Píratar vilja banna fyrirtækjum að styrkja flokka og frambjóðendur með beinum hætti

Þing­flokkur Pírata telur að fyrir­komulag þar sem fyrirtækja­eigendur geti bæði styrkt flokka beint og í gegnum fyrirtæki sín sé ólíðandi í lýðræðis­samfélagi. Það fari þvert gegn markmiði laga um að tryggja gagnsæi, jafnræði og að berjast gegn spillingu.

Björn Leví Gunnarsson er fyrsti flutningsmaður frumvarpsins.
Björn Leví Gunn­ars­son er fyrsti flutn­ings­maður frum­varps­ins. Mynd: Bára Huld Beck

Þing­flokkur Pírata hefur lagt fram frumvarp sem felur í sér að lögaðilar megi ekki styrkja stjórnmála­samtök eða stjórnmála­fólk með beinum hætti. Í núgildandi lögum mega lögaðilar gefa 550 þúsund krónur á ári til stjórnmála­samtaka og 400 þúsund krónur á ári til einstakra fram­bjóðenda.

Sömuleiðis vill þing­flokkurinn að allir afslættir lögaðila af vörum og þjónustu og veittir eru af markaðs­verði verði sérgreindir í reikningum. „Lögaðilar sem inna af hendi einhvers konar framlög til stjórnmála­samtaka eða fram­bjóðenda, í formi afslátta eða hvers konar efnislegra gæða, skulu sérgreina heildar­fjárhæð slíkra framlaga í ársreikningum sínum og gera Ríkis­endurskoðun sérstak­lega grein fyrir þeim afslætti. Telja skal saman framlög tengdra aðila. Afslættir mega ekki vera umfram það sem öðrum viðskipta­vinum stendur almennt til boða.“

Sem stendur mega stjórnmála­samtök taka við framlögum upp á 550 þúsund krónur frá einstaklingum og einstakir fram­bjóðendur mega taka við 400 þúsund króna framlögum á ári. Píratar vilja halda þessum krónu­tölum framlaga frá einstaklingum og gera stjórnmála­félögum innan samstæðu stjórnmála­samtaka einnig heimilt að taka á móti framlögum upp á 100 þúsund krónur frá einstaklingum umfram þessa fjárhæð. Þá vilja þeir að stofn­framlög frá einstaklingum sem veitt eru í beinum tengslum við stofnun stjórnmála­samtaka megi að hámarki verða 1,1 milljón króna.

Hætta geti skapast á spillingu

Í greinar­gerð sem fylgir frum­varpinu segir að núverandi löggjöf stuðli að ójafnræði borg­aranna þegar komi að styrkjum til stjórnmála­samtaka. Tilgangur með hámarks­fjárhæðum sé sá að enginn einn aðili geti í krafti fjárhags­stöðu sinnar styrkt stjórnmála­samtök um það háar fjárhæðir að hætta skapist á spillingu. „Hætt er við að stjórnmála­samtök eða stjórnmála­fólk freistist til að gæta frekar hagsmuna styrktar­aðila umfram hagsmuni almennings þegar svo stendur á. Því er mikilvægt að borg­ararnir njóti jafnræðis þegar kemur að styrk­veitingum.“

Þeir einstaklingar sem eigi fyrirtæki geti sem stendur ekki aðeins styrkt stjórnmála­samtök persónu­lega heldur einnig í krafti fyrir­tækja sinna. „Þetta fyrir­komulag er ólíðandi í lýðræðis­samfélagi og fer í raun þvert á markmið laganna um að tryggja gagnsæi, jafnræði og að berjast gegn spillingu. Því er lagt til í frumvarpi þessu að fella brott heimild lögaðila til að styrkja stjórnmála­samtök og stjórnmála­fólk með beinum hætti.“

Í greinar­gerðinni er einnig bent á að fyrirtæki geti styrkt stjórnmála­samtök óbeint. „Það er ekki óalgengt að fyrirtæki gefi jafnvel þjónustu sína eða veiti meiri afslátt en gengur og gerist gagnvart öðrum viðskipta­vinum. Því er nauðsynlegt að það sé greint frá því á gagnsæjan hátt til þess að aðrir viðskipta­vinir geti notið sömu kjara.“

Sjálfstæðisflokkurinn fær hæstu styrkina frá lögaðilum

Verði frum­varpið samþykkt myndi það bitna mest á Sjálfstæðis­flokknum, sem fékk alls 16,7 milljónir króna í fjár­framlög frá lögaðilum á árinu 2020, sem er síðasti birti ársreikningum flokksins. Á meðal þeirra lög­að­ila sem greiddu Sjálf­stæð­is­flokknum hámarks­styrk upp á 550 þús­und krónur á því ári voru sjáv­ar­út­vegs­fyr­ir­tæki mest áber­and­i.

Þau framlög voru þó lítill hluti af rekstrar­tekjum Sjálfstæðis­flokksins á því ári, þegar þær voru 328,4 milljónir króna. Lang­stærstur hluti tekna þess árs, 195,5 milljónir króna, komu úr ríkis­sjóði. Sveit­ar­fé­lög greiddu flokknum svo 20 millj­ónir króna í fram­lög til við­bótar þannig að alls komu tvær af hverjum þremur krónum sem Sjálf­stæð­is­flokk­ur­inn hafði í tekjur í fyrra úr opin­berum sjóð­u­m.

Til viðbótar hafði flokkurinn 36,3 milljónir króna í tekjur af fjár­framlögum og félags­gjöldum einstaklinga.

Enginn stjórn­málaflokkur á Íslandi kemst nálægt því að vera með jafn mikil fjárhagsleg umsvif og Sjálfstæðis­flokkurinn.

Flokkar settir á fjárlög

Fram­lög til stjórn­mála­flokka úr rík­is­sjóði voru hækkuð veru­lega í byrjun síð­asta kjör­tíma­bils. Til­­­laga sex flokka sem sæti eiga á Alþingi um að hækka fram­lag rík­­­­­­is­ins til stjórn­­­­­­­­­­­mála­­­­­­flokka á árinu 2018 um 127 pró­­­­­­sent var sam­­­­­­þykkt í fjár­­­­­­lögum sem voru afgreidd áður en þingi var slitið í lok des­em­ber 2017. Fram­lög til stjórn­­­­­­­­­­­mála­­­­­­flokka á því ári áttu að vera 286 millj­­­­­­ónir króna en urðu 648 millj­­­­­­ónir króna. Framlögin hækkuðu síðan jafnt og þétt og voru 728,2 milljónir króna síðustu þrjú ár.

Til við­­bótar við þær greiðslur er kostn­aður vegna starfs­­manna þing­­flokka greiddur af Alþingi.

Í nýframlögðu fjár­laga­frumvarpi kemur fram að það eigi að lækka framlag til stjórn­málaflokka úr ríkis­sjóði á árinu 2023, en nú eru þiggjendurnir níu þar sem Sósíalista­flokkur Íslands uppfyllir einnig skilyrði til að þiggja styrkina.

Ekki er um stórkost­lega breytingu að ræða. Framlagið verður lækkað úr 728,2 í 692,2 milljónir króna á ári, eða um 36 milljónir króna.

Fjárhagsstaða flokka hefur kúvenst á fáum árum

Þorri tekna allra flokk­a sem eiga sæti á þingi á árinu 2020 voru fram­lög úr opin­berum sjóð­um. Í til­felli Flokks fólks­ins og Pírata komu 98 pró­sent tekna úr rík­is­sjóði eða frá Alþingi eða sveitar­félögum, í til­felli Mið­flokks­ins var hlut­fall tekna úr opin­berum sjóðum tæp­lega 94 pró­sent, hjá Vinstri grænum 92 pró­sent og rúm­lega 91 pró­sent tekna Við­reisnar komu úr opin­berum sjóð­um.

Fram­sókn­ar­flokk­ur­inn sótti 87 pró­sent tekna sinna á árinu 2020 í opin­bera sjóði, Sam­fylk­ingin 75 pró­sent og Sjálf­stæð­is­flokk­ur­inn 66 pró­sent.

Þessi framlög hafa kúvent fjárhags­stöðu flokkanna átta. Eigið fé þeirra jókst samtals um 748,5 milljarða króna frá árslokum 2017 og til loka árs 2020.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár