Kynna lok á glös kvenna til að hindra nauðganir: „Hvers konar samfélag er það?“

Söngkonan Þórunn Antonía og Guðni Th. Jóhannesson forseti kynntu sérstakt pappalok fyrir drykki kvenna til að koma í veg fyrir að þeim verði byrlað nauðgunar­lyfjum. Hildur Lilliendahl spyr hvort skír­lífsbelti gegn nauðgunum séu næst og Hildur Sverris­dóttir segir það ekki mega verða „konum að kenna“ ef þær setja ekki pappalok á drykkinn sinn.

Verndari verkefnisins
Verndari verk­efn­is­ins Guðni Th. Jóhann­es­son er vernd­ari verk­efn­is­ins sem snýst um að útvega pappa­lok fyrir drykki kvenna. Mynd: Heiða Helgadóttir

Verkefni, sem Guðni Th. Jóhannesson forseti er verndari fyrir, og snýst um að bjóða upp á pappalok fyrir konur sem eru úti að skemmta sér, svo þeim verði ekki byrluð ólyfjan, vekur upp umræður um hvort rétt sé að fólk breyti hegðun sinni til að koma í veg fyrir kynbundið ofbeldi.

Söngkonan Þórunn Antonía leiðir verkefnið, en hún er kynningar- og markaðs­stjóri tónlistar­hátíðarinnar Secret Solstice. Verkefnið snýst um að prenta út 10 þúsund miða, sem hægt er að líma ofan á glös, þannig að ekkert utan­aðkomandi komist í glösin. „Örugg skemmtun á að vera í fyrirrúmi í skemmtana­bransanum og þannig er það svo sannarlega hjá okkur á Secret Solstice,“ segir hún í samtali við frétta­vefinn Vísi.

Hildur Sverr­is­dóttirVarar við því að for­send­urnar verði þær að konur eigi að passa upp á að vera ekki nauðgað.

Hildur Sverris­dóttir, þingmaður Sjálfstæðis­flokksins, segist dást að virðingar­verðri hugsun, hlýju og samkennd sem felst í verk­efninu, en varar við því. „Konur eiga að geta skemmt sér án límmiða yfir glasinu sínu. Það má heldur ekki verða konu „að kenna“ ef henni eru byrluð lyf því hún hafði ekki límmiða á drykknum.“

Þórunn segist sjálf hafa orðið fyrir því að henni var byrluð ólyfjan, á skemmtistað í London. Þá segir hún hugmyndina hafa kviknað út frá sorg og vanmáttar­kennd stúlku sem er henni afar kær og var byrlað lyf á skemmtistað og nauðgað. Einnig segist Þórunn hafa fylgst með máli Birnu Brjáns­dóttur og hafa upplifað að henni hefði verið byrluð ólyfjan. „Það sem sló mig var að ég upplifði að henni hefði verið byrlað þegar ég horfði á myndskeið af henni sem kom í frétta­miðlum, kannski var það ímyndun í mér en það minnti mig á tilfinningu sem ég sjálf hafði upplifað þegar ég var yngri og fékk eitthvað út í drykkinn minn á skemmtistað í London. Þá var fyrsta tilfinning mín þyngsli í fótunum, svo algjört minnis­leysi. Sem betur fer var mér bjargað. Vinur minn vann sem dyra­vörður á skemmtistað þegar ókunnur maður var að bera mig út, sagðist vera kærastinn minn. Hann var stöðvaður og mér komið í örugga höfn. Ég var heppin að þarna var einhver með opin augun. En þetta snýst ekki um mig eða mína sögu, heldur allar þessar sögur sem maður heyrir aftur og aftur.“

„Hvers konar samfélag er það?“

Hildur Lilli­endahlMeð lokum fyrir drykki kvenna er verið að und­ir­gang­ast veru­leika sem sam­fé­lagið á ekki að sætta sig við.

Hildur Lilliendahl er ein þeirra sem gagnrýna á Facebook að átakið skuli snúast um ábyrgð kvenna á því að hindra nauðganir.

„Ég fagna því að loksins hafi einhver tekið af skarið og skellt fram hugmynd að fýsískri lausn fyrir konur til að koma í veg fyrir að karlar nauðgi þeim. Af hverju að stoppa þarna? Hvað með bara skírlífis­belti? Eða að hafa Secret Solstice bara fyrir karla? Tónlistin á hátíðinni er nánast bara eftir karla hvort sem er. Ég skil ekki hvað konur eru að gera utandyra. Vita þær ekki að þær eru að taka áhættu? Eða, með orðum hugmynda­smiðsins: „Ábyrgðin er ekki bara þeirra sem drekka úr glasinu heldur allra í kring.““

Feminíska vefritið knuz.is vekur einnig athygli á þeirri hlið hvað slíkar breytingar á hegðun þýði fyrir samfélagið.

„Er þetta vænlegt til árangurs? Hvers konar samfélag er það þegar konur neyðast til að líma yfir glösin sín til að forðast byrlun og nauðgun?“

Þórunn: Við þurfum að læsa húsum

Þórunn og for­set­innMeð lokin sem líma á yfir glös kvenna til að hindra lyfja­nauðg­anir.

Þórunn segir í samtali við Vísi að fólk eigi ekki að þurfa að óttast að því verði byrljuð ólyfjan, en þannig sé það samt. „Við ættum auðvitað ekkert að þurfa að vera að pæla í svona löguðu, það er í raun fáránlegt. En staðreyndin er sú að það er fólk sem er að gera þetta af ásettu ráði sem er enn þá fáránlegra og flestum algjör­lega óskiljanlegt. Rétt eins og við ættum ekkert að þurfa að læsa bílum eða heimilum okkar af ótta við að það brjótist einhver inn, en þurfum samt að gera það. Það er til fólk sem stelur og það er til fólk sem byrlar og nauðgar. Það er sorglegt en satt.“

Árið 2015 skapaðist gagnrýnin umræða um svokölluð kvenna­stæði í bíla­kjallara Hörpu. Þar höfðu verið málaðar sérstakar merkingar á bílastæði nálægt inngangi tónlistar­hússins úr bíla­kjallaranum á vel upplýstum svæðum og var ætlunin að einungis konur fengju að nota þau. Yfir­lýstur tilgangur var að koma í veg fyrir að ráðist yrði á konur í bíla­kjallaranum, en gagn­rýnendur kvenna­stæðanna töldu að með þessu væri verið að móta umhverfið með þeim hætti að setja konur í hlutverk fórnar­lamba.

Árið 2005 var talið að grunur væri um fimm til sjö lyfja­nauðganir á ári. Árið 2010 áætluðu Stígamót í árskýrslu sinni að lyfja­nauðganir væru 17. 2013 var tilkynnt um 22 lyfja­nauðganir. Í ársskýrslu Stígamóta fyrir árið 2016 er fjöldi lyfja­nauðgana metinn 27, eða tæplega 11 prósent af öllum nauðgunum. Þar af voru þrír karlmenn fórnar­lömbin.

Þórunn segist í samtali við Vísi vera að reyna að skapa umtal með verk­efninu. „Fólk skemmtir sér betur ef það veit að það er gæsla og öryggi og kannski er þetta ágæt viðbót við það. Ég veit að þetta er kannski ekki lausn en þetta er hugmynd og ég er að reyna að skapa umtal og vitundar­vakningu um að við eigum að passa hvert annað.“

 

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár