„Bless Bretland: Við munum sakna þín“

Léttir og sökn­uður á víxl birt­ist á for­síðum dag­blaða í Bret­landi og víðar í Evrópu nú þegar Brexit hefur form­lega átt sér stað.

Forsíður nokkurra dagblaða í Bretlandi og Evrópu vegna Brexit.
Forsíður nokk­urra dag­blaða í Bret­landi og Evrópu vegna Brexit.

Ólík sýn á útgöngu Breta úr Evr­ópu­sam­band­inu krist­all­ast vel á for­síðum dag­blaða í Bret­landi í dag sem og ann­ars staðar í Evrópu. Í gær yfir­gaf Bretland form­lega ESB eftir að hafa verið hluti af því í 47 ár. Í við­tali við Sky-sjón­varps­stöð­ina í gær­kvöldi sagði rit­stjóri The Sun að for­síður bresku blað­anna sýndu stefnu rit­stjóra þeirra í Brexit. Þeir væru að tala til sinna les­enda.

Á meðan sum blöð í Bret­landi og víðar um Evrópu tóku saman upp­lýs­ingar um hvaða þýð­ingu útgangan hefði á hina og þessa hópa voru önnur djarfari í fram­setn­ingu sinni. „Velkomin á fætur, hér er dýr­legt nýtt Bretland,“ stóð til dæmis á for­síðu Daily Express í morgun. Á for­síðu Guardian kvað við allt annan tón. Þar mátti sjá mynd af sorg­bitnum hundi, enskum bola­bít, og við hana stóð: „Sakna þín nú þegar“.

Aðrir tóku „frétta­legri“ nálgun og á for­síðu Daily Tel­egraph í morgun var frétt um að Boris Johnson, for­sæt­is­ráð­herra Bret­lands, væri að und­ir­búa að koma á fullri toll­skoðun á allan evr­ópskan varn­ing sem kæmi til lands­ins. Væri það gert til að auka þrýst­ing á ESB í kom­andi við­ræðum um verslun og við­skipti.

Forsíður dag­blaða ann­ars staðar í Evrópu í gær og í dag eru einnig margar hverjar und­ir­lagðar af umfjöllun um Brexit eins og sést á mynd­unum hér fyrir neðan.

Í frönsku blöð­unum var Bretland hvatt með áber­andi hætti. Á for­síðu Liberation stóð: Stundin er runnin upp. á for­síðu Le Figaro var fyr­ir­sögnin: Evrópa kvödd.

Le Monde sagði á sinni for­síðu að nú færi Evrópa inn í óvissu­tíma og á for­síðu La Croix stóð ein­fald­lega: Sjáumst!

Forsíða Le Dauphine var á svip­uðum nótum og þar stóð: Stundin er runnin upp. Þetta er frá­gengið. 

Fyr­ir­sögnin á for­síðu Le Parisien var ein­fald­lega: Bless bless! 

Bresku blöðin eru þekkt fyrir orða­leiki og sprell í fyr­ir­sögnum og götu­blaðið The Sun var á þeim nótum í sinni fyr­ir­sögn í morgun: Make Leave...Not War.

Forsíður bæði Daily Mirror og The Guardian eru dramat­ískar í morgun. Daily Mirror leggur áherslu á að nú sé komið að því að byggja upp það Bretland sem stjórna­mála­menn hefðu lofað. The Guardian skrifar ein­fald­lega: Dagurinn sem við sögðum bless.

Á for­síðu þýska blaðs­ins Der Tagesspi­egel stóð: Bless Bretland: Við munum sakna þín.

Svipaður tónn var á for­síðu belgíska blaðs­ins De Tijd þar sem fyr­ir­sögnin var: Kæru bresku vinir, við hörmum Brexit en við vonum að þetta séu ekki enda­lokin.

Á for­síðu pólska blaðs­ins segir að Pól­verjar ættu að læra af Brexit og á for­síðu portú­galska blaðs­ins Diario de Noticias stendur: 1317 dögum síðar var kom­inn tími til að kveðja. En hvað mun breyt­ast yfir höfuð?

Annað portú­galskt blað, Publico, var með ein­falda fram­setn­ingu og á for­síð­unni stóð: Sjáumst síðar.

Á for­síðu skoska blaðs­ins The National er fram­setn­ingin mjög afger­andi og þar stendur: Kæra Evrópa, við kusum þetta ekki. Munið að skilja eftir kveikt ljós fyrir Skotland.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

2
Viðtal

Ef við kveðjum tungu­málið, þá týnum við vídd draumanna

Í sögu íslenskra bók­mennta í þús­und ár er lögð áhersla á raddir inn­flytj­enda, þá sem nú. Höf­und­ur­inn, Halldór Guð­munds­son, öðl­að­ist tveggja heima sýn ungur í Þýska­landi. Að læra lat­ínu frá 10 ára aldri lam­inn af kenn­ara sem skildi hann ekki, í sárum eftir heims­styrj­öld. Seinna spurði hann sig: „Hver má tala?" Í dag segir hann: „Íslend­inga­sögur dags­ins í dag eru að hluta til sagðar af fólki sem hingað hefur flutt."

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

5
Innlent

Hætta á að lánin hækki þó íbúða­verð lækki

Már Wolfgang Mixa hag­fræði­pró­fessor segir að stór hluti eigin fjár íbúða­eig­enda gæti þurrkast út á kom­andi mán­uðum. Verð­tryggðar fast­eigna­skuldir hækki í verð­bólgu­tíð sam­hliða því að íbúða­verð gæti lækkað. Hann leggur til að verð­tryggð hús­næð­is­lán fylgi íbúða­verði en ekki vísi­tölu neyslu­verðs. Þá myndu bank­arnir bera hluta áhætt­unnar.

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár