­mála­flokka og að það veki „at­hygli hve ríf­legur stuðn­ingur er við stjórn­mála­flokka sem engan full­trúa fá kjör­inn á Alþingi í kosn­ing­um.“

Sagði Bjarna vilja ýkja völd Sjálfstæðisflokksins

Gunnar Smári Egils­son, for­maður fram­kvæmda­stjórnar Sós­í­alista­flokks Íslands, svaraði þessu og sagði að hug­renn­ingar Bjarna um að úti­loka smærri stjórn­mála­flokka frá opin­berum styrkjum væru algjör­lega á skjön við það sem ger­ist í okkar heims­hluta. Til­gang­ur­inn væri að ýkja völd Sjálf­stæð­is­flokks­ins umfram fylgi og draga úr áhrifum kjós­enda ann­arra flokka.

Auk þess taldi Gunnar Smári að sögu­legar ástæður væru fyrir afstöðu Bjarna. „Sjálf­stæð­is­flokk­ur­inn stóð fyrir stór­auknum styrkjum til stjórn­mála­flokka snemma á öld­inni, þegar flokk­ur­inn naut mik­ils fylgis og fékk lang mest af þessum styrkj­um. Eftir Hrun minnk­uðu styrkir til flokks­ins í takt við minna fylgi undir for­mennsku Bjarna. Þetta lék fjár­hag flokks­ins illa, segja má að hann hafi étið upp allt það eigið fé sem lá í Val­höll, höf­uð­stöðvum flokks­ins sem verk­taka­fyr­ir­tæki reistu til að launa greiða­semi hans við stór verk­taka­fyr­ir­tæki. Nú hefur flokk­ur­inn hins vegar fengið leyfi til að byggja íbúðir á lóð­inni við Val­höll og mun lík­lega fá 1,5 millj­arð króna að launum í það minnsta. Bjarni og flokk­ur­inn eru því ekki jafn háðir bóta­greiðslum frá rík­inu og áður. Hann treystir sér nú til að hefja umræðu um breytt kerf­i.“

Bjarni svaraði í færslu á Facebook og sagði það rangt hjá Gunn­ari Smára að hann „vilji Sós­í­alista­flokk­inn feig­an“.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár