Segist ekki hafa vitað af þátttöku föður síns í útboðinu

Fjármála- og efnahags­ráðherra segir að hann hafi ekki komið að ákvörðun um út­hlut­un til ein­stakra aðila í útboði Banka­sýslu ríkisins á hlut í Íslands­banka. „Banka­sýsl­an er sjálf­stæð stofn­un sem út­fær­ir söl­una í sam­ræmi við lög sem gilda.“

Bjarni Benediktsson fjármála- og efnahagsráðherra.
Bjarni Bene­dikts­son fjár­mála- og efna­hags­ráð­herra. Mynd: Bára Huld Beck

Bjarni Benediktsson fjármála- og efnahags­ráðherra segir að hann hafi ekki haft vitneskju um þátttöku föður síns, Benedikts Sveins­sonar, í útboði Banka­sýslu ríkisins á hlut í Íslands­banka sem fram fór þann 22. mars fyrr en í gær.

Þetta kemur fram í Morgun­blaðinu í morgun.

Banka­sýsla rík­is­ins sendi í gær yfir­lit yfir kaup­endur að 22,5 pró­sent hlut í Íslands­banka til fjár­mála- og efna­hags­ráðu­neyt­is­ins, sem birti list­ann á vef Stjórn­ar­ráðs­ins.

Þar kemur fram að Haf­silfur ehf., félag í eigu Bene­dikts Sveins­son­ar, föður Bjarna, hafi keypt hlut í Íslands­banka fyrir tæp­lega 55 millj­ónir króna í útboðinu. Veittur var rúm­lega fjög­urra pró­senta afsláttur á mark­aðsvirði í útboð­inu.

Bjarni ítrekar við Morgun­blaðið að hann hafi ekki komið að ákvörðun um út­hlut­un til ein­stakra aðila. „Banka­sýsl­an er sjálf­stæð stofn­un sem út­fær­ir söl­una í sam­ræmi við lög sem gilda.“

Vildu ekki birta upplýsingarnar

Banka­sýslan ítrekaði í bréfi til fjármála- og efnahags­ráðuneytisins í gær þá afstöðu sína að hún teldi ekki heim­ilt að birta þær upp­lýs­ingar sem ráðu­neytið óskaði eft­ir. „Aftur á móti er stofn­un­inni, sem heyrir undir fjár­mála- og efna­hags­ráð­herra, skylt að afhenda ráðu­neyt­inu umbeðnar upp­lýs­ingar um úthlut­anir til þátt­tak­enda í útboð­inu í ljósi stjórn­sýslu­legrar stöðu og for­ræðis ráð­herr­ans á sölu­með­ferð eign­ar­hluta rík­is­ins í fjár­mála­fyr­ir­tækj­u­m.“

Ráðuneytið seg­ist hafa lagt sjálf­stætt mat á þær rök­semdir sem settar hafa verið fram fyrir því að fram­an­greint yfir­lit falli undir banka­leynd. „Að mati ráðu­neyt­is­ins falla upp­lýs­ingar um við­skipti á milli rík­is­sjóðs og fjár­festa ekki undir banka­leynd og með hlið­sjón af mik­il­vægi þess að gagn­sæi ríki um ráð­stöfun opin­berra hags­muna hefur ráð­herra ákveðið að birta yfir­lit­ið.“

Í til­kynn­ing­u ráðuneytisins kemur einnig fram að síð­ast­lið­inn föstu­dag hafi ráðu­neytið óskað eftir afstöðu fjár­mála­eft­ir­lits Seðla­banka Íslands til þess hvort laga­á­kvæði um banka­leynd stæðu því í vegi að upp­lýs­ingar um kaup­endur og um eign­ar­hlut sem hverjum og einum var seld­ur, yrðu gerðar aðgengi­legar almenn­ingi. Ráðu­neyt­inu hafði ekki borist svar frá Seðla­bank­anum áður en ákvörðun var tekin um að birta list­ann.

Ráðuneytið vissi ekki hverjir tóku þátt í útboðinu

Bjarni segir í samtali við Morgun­blaðið að það hafi verið mat ráðuneytisins að birting yfirlitsins væri í samræmi við lög, en um það hefur verið deilt síðustu daga. „Það er mat okkar að þegar verið er að selja ríkiseign til hæfra fjárfesta eins og í þessu tilviki, þá eigi banka­leynd ekki við,“ segir hann.

Hann segir að ráðuneytið hafi kallað eftir afstöðu fjármála­eftirlits Seðla­banka Íslands til þess hvort laga­ákvæði um banka­leynd stæðu því í vegi að upplýsingar um kaupendur og um eignar­hlut sem hverjum og einum var seldur, yrðu gerðar aðgengilegar almenningi, en svar við því hafði ekki borist í gær, eins og áður segir.

Bjarni segir jafnframt að ráðuneytið hafi ekki haft upplýsingar um það hverjir tóku þátt í útboðinu fyrr en yfirlitið barst ráðuneytinu í gær. „Við höfðum fengið upplýsingar um megin­niðurstöður og það hvernig úthlutun var háttað, en ekki yfirlit yfir þá sem fjárfestu eða tóku þátt.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár