Móðurleg tilfinning og þakklæti knýr ekki ljósmæður lengur

Stuðningur almennings við ljósmæður gefur kjara­baráttu þeirra byr undir báða vængi. Þetta segir formaður kjara­nefndar ljósmæðra. Lítillar bjartsýni gætir þó í þeirra röðum fyrir fund með samninga­nefnd ríkisins hjá ríkis­sátta­semjara á mánudag.  

Komnar með nóg
Komnar með nóg Ljós­mæður eru ekki lengur til­búnar að fórna heilsu sinni og dýr­mætum tíma með fjöl­skyldu fyrir þau kjör sem þeim bjóð­ast. Um það er ein­hugur í þeirra röðum, segir Katrín Sif Sig­ur­geirs­dóttir, for­maður kjara­nefndar ljós­mæðra. Mynd: Heiða Helgadóttir

Einhugur er á meðal ljósmæðra um að standa fast á kröfum sínum andspænis samninga­nefnd ríkisins. Þetta segir formaður samninga­nefndar ljósmæðra, Katrín Sif Sigur­geirsdóttir. Samninga­nefndirnar funda á mánudag með ríkis­sátta­semjara. Ljósmæður finna mikinn stuðning úr samfélaginu sem eykst dag frá degi. Hátt í átján þúsund manns eru nú í hópnum mæður og feður styðja ljósmæður á Facebook. Þangað hefur rignt inn reynslu­sögum og stuðnings­yfir­lýsingum undan­farna daga. Rauði þráðurinn gegnum sögurnar er hversu mikilvæg þekking ljósmæðra, reynsla og innsæi, reynist í meðgöngu, fæðingu og sængur­legu. Boðað hefur verið til samstöðu­fundar við fæðingar­staði klukkan tvö á laugardag, þar sem þungaðar konur ætla að taka höndum saman og mynda keðju. Þá hafa vel á þriðja þúsund skrifað undir stuðnings­yfirlýsingu mæðra og feðra sem styðja kjara­baráttu ljósmæðra og verður hún afhent á næsta fundi samninga­nefndar ríkisins og ljósmæðra, ef ekki semst fyrir þann tíma.

Sögurnar rista djúpt

Sögurnar hafa að Katrínar mati haft …

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

4
Innlent

Hætta á að lánin hækki þó íbúða­verð lækki

Már Wolfgang Mixa hag­fræði­pró­fessor segir að stór hluti eigin fjár íbúða­eig­enda gæti þurrkast út á kom­andi mán­uðum. Verð­tryggðar fast­eigna­skuldir hækki í verð­bólgu­tíð sam­hliða því að íbúða­verð gæti lækkað. Hann leggur til að verð­tryggð hús­næð­is­lán fylgi íbúða­verði en ekki vísi­tölu neyslu­verðs. Þá myndu bank­arnir bera hluta áhætt­unnar.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár