Musk eyðir síðum Tesla og Space X útaf Facebook

Frum­kvöð­ullinn Elon Musk hefur gripið til þess að eyða Facebook síðum Tesla og Space X og þannig tekið þátt í #DeleteFacebook.

Óhætt er að segja Facebook hafi upplifað vonda daga að undan­förnu. Meira en 58 milljarðar Bandaríkja­dala, jafnvirði um 6 þúsund milljarða króna, hafa gufað upp af markaðs­virðinu, og ekki eru enn kurl komin til grafar ennþá.

Ástæðan er skandallinn sem snýr að fyrir­tækinu Cambridge Analytica, sem talið er að hafi komist yfir gögnum um notendur Facebook, alls um 50 milljónir, og nýtt gögnin til að hjálpa viðskipta­vinum sínum í kosninga­baráttum, þar á meðal framboði Donalds Trumps í Banda­ríkjunum og Brexit-sinnum í Brexit kosningunum í Bretlandi.

Mark Zuckerberg, stofnandi og forstjóri Facebook, hefur lofað því að bæta fyrir þau mistök sem fyrir­tækið hafi gert.

Þessi umræða hefur hreyft við fjölmörgum notendum og fyrir­tækjum einnig. Umræða undir myllu­merkinu #DeleteFacebook hefur þó nokkur, en með því voru notendur upphaf­lega hvattir til þess eyða Facebook aðgangi sínum.

Einn þeirra sem hefur tekið þetta alvarlega, er stofnandi og forstjóri Tesla Motors og Space X, Elon Musk. Hann ákvað í gær að eyða bæði Facebook síðu Tesla og Space X. Síðurnar voru með 2,5 milljónir fylgjenda hvor, en hann lét sér fátt um finnast þegar hann gerði þetta, og tilkynnti um það á Twitter.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár