Segir Bjarna vilja ýkja völd Sjálfstæðisflokks umfram fylgi og draga úr áhrifum annarra

Bjarni Benediktsson hefur sagt að hann vilji draga úr opinberum styrkjum til stjórn­málaflokka. Gunnar Smári Egilsson segir ástæðuna þá að Sjálfstæðis­flokkurinn þurfi ekki jafn mikið á greiðslu frá ríkinu að halda og áður.

Gunnar Smári Egilsson er formaður framkvæmdastjórnar Sósíalistaflokks Íslands.
Gunnar Smári Egilsson er for­maður fram­kvæmda­stjórnar Sós­í­alista­flokks Íslands. Mynd: Bára Huld Beck

Gunnar Smári Egilsson, formaður framkvæmda­stjórnar Sósíalista­flokks Íslands, segir hugrenningar Bjarna Benedikts­sonar, formanns Sjálfstæðis­flokksins og fjármála- og efnahags­ráðherra, um að útiloka smærri stjórn­málaflokka frá opinberum styrkjum séu algjör­lega á skjön við það sem gerist í okkar heims­hluta. Tilgangurinn sé að ýkja völd Sjálfstæðis­flokksins umfram fylgi og draga úr áhrifum kjósenda annarra flokka.

Þar vísar hann í ummæli sem Bjarni lét annars vegar falla í nýlegu viðtali við Dagmál á mbl.is og hins vegar í útvarps­þættinum Sprengis­andi á Bylgjunni um liðna helgi.

Í viðtalinu við Dagmál sagði Bjarni að hann teldi það fjöl­flokkakerfi sem sé á Íslandi, þar sem átta flokkar eru á þingi og einn til viðbótar hafi ekki verið langt frá því að ná inn, sé að stóru leyti sjálf­sköpuð staða. Flokkarnir hafi ákveðið að stórauka framlög úr ríkis­sjóði og setja þannig reglur að þeir flokkar sem fá ákveðið hlutfalla atkvæða (2,5 prósent) fái líka mikið fjármagn, jafnvel þótt þeir nái ekki inn á þing. Eins og er þá er Sósíalista­flokkur Íslands eini stjórn­mála­flokkurinn sem fær fjárstyrk úr ríkis­sjóði án þess að eiga fulltrúa á þingi en nokkrir flokkar – Flokkur heimil­anna, Flokkur fólksins, Íslands­hreyfingin og Dögun –hafa fengið slíkar greiðslur áður.

Á Sprengis­andi sagði Bjarni að hann vildi draga úr opinberum styrkjum til stjórn­málaflokka og að það veki „athygli hve ríflegur stuðningur er við stjórn­málaflokka sem engan fulltrúa fá kjörinn á Alþingi í kosningum.“

Bjarni hefur þó ekki lagt til grundvallar­breytingu á fyrir­komulaginu að öðru leyti en að framlög til þeirra í heild verða lækkuð sem hluti af aðhalds- og þenslu­minnkandi aðgerðum sem ríkis­stjórnin kynnti í sumar.

Leið til að ýkja völd umfram fylgi

Í færslu á Facebook-síðu Sósíalista­flokksins segir Gunnar Smári að Bjarni sé ekki að leita að betri virkni lýðræðis með afstöðu sinni heldur að leita leiða til að ýkja völd Sjálfstæðis­flokksins umfram fylgi flokksins og draga úr áhrifum kjósenda annara flokka.

Auk þess telur Gunnar Smári að sögulegar ástæður séu fyrir afstöðu Bjarna. „Sjálfstæðis­flokkurinn stóð fyrir stór­auknum styrkjum til stjórn­málaflokka snemma á öldinni, þegar flokkurinn naut mikils fylgis og fékk lang mest af þessum styrkjum. Eftir Hrun minnkuðu styrkir til flokksins í takt við minna fylgi undir formennsku Bjarna. Þetta lék fjárhag flokksins illa, segja má að hann hafi étið upp allt það eigið fé sem lá í Valhöll, höfuð­stöðvum flokksins sem verktaka­fyrirtæki reistu til að launa greiðasemi hans við stór verktaka­fyrirtæki. Nú hefur flokkurinn hins vegar fengið leyfi til að byggja íbúðir á lóðinni við Valhöll og mun líklega fá 1,5 milljarð króna að launum í það minnsta. Bjarni og flokkurinn eru því ekki jafn háðir bóta­greiðslum frá ríkinu og áður. Hann treystir sér nú til að hefja umræðu um breytt kerfi.“

Framlögin hækkuð gríðarlega á síðasta kjörtímabili

Fram­lög til stjórn­­­mála­­flokka úr rík­­is­­sjóði voru hækkuð veru­­lega í byrjun síð­­asta kjör­­tíma­bils. Til­­­­laga sex flokka sem sæti eiga á Alþingi um að hækka fram­lag rík­­­­­­­is­ins til stjórn­­­­­­­­­­­­­mála­­­­­­­flokka á árinu 2018 um 127 pró­­­­­­­sent var sam­­­­­­­þykkt í fjár­­­­­­­lögum sem voru afgreidd áður en þingi var slitið í lok des­em­ber 2017. Fram­lög til stjórn­­­­­­­­­­­­­mála­­­­­­­flokka á því ári áttu að vera 286 millj­­­­­­­ónir króna en urðu 648 millj­­­­­­­ónir króna. Ein­ungis full­trúar Flokks fólks­ins og Pírata skrif­uðu ekki undir til­lög­una.

Hún var sett fram sem sam­eig­in­legt erindi sem bar yfir­­­­­­­­­­­skrift­ina „Nauð­­­­­­syn­­­­­­leg hækkun opin­berra fram­laga til stjórn­­­­­­­­­­­mála­­­­­­sam­taka“. Í því var farið fram á að fram­lög til stjórn­­­­­­­­­­­mála­­­­­­flokka verði „leið­rétt“.

Kjarn­inn greindi frá því í desember í fyrra að þeir níu stjórn­­­­­mála­­­flokkar sem fengu nægj­an­­­legt fylgi í síð­­­­­ustu þing­­­kosn­­­ingum til að fá úthlutað fjár­­­munum úr rík­­­is­­­sjóði áttu sam­tals að fá 728,2 millj­­­ónir króna til að skipta á milli sín á þessu ári.

Það er sama upp­­­hæð og flokk­­­arnir fengu sam­tals 2020 og sama upp­­­hæð og þeir fengu í fyrra. Til við­­­bótar við þær greiðslur er kostn­aður vegna starfs­­­manna þing­­­flokka greiddur af Alþingi.

Tvær af þremur krónum komu úr opinberum sjóðum

Þessi ákvörðun hefur kúvent fjármálum stærstu stjórn­mála­flokkanna. Eigið fé þeirra átta stjórn­málaflokka sem eiga fulltrúa á þingi jókst um sam­tals 747,6 millj­­ónir króna frá árs­lokum 2017 og fram til ársloka 2020.

Sá flokkur sem hefur fengið mestu styrkina er stærsti flokkur landsins, Sjálfstæðis­flokkurinn, sem fékk 24,4 prósent atkvæða í síðustu kosningum.

Samkvæmt síð­asta birta árs­reikn­ingi flokks­ins var hann með 328,4 millj­ónir króna í tekjur á árinu 2020, þar af komu 195,5 millj­ónir króna úr rík­is­sjóði og 20 millj­ónir króna frá sveit­ar­fé­lögum lands­ins. Því komu tvær af hverjum þremur krónum sem Sjálf­­stæð­is­­flokk­­ur­inn hafði í tekjur í fyrra úr opin­berum sjóð­u­m.

Til við­­bótar sótti hann 53,1 milljón króna í fram­lög og félags­­­gjöld frá ein­stak­l­ingum og lög­­að­ilum og hafði 59,6 millj­­ónir króna í aðrar tekj­­ur, sem að upp­i­­­stöðu eru leig­u­­tekj­­ur. Á meðal þeirra lög­­að­ila sem greiddu Sjálf­­stæð­is­­flokknum hámarks­­­styrk upp á 550 þús­und krónur eru sjá­v­­­ar­út­­­vegs­­fyr­ir­tæki mest áber­and­i.

Eignir Sjálfstæðis­flokksins voru metnar á 925 milljónir króna í lok árs 2020, þar af voru fasteignir og lóðir metnar á 646 milljónir króna. Í október 2021 var sam­­þykkt beiðni flokks­ins um að byggja blokk með 47 íbúð­um og at­vinn­u­hús­næði á lóð Val­hall­­ar, höfuð­stöðva Sjálfstæðis­flokksins. Fyrir liggur að sölu­andvirði þeirra íbúða er mun hærra en bókfært virði lóðarinnar og samkvæmt frétt í Frétta­blaðinu frá því í maí er virði lóðarinnar, með því bygginga­magni sem má reisa á henni, um hálfur milljarður króna.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár