Hlutur ríkisins í stærsta eiganda Marels var færður til LSR

Á meðal þeirra eigna íslenska rík­is­ins sem færðar voru til Líf­eyr­is­sjóðs starfs­manna rík­is­ins var hlutur í Eyri Invest, í Nýja Norð­ur­turn­inum og í Internet á Íslandi.

Bjarni Benediktsson er fjármála- og efnahagsráðherra.
Bjarni Bene­dikts­son er fjár­mála- og efna­hags­ráð­herra. Mynd: Bára Huld Beck

Á meðal þeirra eigna sem íslenskra ríkið ráð­staf­aði til Líf­eyr­is­sjóðs starfs­manna rík­is­ins (LSR) í byrjun árs var 10,44 pró­sent hlutur í Eyri Invest hf. Það félag á meðal ann­ars 25,88 pró­sent hlut í Marel og sam­kvæmt árs­reikn­ingi fyrir árið 2017 var eigið fé Eyris Invest 368,6 millj­ónir evra, eða um 45,4 millj­arðar króna, um síð­ustu ára­mót. Virði Marel hefur hækkað um 20 pró­sent frá ára­mótum.

Aðrar eignir í hluta­fé­lögum sem ráð­stafað var til LSR í sam­komu­lag­inu voru 19,2 pró­sent hlutur í Nýja Norð­ur­turn­inum ehf., félagi utan um 15. hæða turn við Smára­lind sem hýsir meðal ann­ars höf­uð­stöðvar Íslands­banka, 4,7 pró­sent hlutur í Auði 1 fag­fjár­festa­sjóði og 1,9 pró­sent hlutur í Internet á Íslandi hf., félagi sem sér um skrán­ingu léna undir land­s­lén­inu .is.

Auk þess fékk LSR fram­seldar lána­eignir á átta aðila. Ekki hefur verið upp­lýst um hverjir lán­tak­end­urnir eru.

Þetta kemur fram í svari Bjarna Bene­dikts­son, fjár­mála- og efna­hags­ráð­herra, við fyr­ir­spurn Ólafs Ísleifs­sonar, þing­mann Flokks fólks­ins, um ráð­stöfun á eignum íslenska rík­is­ins til LSR úr safni félags­ins Lind­ar­hvols ehf., sem hefur ann­ast fulln­ustu og sölu á stöð­ug­leika­eignum rík­is­sjóðs.

Skuld ríkisins minnkar ef eignirnar hækka í verði

Alls var virði þeirra eigna sem fram­seldar voru frá Lind­ar­hvoli til LSR metið á 19 millj­arða króna. Í raun skiptir matsvirðið samt sem áður ekki sköpum þar sem eign­irnar fara upp í skuld rík­is­ins við B-deild LSR, en ófjár­magn­aðar líf­eyr­is­skuld­bind­ingar rík­is­sjóðs voru 611 millj­arðar króna í lok síð­asta árs. Til að sam­ein­aður sjóður geti staðið við þær þyrftu árleg fram­lög rík­­is­­sjóðs til sjóðs­ins að vera sjö millj­­arðar króna á ári að jafn­­aði næstu 30 árin í stað þeirra fimm millj­­arða króna sem nú er ráð­stafað til þeirra á ári.Líkt og stendur í svari Bjarna: „Standi umræddar eignir ekki undir því verð­mati sem sett er á þær nú hefur það að óbreyttu áhrif til hækk­unar á ófjár­mögn­uðum skuld­bind­ingum rík­is­sjóðs í fram­tíð­inni. Ef umræddar eignir skila að sama skapi meiri verð­mætum í fram­tíð­inni en núver­andi mat segir til um hefur það að óbreyttu jákvæð áhrif á skuld­bind­ingu rík­is­sjóðs til lækk­unar í fram­tíð­inni.[...]Komi í ljós við end­an­lega lúkn­ingu eigna­safns­ins að verð­mæti þeirra reyn­ist að lokum hærra eða lægra en sem nemur fjár­hæð­inni verður fjár­hæðin aðlöguð til sam­ræmis og þannig mun skuld­bind­ing rík­is­sjóðs gagn­vart LSR lækka eða hækka sem því nemur.“

Ríkisendurskoðun fékk afrit

Ólafur vildi samt sem áður fá að vita hvað aðgerðum hefði verið beitt við að verð­meta eign­irnar og hverjir hefðu fram­kvæmt verð­matið. Í svar­inu kemur fram að verð­matið byggi á mati LSR og Lind­ar­hvols. Fjármála- og efna­hags­ráðu­neytið hafi ekki kallað til utan­að­kom­andi aðila til þess að meta eign­irnar en veit ekki hvort LSR gerði slíkt.

Rík­is­end­ur­skoðun fékk afrit af verð­mati eign­anna og samn­ingnum við LSR. Í svar­inu segir að unnið sé að því að ljúka upp­gjöri rík­is­sjóðs fyrir 2017 og end­ur­skoðun árs­reikn­ings og gera megi ráð fyrir að þeirri vinnu verði lokið á vor­mán­uðum eða í byrjun sum­ars. „Full­trúar Rík­is­end­ur­skoð­unar sem koma að end­ur­skoðun árs­reikn­ings B-deildar LSR hafa fengið kynn­ingu á verð­mati eign­anna sem notað var við skrán­ingu þeirra í verð­bréfa­kerfi sjóðs­ins.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

6
Innlent

Hætta á að lánin hækki þó íbúða­verð lækki

Már Wolfgang Mixa hag­fræði­pró­fessor segir að stór hluti eigin fjár íbúða­eig­enda gæti þurrkast út á kom­andi mán­uðum. Verð­tryggðar fast­eigna­skuldir hækki í verð­bólgu­tíð sam­hliða því að íbúða­verð gæti lækkað. Hann leggur til að verð­tryggð hús­næð­is­lán fylgi íbúða­verði en ekki vísi­tölu neyslu­verðs. Þá myndu bank­arnir bera hluta áhætt­unnar.

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár