Flækjusögur komnar á hlaðvarp: Hið róstusama ár 1920, Hitler, rússneska byltingin, Al Capone!

Árið 2013 var Mikael Torfason rit­stjóri Frétta­blaðs­ins og bað mig að skrifa snagg­ara­legar greinar við alþýðu­skap í helg­ar­blaðið um ein­hver sögu­leg efni. Ég féllst vita­skuld á það og þar varð til greina­röðin Flækju­sögur. Eftir tvö ár á Frétta­blað­inu flutti greina­röðin yfir á Stundina sem þá var nýstofnuð.

Hún mun halda áfram að birt­ast í Stund­inni en grein­arnar flytj­ast nú einnig yfir á podcast, sem svo er kallað, og ég byrj­aði á því að lesa upp greina­flokk frá í fyrra sem fjall­aði um atburði árs­ins 1920.

Þar segir frá upp­hafi Adolfs Hitlers, heil­mikið um rúss­neska borg­ara­stríðið en líka fjallað um Al Capone og stríðið um vín­söl­una í Banda­ríkj­unum, breska heims­veldið, jarð­skjálfta í Kína, hneyksli í Banda­ríkj­unum, og margt margt fleira. 

Hérna er hlekkur á podcöstin hér á Stund­inni. 

Og hér er hlekkur á Flækju­sög­urnar á Spotify.

Á næst­unni munu svo eldri flækju­sögur taka að birt­ast og svo hinar nýju jafn­óðum og þær á þrykk ganga!

Ég vona þið hafið gaman af.

Kjósa
1
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.
Tengdar greinar

Flækjusagan

Mest lesið

2
Viðtal

Ef við kveðjum tungu­málið, þá týnum við vídd draumanna

Í sögu íslenskra bók­mennta í þús­und ár er lögð áhersla á raddir inn­flytj­enda, þá sem nú. Höf­und­ur­inn, Halldór Guð­munds­son, öðl­að­ist tveggja heima sýn ungur í Þýska­landi. Að læra lat­ínu frá 10 ára aldri lam­inn af kenn­ara sem skildi hann ekki, í sárum eftir heims­styrj­öld. Seinna spurði hann sig: „Hver má tala?" Í dag segir hann: „Íslend­inga­sögur dags­ins í dag eru að hluta til sagðar af fólki sem hingað hefur flutt."

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

5
Innlent

Hætta á að lánin hækki þó íbúða­verð lækki

Már Wolfgang Mixa hag­fræði­pró­fessor segir að stór hluti eigin fjár íbúða­eig­enda gæti þurrkast út á kom­andi mán­uðum. Verð­tryggðar fast­eigna­skuldir hækki í verð­bólgu­tíð sam­hliða því að íbúða­verð gæti lækkað. Hann leggur til að verð­tryggð hús­næð­is­lán fylgi íbúða­verði en ekki vísi­tölu neyslu­verðs. Þá myndu bank­arnir bera hluta áhætt­unnar.

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár