Sjálfstæðisflokkur ætlar að klára að greiða til baka styrkina frá FL Group og bankanum í ár

Tæpum 16 árum eftir að Sjálf­stæð­is­flokk­ur­inn þáði umdeilda styrki frá umsvifa­miklu fjár­fest­inga­fé­lagi og einum stærsta banka lands­ins áætlar flokk­ur­inn að hann muni ljúka við að end­ur­greiða þá á árinu 2022.

Bjarni Benediktsson lofaði því að styrkirnir yrðu endurgreiddir skömmu eftir að hann tók við formennsku í Sjálsftæðisflokknum árið 2009.
Bjarni Bene­dikts­son lof­aði því að styrkirnir yrðu end­ur­greiddir skömmu eftir að hann tók við for­mennsku í Sjáls­ftæð­is­flokknum árið 2009. Mynd: Bára Huld Beck

Sjálf­stæð­is­flokk­ur­inn gerir ráð fyrir því að ljúka end­ur­greiðslum á styrkjum sem hann fékk frá FL Group og Lands­banka Íslands árið 2006 á þessu ári, 16 árum eftir að styrkirnir voru veittir. Þetta kemur fram í svari frá skrif­stofu Sjálf­­­stæð­is­­­flokks­ins, við fyr­ir­­­spurn Kjarn­ans. Sam­tals námu styrkirnir 56 millj­­­ónum króna.

Í svar­inu, sem er að mestu sam­hljóða svörum sem Þórður Þór­ar­ins­son, fram­kvæmda­stjóri Sjálf­stæð­is­flokks­ins, hefur áður veitt Kjarn­anum vegna sama máls á und­an­förnum árum, segir hann að stjórn­mála­flokkar hefðu hlotið háa styrki frá fyr­ir­tækjum árið 2006 en að þeir hefðu verið í sam­ræmi við þágild­andi lög. Styrkirnir hefðu verið gagn­rýndir í opin­berri umræðu og ákvað Sjálf­stæð­is­flokk­ur­inn einn flokka að end­ur­greiða styrki sem hann hlaut árið 2006. Það hafi flokk­ur­inn gert af rekstr­arfé sínu. „Áform voru uppi um að ljúka end­ur­greiðslum fyrir árið 2018. Það gekk því miður ekki eftir. Ástæðan fyrir því er m.a. að kosn­ingar hafa verið tíð­ari en ráð var fyrir gert, en þær eru lang­sam­lega fjár­frek­ustu útgjalda­liðir stjórn­mála­flokka. Gert er ráð fyrir að end­ur­greiðslum ljúki á þessu ári.“

86 milljónir króna á núvirði

Styrkirnir voru veittir 29. des­em­ber 2006. Þremur dögum eftir að styrkirnir voru veitt­ir, 1. jan­úar 2007, tóku gildi ný lög um fjár­mál stjórn­mála­flokka sem gerðu það að verkum að flokkum var meinað að taka við styrkjum yfir 300 þús­und krónum frá ein­stökum lög­að­il­u­m. Þeir námu sam­tals, líkt og áður segir, 56 millj­­­ónum króna á þávirði. Á núvirði er upp­hæðin um 86 millj­ónir króna. Vorið 2009 sagði Bjarni Bene­dikts­­­son, þá nýkjör­inn for­­­maður flokks­ins, að styrkirnir yrðu end­­­ur­greidd­­­ir.

[adspot]Á lands­fundi flokks­ins 2013 kom fram í máli Jón­­­mundar Guð­mar­s­­­son, þáver­andi fram­­­kvæmda­­­stjóra Sjálf­­­stæð­is­­­flokks­ins, að flokk­­­ur­inn hefði þegar end­­­ur­greitt um 18 millj­­­ónir króna.

Sjálf­­­­stæð­is­­­­flokk­­­­ur­inn ákvað einn flokka að end­­­­ur­greiða háa styrki sem hann fékk fyrir hrun. Sam­­­fylk­ingin fékk einnig styrki upp á rúmar 36 millj­­­ónir króna árið 2006 frá Kaup­­­þingi, FL Group, Glitni, Lands­­­banka Íslands og Baugi. Flokk­­­ur­inn sagð­ist hins vegar ekki ætla að greiða styrk­ina til baka líkt og Sjálf­­­stæð­is­­­flokk­­­ur­inn ákvað að gera.

FL Group heitir í dag Stoðir og er á meðal umsvifa­mestu einka­fjár­festa í íslensku við­skipta­lífi. Félagið hefur ekki viljað tjá sig um styrkja­málið á und­an­förnum árum og hvorki játa því né neita að end­ur­greiðslu­ferli sé að eiga sér stað. Slitabú Lands­bank­ans, sem tók við eignum og skuldum hins fallna banka eftir hrunið, vildi heldur ekki tjá sig um málið þegar Kjarninn leit­aði eftir upp­lýs­ingum um það árið 2015.

Því hafa þeir sem ættu að vera við­tak­endur end­ur­greiðslna ekki viljað stað­festa að þær séu að rata til þeirra.

Jón Ásgeir opnar málið á ný

Styrkirnir röt­uðu aftur í umræð­una í byrjun árs í fyrra þegar Jón Ásgeir Jóhann­es­son, sem var umfangs­mesti fjár­festir­inn í FL Group, fjall­aði um það í bók sinni „Málsvörn“.

Hann sagði í við­tali við RÚV vegna útgáfu bók­ar­innar að hann hefði ekki tekið ákvörðun um að veita styrk­inn frá FL Group. Aðspurður hvort það hafi verið Hannes Smára­son, þáver­andi for­stjóri FL Group og einn stærsti hlut­hafi félags­ins á þeim tíma, svar­aði Jón Ásgeir því til að það hafi vænt­an­lega verið stjórn­endur félags­ins sem hafi tekið hafi ákvörð­un­ina.

Í bók­inni um Jón Ásgeir kom fram að Hannes hafi ekki fengið kvitt­anir fyrir greiðsl­unni til Sjálf­stæð­is­flokks­ins þegar hún var fram­kvæmd. Slíkri hafi verið skotið inn í bók­hald FL Group eftir á að næt­ur­lagi, og með því hafi verið að brjóta bók­halds­lög.

„Samið við Geir frekar en Gulla“

Styrkja­málið vakti mikla hneykslun þegar það komst upp í apríl 2009 og Geir H. Haarde, sem þá hafði látið af störfum sem for­maður Sjálf­stæð­is­flokks­ins, sagð­ist í til­kynn­ingu bera fulla ábyrgð á við­töku styrkj­anna. Bjarni Bene­dikts­son, sem þá var nýtek­inn við sem for­maður flokks­ins, sagði við­töku styrkj­anna „stang­ast gróf­lega á við þau gildi sem ég vil að Sjálf­stæð­is­flokk­ur­inn starfi eft­ir.“

Andri Ótt­ars­son, þáver­andi fram­kvæmda­stjóri Sjálf­stæð­is­flokks­ins, hætti störfum nokkrum dögum eftir að málið kom upp. Í yfir­lýs­ingu frá Andra vegna þessa kom fram að hann hafi ekki átt frum­kvæði að því að haft var sam­­band við FL Group eða Lands­­bank­ann um styrk­veit­ingu og að hann hafi ekki tekið ákvörðun um að veita styrkj­unum við­töku. „Þrátt fyr­ir þetta og þær skýr­ing­ar sem komu fram í yf­ir­lýs­ingu fyrr­ver­andi for­­manns flokks­ins er það mitt mat að við nú­ver­andi aðstæður þjóni það best hags­mun­um Sjálf­­stæð­is­­flokks­ins að ég láti af störf­um sem fram­­kvæmda­­stjóri hans þar sem mik­il­vægt er að leita allra leiða til að skapa traust og frið um flokks­­starf­ið. Af þeim sök­um hef ég boð­ist til að víkja úr stöðu minn­i.“

Þann 11. apríl sendu Þor­steinn M. Jóns­son, þáver­andi stjórn­ar­maður í FL Group sem er oft­ast kenndur við Kók, og Stein­þór Gunn­ars­son, fyrr­ver­andi yfir­maður verð­bréfa­deildar Lands­bank­ans, frá sér yfir­lýs­ingu þar sem þeir sögð­ust hafa haft milli­göngu um að útvega Sjálf­stæð­is­flokknum styrk­ina. Þeir sögðu einnig að Guð­laugur Þór Þórð­ar­son, núver­andi ráð­herra orku- og umhverfis-, orku- og lofts­lags­mála, hefði haft sam­band við þá og greint frá bág­bor­inni fjár­hags­legri stöðu Sjálf­stæð­is­flokks­ins. Í fram­haldi hafi hann ekki haft frek­ari afskipti, upp­hæð styrkj­anna hefði verið ákveð­inn af fyr­ir­tækj­unum og stjórn flokks­ins ákveðið að veita þeim við­töku.

Í bók­inni um Jón Ásgeir kom fram að hann teldi sig vita til þess að Geir H. Haarde hafi staðið á bak­við beiðn­ina um styrk­ina en að Guð­laugur Þór hafi verið lát­inn taka á sig sök í mál­inu. „Það var það sem ég heyrði, að þetta hefði verið samið við Geir frekar en Gulla[...]Ég var þarna í stjórn og mér gefin sú skýr­ing,“ sagði Jón Ásgeir í sam­tali við RÚV.

Tvær af hverjum þremur krónum koma úr opinberum sjóðum

Fjármál Sjálf­stæð­is­flokks­ins hafa tekið stakka­skiptum á und­an­förnum árum, sam­hliða því að fram­lög til stjórn­mála­flokka úr rík­is­sjóði hafa stór­auk­ist. Hann er stærsti flokkur lands­ins, fékk 24,4 pró­sent atkvæða í síð­ustu kosn­ingum, og fær því hæstu fram­lög allra flokka úr sam­eig­in­legum sjóðum.

[adspot][Samkvæmt síð­asta birta árs­reikn­ingi flokks­ins var hann með 328,4 millj­ónir króna í tekjur á árinu 2020, þar af komu 195,5 millj­ónir króna úr rík­is­sjóði og 20 millj­ónir króna frá sveit­ar­fé­lögum lands­ins. Því komu tvær af hverjum þremur krónum sem Sjálf­stæð­is­flokk­ur­inn hafði í tekjur í fyrra úr opin­berum sjóð­u­m.

Til við­bótar sótti hann 53,1 milljón króna í fram­lög og félags­gjöld frá ein­stak­lingum og lög­að­ilum og hafði 59,6 millj­ónir króna í aðrar tekj­ur, sem að uppi­stöðu eru leigu­tekj­ur. Á meðal þeirra lög­að­ila sem greiddu Sjálf­stæð­is­flokknum hámarks­styrk upp á 550 þús­und krónur eru sjáv­ar­út­vegs­fyr­ir­tæki mest áber­and­i.

Fast­eigna­mat hærra en bók­fært virði

Sjálf­stæð­is­flokk­ur­inn er lang­um­svifa­mesti flokkur lands­ins. Eignir hans eru metnar á 925 millj­ónir króna og hækk­uðu um 77 millj­ónir króna milli ára.

[links]Dýr­mæt­ustu eignir flokks­ins eru fast­eign­ir, sem metnar eru á 646 millj­ónir króna. Þær eru bók­færðar á kostn­að­ar­verði, en fast­eigna­mat eigna og lóða er hærra, eða 919 millj­ónir króna. Þar á meðal er Val­höll, höf­uð­stöðvar flokks­ins. Í októ­ber í fyrra var sam­þykkt beiðni flokks­ins um að byggja blokk með 47 íbúð­um og at­vinn­u­hús­næði á lóð Val­hall­ar. Auk þess á flokk­ur­inn hlut í tveimur félög­um, Þorra ehf. og Íhaldi ehf., Það fyrr­nefnda hefur þann til­gang að halda utan um kaup, sölu og rekstur fast­eigna, blaða­út­gáfu, lána­starf­semi og aðra skylda starf­semi vegna starfs Sjálf­stæð­is­flokks­ins í Kópa­vogi. Hið síð­ar­nefnda vinnur að hús­næð­is­málum sam­taka eða félaga sjárfs­stæð­is­manna í Fljóts­dals­hér­aði.

Hand­bært fé Sjálf­stæð­is­flokks­ins í lok árs 2020 var rúm­lega 195 millj­ónir króna og jókst um 89 millj­ónir króna á síð­asta ári.

Skuldir flokks­ins lækk­uðu lít­il­lega á milli ára og voru 449 millj­ónir króna í lok árs 2020. Óráð­stafað eigið fé Sjálf­stæð­is­flokks­ins var því 476,2 millj­ónir króna á þeim tíma. Skuld­irnar eru ekki sund­ur­lið­aðar með þeim hætti að hægt sé að sjá hversu mikið af skuld­inni við FL Group og Lands­bank­ann sé ógreidd.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár