Bjarni segir rangt að hann „vilji Sósíalistaflokkinn feigan“

Formaður Sjálfstæðis­flokksins segir að Gunnar Smári Egilsson snúi út úr orðum sínum um styrki til stjórn­málaflokka. Honum þyki 120 milljóna styrkur á kjör­tímabilinu til flokks sem fékk enga þingmenn kjörna einfald­lega of há fjárhæð.

Bjarni Benediktsson er formaður Sjálfstæðisflokksins.
Bjarni Bene­dikts­son er for­maður Sjálf­stæð­is­flokks­ins. Mynd: Bára Huld Beck

Bjarni Benediktsson, fjármála- og efnahags­ráðherra og formaður Sjálfstæðis­flokks, segir að það sé rangt hjá Gunnari Smára Egilssyni, formanni framkvæmda­stjórnar Sósíalista­flokks Íslands, að hann „vilji Sósíalista­flokkinn feigan“.

Þetta segir Bjarni í færslu á Facebook, þar sem hann bregst við þeim ummælum Gunnars Smára að með hugrenningum sínum um styrki til stjórnmála­samtaka, sem settar hafa verið fram í viðtölum að undan­förnum, sé Bjarni ekki að leita að betri virkni lýð­ræðis með afstöðu sinni heldur að leita leiða til að ýkja völd Sjálf­stæð­is­flokks­ins umfram fylgi flokks­ins og draga úr áhrifum kjós­enda ann­ara flokka.

„Það er rangt hjá Gunnari Smára Egilssyni að ég vilji Sósíalista­flokkinn feigan. Það er hins vegar ekki nýtt að Gunnar Smári geri mér upp skoðanir,“ skrifar ráðherra á Facebook og bætir því við að það sé „herbragð“ Gunnars Smára og „reyndar sósíal­ista víða um lönd“ að snúa út úr, iðulega til að draga athygli frá aðal­atriði máls.

„Í þessu tilviki vill Gunnar Smári ekki ræða spurninguna sem ég velti upp, en hún er þessi: Er eðlilegt að stjórn­málaflokkur sem nær engum þingmanni inn á Alþingi í kosningum fái um 120 milljónir í stuðning frá skatt­greiðendum?“ skrifar Bjarni og bætir því við að hann þyki honum einfald­lega of há fjárhæð.

Hann sjálfur vilji „auka frelsi flokkanna til að bjarga sér sjálfum, en draga úr opinberum stuðningi við þá alla.“

Bjarni grípur síðan, í færslu sinni á Facebook, til þekkts frasa frá Margaret Thatcher, fyrr­verandi forsætis­ráðherra Breta, sem sagði eitt sinn eitthvað á þá leið að vandinn við sósíal­ista væri sá að á endanum klári þeir annarra manna fé.

Á Twitter deilir hann færslunni með þeim sömu orðum.

Fram­lögin hækkuð gríð­ar­lega á síð­asta kjör­tíma­bili

Fram­lög til stjórn­­­­­mála­­­flokka úr rík­­­is­­­sjóði voru hækkuð veru­­­lega í byrjun síð­­­asta kjör­­­tíma­bils. Til­­­­­laga sex flokka sem sæti eiga á Alþingi um að hækka fram­lag rík­­­­­­­­is­ins til stjórn­­­­­­­­­­­­­­­mála­­­­­­­­flokka á árinu 2018 um 127 pró­­­­­­­­sent var sam­­­­­­­­þykkt í fjár­­­­­­­­lögum sem voru afgreidd áður en þingi var slitið í lok des­em­ber 2017. Fram­lög til stjórn­­­­­­­­­­­­­­­mála­­­­­­­­flokka á því ári áttu að vera 286 millj­­­­­­­­ónir króna en urðu 648 millj­­­­­­­­ónir króna. Ein­ungis full­­trúar Flokks fólks­ins og Pírata skrif­uðu ekki undir til­­lög­una.

Hún var sett fram sem sam­eig­in­­legt erindi sem bar yfir­­­­­­­­­­­­­skrift­ina „Nauð­­­­­­­syn­­­­­­­leg hækkun opin­berra fram­laga til stjórn­­­­­­­­­­­­­mála­­­­­­­sam­taka“. Í því var farið fram á að fram­lög til stjórn­­­­­­­­­­­­­mála­­­­­­­flokka verði „leið­rétt“.

Kjarn­inn greindi frá því í des­em­ber í fyrra að þeir níu stjórn­­­­­­­mála­­­­flokkar sem fengu nægj­an­­­­legt fylgi í síð­­­­­­­ustu þing­­­­kosn­­­­ingum til að fá úthlutað fjár­­­­munum úr rík­­­­is­­­­sjóði áttu sam­tals að fá 728,2 millj­­­­ónir króna til að skipta á milli sín á þessu ári.

Það er sama upp­­­­hæð og flokk­­­­arnir fengu sam­tals 2020 og sama upp­­­­hæð og þeir fengu í fyrra. Til við­­­­bótar við þær greiðslur er kostn­aður vegna starfs­­­­manna þing­­­­flokka greiddur af Alþingi.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár