Átta látnir eftir hryðjuverk í New York

Tugir eru særðir, sumir alvarlega, eftir hryðju­verkið á Manhattan. Borgar­stjórinn segir að New York búar muni standa saman.

Átta eru látnir og tugir eru særðir eftir að pallbíl var ekið á vegfarendur á hjólreiða­stig í Lower Manhattan hverfinu í New York. Bill De Blasio, borgar­stjóri í New York, sagði árásina vera hryðju­verk, og vottaði aðstand­endum fórnar­lamba samúð sína.

„Þetta fólk var að lifa lífi sínu í hversdags­leikanum og gat ekkert gert við þessari fólsku­legu árás,“ sagði De Blasio, dapur í bragði, á blaðamanna­fundi skömmu eftir atburðinn.

Maðurinn sem framdi verknaðinn er 29 ára gamall, frá Úsbekistan og kom til Banda­ríkjanna árið 2010, að því er fram kemur á vef New York Times.

Hann var skotinn af lögreglu­mönnum þegar hann var á flótta, en var síðan fluttur á sjúkrahús, og er nú í haldi lögreglu. Hann er sagður hafa hrópað „guð er góður (Alluh Akbar)“ og verið með hluti á sér og í bifreiðinni sem bentu til stuðnings við íslamska ríkið (ISIS).

Maðurinn, Sayfullo Saipov að nafni, keyrði bílnum með ofsa í gegnum hóp af fólki og síðan beint á skóla­bifreið. Hann steig síðan út, orgaði á guð í sífellu, með byssur - þar á meðal eina paint ball byssu - í hendinni, áður en lögreglu­menn skutu hann og yfir­buguðu.

Hann er á gjörgæslu.

Maðurinn er talinn hafa verið einn að verki, en rann­sóknin á atburðinum og meintum tengslum Saipov við hryðjuverk­samtök er á frumstigi.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár