Stöðugleikaeignir upp á 19 milljarða framseldar til LSR

Íslenska ríkið hefur fram­selt illselj­an­legar eignir sem það fékk í stöð­ug­leika­fram­lag upp í skuld sína við Líf­eyr­is­sjóð starfs­manna rík­is­ins. Framlag rík­is­ins inn á skuld­ina í ár fer úr fimm millj­örðum í 24 millj­arða.

Fjármála- og efna­hags­ráðu­neytið hefur stað­fest að það hafi fram­selt eignir sem metnar eru á 19 millj­arða króna, og eru hluti af stöð­ug­leika­fram­lagi föllnu bank­anna, til Líf­eyr­is­sjóðs starfs­manna rík­is­ins (LSR).

[links]Kjarninn greindi frá því 3. jan­úar síð­ast­lið­inn að heim­ild hafi verið fyrir fram­sal­inu í fjár­auka­lögum 2017, sem afgreidd voru á síð­ast starfs­degi Alþingis fyrir ára­mót. Um er að ræða eignir sem Lind­ar­hvoll ehf. hefur haft til umsýslu og ekki telj­ast heppi­legar til sölu á almennum mark­aði. Framsal eign­anna lækkar líf­eyr­is­skuld­bind­ingar rík­is­sjóðs við B-deild LSR um áður­greinda upp­hæð.

Í frétt á heima­síðu ráðu­neyt­is­ins sem birt var í dag, segir að það hafi þótt skyn­sam­legt að þessum sökum að LSR myndi yfir­taka eign­irnar. Sjóð­ur­inn sé ekki háður sér­stökum tíma­tak­mörk­unum í eigna­um­sýslu sinni líkt og Lind­ar­hvoll og hann búi yfir sér­hæfðri þekk­ingu til að hámarka virði eign­anna.

Sam­kvæmt upp­lýs­ingum Kjarn­ans felst í þessu að ýmsir láns­samn­ingar og óskráð hluta­bréf sem eru í umsýslu Lind­ar­hvols, að frá­töldum hluta­bréfum í Lyfju sem er í opnu söl­ferli, muni fær­ast til LSR í þeim til­gangi að hámarka virði þeirra. Enn er stefnt að því að starf­semi Lind­ar­hvols, sem ann­ars fulln­ustu og sölu á stöð­ug­leika­eignum rík­is­sjóðs, verði slitið á fyrri hluta árs­ins 2018.

Við þessa ráð­stöfun mun fram­lag til til sjóðs­ins hækka úr fimm millj­örðum króna í 24 millj­arða króna á yfir­stand­andi ári. Þessi greiðsla er þó fjarri því nægj­an­leg til að B-deildin geti staðið við skuld­bind­ingar sín­ar, en ófjár­magn­aðar líf­eyr­is­skuld­bind­ingar rík­is­sjóðs eru 611 millj­arðar króna.

Til að sam­ein­aður sjóður geti staðið við þær þyrftu árleg fram­lög rík­is­sjóðs til sjóðs­ins að vera sjö millj­arðar króna á ári að jafn­aði næstu 30 árin í stað þeirra fimm millj­arða króna sem nú er ráð­stafað til þeirra á ári.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár